Þróttur - 15.12.1920, Page 28
34
þRÓTTUR
Gunnarsson frá Hólmum úr »Dagsbrún« með
5 (öllum) vinningum.
2. verðlaun hlaut Gunnar Erlendsson frá
Hlíðarenda úr »Þórsmörk« með 4 vinningum
og 3. verðlaun Helgi Erlendsson, frá Hlíðar-
enda úr »Þórsmörk« með 3 vinningum.
Eftir glímuna bélt Bjarni Jónsson frá Vogi
snjalla ræðu fyrir minni íþróltanna. Mintist
Gunnars Hámundarsonar frá Hlíðarenda og
hvatti unga menn að feta í fótspor hans í
íþróttum. Síðan hélt Gunnar Sigurðsson alþm.
frá Selalæk ræðu fyrir minni héraðsins.
Hófust þá íþróttirnar aftur. Fyrst 100 stikna
hlaup, þá hástökk og langstökk. Þátttakendur í
100 st. hlaupinu voru 9; 6 frá »þórsmörk og
3 frá »Dagsbrún«. Fyrstir urðu: Jón Árnason
frá Vatnsdal, Jón Úlfarsson frá Fljótsdal, Bjarni
Guðmundsson frá Háamúla — allir úr »Þórs-
mörk« og Sigurður .Sigurðsson frá Steinmóða-
bæ úr »Dagsbrún«. Tími þeirra var 14 sek. í
hástökki keptu tveir: Sigurður Sigurðsson úr
»Dagsbrún« og Sigurjón Guðjónsson frá Vatns-
dal úr »Þórsmörk«. Stukku þeir jafnt, 1,49 st.
Langstökk þreyttu fjórir, 2 frá hvoru félagi.
Lengst slökk Sigurður Sigurðsson 5,76 st.
Næstir honum voru Sigurjón Guðjónsson og
Öddur Þórðarson frá Vatnshól úr »Dagsbrún«,
stukku báðir 5,74 st. Var þá íþróttunum lokið.
Síðan hélt Sigurður Guðjónsson kennari frá
Flensborg ræðu, og eftir það urðu veðreiðar:
stökk og skeið. Þá voru frjáls ræðuhöld og
síðan danz. — Söngflokkur söng á mótinu undir
stjórn Guðmundar Erlendssonar bónda á Núpi,
og þótti takast vel.
Veður var hið bezta og mótið fór yfirleitt
mjög vel fram.
Að stigafjölda eftir vinningum urðu félögin nú
jöfn, 12 stig hvort.
í fyrra vann »Dagsbrún« með 121/;! stígi gegn
ll1/* stígi, er »Þórsmörk« hlaut.
Verzlunin Visir
seliir:
jlíatvörur
Sóbaksvörur
Sœlgætisvörur o. m. fl.
Lækkað verð á mörgu.
Munið að
beztu jólakaupin
eru í
Verzluninni Vísi.
ásamt flestum öðrum
nauðsynjum til jól-
anna verður bezt og
ódýrast að kaupa í
Námsskeið,
fyrir skátaforingja er hér haldið um þessar
mundir. Taka 10 piltar þátt í því. Er nám
þetta bóklegt og kennari þeirra er A. V. Tulinius,
form. í. S. í. Verklega námið á að fara fram í
sumar.
f sambandi við þelta, má geta þess að nauð-
synlegt er að hér séu haldin íþróttanámsskeið
og það í sem flestum íþróttum, a. m. k. öllum
verzlun
Ó, Ámundasonar
Sími 149 Laugaveg 24.
Verzlið við J)á sem juigjýsa f Þrótli.