Þróttur - 15.12.1920, Síða 17

Þróttur - 15.12.1920, Síða 17
í> ft Ó T T U R 23 Skíðamót í Svíþjóð. I Bollnas veitir maður'því þegar athygli, að aBir, ungir og gamlir, fara varla svo milli húsa að ekki séu þeir með smásleða, svipaða þess- ari mynd, sem þeir kalla »sparkstátt- ing« (sporningur). Eru þeir notaðir þannig, að staðið er öðrum fæti á sleðameiðinum, stuðst við brikina, og spyrnt sér áfram hinum feti. Þeir eru mjög þægilegir, ef flytja þarf með sér böggla eða þessháttar. Og í hálku eru þeir a við sand eða mannbrodda. Sé hálft og frost- lítið, flýta þeir ferð töluvert, því þá má láta Þá fara allhratt á sléttu og jafnvel upp hæga bfekku. { Reykjavik og fleiri sunnlenskum bæjum rnundu þeir geta orðið að miklu gagni. — Þessa viku (21.—28. febr.), sem eg hefi dvalið ^ér, hefir Skiðamót fyrir Svía verið háð hér. Tóku um 600 hundruð íþróttamenn þátt í því. Fyrstu 4 dagana voru þreyttar skotraunir á skíðum. Var erfitt fyrir ókunnugan að fylgjast 01 eð því hvernig þau fóru fram, og það í þess- mannfjölda. En þátt-takan sýnir það ljós- ast, að hér eru rnargir menn bæði skíð- og skot-fimir. Á miðvikudag hófust skíðahlaupin. Þá var kept f 30 og 60 rasta (km.) hlaupum. Þátt- tukendur voru 270 í 30 rasta hlaupinu, en að ems 38 f 60 rasta hlaupinu. Þeir runnu af stað eftir töluröð með 30 sek. millibili. Sá, er fyrstur kom inn í 60 rasta hlaupinu Var nr. 30, og hafði þannig farið fram úr 29 keppinautum sínum. Þótti það vel gert og fékk hann 1. verðlaun. Hann heitir H. Isaksson, frá ^meá, og rann skeiðið á 5 tím. 29 mín. 5 sek. (Nr. 6 varð 2, nr. 5 3 og nr. 22 4, á 5,41s2, 5.5349 0g 5,5951). Við 30 rasta hlaupið var miklu meiri spenn- Ingnr í fólkinu. Tveir með beztu skíðamönnun- Um höfðu farið af stað með þeim siðustu (nr. 255 og 265). Er sá síðarnefndi héðan frá Boll- w o nas og frægur skíðamaður. Hiaupararnir fóru bráðum að smátínast inn aftur, en fæstir gáfu þeim verulegan gaum. Aihr biðu á öndinni eftir köppunum. Nú kom einn og á ágætum tíma 2,2 6 22; hann var nr. 96; heitir Vinnberg. Og lengi komst enginn fram úr honum. Loks kom nr. 255, A. Lingvall, frá Budiksvall. Hann hafði hlaupið skeiðið á 2,2 406. Þó klöppuðu að eins félagar hans, kunningjar og hlutleysingjar fyrir honum. En Bollnas-búar geymdu það alt handa goðinu sínu, A. Person. Nú voru 5 mínútur eftir af tíma Lingvalls. Þær liðu og tvær í við- bót. Þá rann hann inn við dynjandi Iófutak og húrrahróp. En tími hans var 2,2 643. og varð hann því að eins þriðji. (Hinn 4. rann á 2,27 26). Nú var öllum spenningi lokið, og héldu því flestir heim til sín aðrir en dómararnir, starfs- menn mótsins og nánustu vinir og kunningjar þeirra, sem eftir voru. Þeir smákomu inn og var auðséð, að þeir höfðu engu síður en þeir fyrstu lagt getu sína og mátt í hlaupið, og þvi ósvikinn skerf til íþróttarinnar og endurreysnar hreystinni. En bræður þeirra og systur og ör- fáir vinir voru nær ein um að votta þeim virðingu sína og þökk fyrir þelta. — Og eg beið til að klappa fyrir þeim síðasta. — Þessa viku hafa allir blettir og götur hér verið krökt af skiðafólki, eldra og yngra, — altítt að sjá 4 — 5 ára börn þar á meðal, brölt- andi á skíðum sínum. Og einn dagur íþrótta- mótsins var líka helgaður börnunum eingöngu og alt til vandað engu síður en fyrir þá eldri. Er auðséð að Svíar skilja það, að »hvað ung- ur nemur gamall temur«. Væri vel að það væri athugað heima, að meðan íþróttirnar komast ekki inn í leiki barnanna, verða þær ekki þjóðar eign, né sýna alment heillaáhrif sín. Barnakapphlaupin hér voru stilt við aldur þeirra og þroska. Það voru 500—5000 stiku hlaup. Tóku þátt í þeim um 450 börn. Áhug-

x

Þróttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þróttur
https://timarit.is/publication/1299

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.