Þróttur - 15.12.1920, Síða 6
ÞRÖTTUÍ'i
iá
sænski. Söngurinn var ágætur og setti mikinn
svip á hátíðina. — Þá kom flugvél fljúgandi
yfir leikvanginn. — —
Þó mikið væri um dýrðir vorum við eigi
jafn hrifnir og búast hefði mátt við. Má kanske
kenna því um að nokkru leyti, að leikvangur-
inn var ekki nærri fullskipaður, og eins því,
að allar þjóðir áttu eigi sína fulltrúa þar, t. d.
var enginn frá Miðveldunum eða Rússum. —
Opnunarhátíðinni var lokið kl. 4 síðd., og
hafði þá staðið fullar tvær klukkustundir. —
Leikvangurinn.
Hann liggur utanvert við borgina (Antwerpen),
suð-vestan megin, skamt frá hervirkjunum við
díkin; þ. e. varnarvatnsskurðina, er liggja í
hálfhring um borgina. Það var Va kl. stunda
akstur þangað með sporvagni frá miðbænum;
en töluvert lengra ef skifta þurfti um vagn.
f*ar var áður leikvöllur borgarbúa en varð
endurbættur mjög fyrir þetta alheimsmót. Hið
þekta verzlunarhús Humphreys Ltd. í London
sá um byggingu leikvangsins, undir stjórn og
eftirliti verkfræðinganna H. E. Holts og Perry
þess, er sá um byggingu leikvanganna í London
1908 og Stockholmi 1912.
Leikvangurinn snýr frá suð-austri til norð-
vesturs. Hann er sporöskjulagaður og yfirbygður
á tvo vegu. Undir yflrbyggingunni eru pallsæti,
en þar undir og bakvið mörg herbergi er not-
uð voru fyrir búningaherbergi leikmanna, bað-
herbergi, ýmiskonar skrifstofur og fleira.
Fyrir framan suma baðklefana voru smá-
herbergi, sem notuð voru til þess að nudda
þátttakendur eftir baðið.-----
Fyrir báðum endum vallarins er steinbogi,
er stendur á mörgum steinsúlum. Eins og sjá
ÍT--------------------------------^
Stærsti og minsti þátttakandinn.
IV -V)
má á meðfylgjandi mynd eru tveir turn-
ar, annar þeirra sigurboginn — í austurhorn-
inu, er var 18 stikur á hæð — var notaður
fyrir sigurfánann, þ. e. fána þeirra þjóðar er
sigurhlaut í kappraununum. En hann var oftast
dregin upp, um leið og úrslitin voru kunngerð.
keikvangurinn,