Þróttur - 15.12.1920, Qupperneq 29
35
ÞRÓTTUR
Þeim íþróttum sem í. S. í. hefir á slefnuskrá
s,nni. Það mundi flýta fyrir því, að héðan yrðu
Sendir menn um allar sveitir landsins, til að
kenna íþróttir.
Arsskýrsla sambandsfélaga í. S. í.
í síðastl. mánuði var öllum félögum innan
S. í. send ársskýrsla-eyðublöð. Eru spurn-
ingar þær er fél. ber að svara heldur fleiri en
aður. Er þess fastlega vænst að fél. bregðist
vel við og sendi skýrslurnar greinilega út-
fyltar til stjórnar í. S. 1. fyrir 1. apríl n. k.
~~~ Munið að aldrei verður hægt að sjá hve
fjölmennir við erum, eða hvaða íþróltir eru mest
iðkaðar hér, ef þessar skýrslur heimtast ekki.
^yndarlegt íþróttamót
fyrir Norðlendinga-fjórðung var haldið á
Akureyri 17. júní sl., að tilhlutun U. M. F.
Akureyrar. Kristján hankaritari Karlsson setti
ttiótið. þá fóru fram ræðuhöld, en að þeim
^nknum hófust iþróltirnar.
Fyrst var fimleikasýning undir stjórn Lárusar
Rist kennara.
Vöruhúsið
i Reykjavík.
Landsins stærsta ullarvöru- og karl-
tRannafataverzlun. Fyrsta flokks karl-
ttiannasaumastofa. Stærstu birgðir af
fataefnum, hálslíni, höttum, húfum,
regnkápum og frökkttm. — Alls kon-
ar sængurfatnaður, rúm, íiður, dúnn
o. fl. o. fl.
Vörur sendar á allar hafnir gegn
eftirkröfu.
Sérlega lágt heildsöluverð til
kaupmanna.
Heildsala. — Smásala.
Simi 158. Símnefni: Vöruhúsið.
Þá var hástökk og slökk Björn Björnsson 1,*°
st. 100 stiku hlaupið vann Vigfús Friðriksson á
13 sek.; en 100 st. drengja-hlaupið Artliúr
Guðmundsson á 15 sek. 1000 st. hlaupið vann
Jón Benediklsson á 3 min. 37 sek; og einnig
bar hann sigur í langstökki á 5,27 st.
Þá var 50 st. sund og var Ólafur Magnússon
í Bitru fyrstur á 38 sek. Loks var sýnd knatt-
spyrna.
Mót þetla fór vel fram og er vonandi að
U. M. F. A. haldi slik mót fyrir Norðlendinga-
fjórðung a. m. k. árlega.
Heilsufræði.
Steingr. læknis Matthíassonar er komin út í
II. útgáfu endurbættri. Pað er bók sem ætti að
vera til á hverju heimili. Hreinlæti okkar íslend-
inga og hreysti mundi eigi jafn ábótavant, ef
slíkar bækur næðu maklegri útbreiðslu þ, e.
væru til á hverju einasta heimili.
Sundbók í. S. í.
Fyrsta heíti hennar kemur úl í næsta mán-
uði. Heftin verða alls þrjú.
N ýir
ávextir
fást ekki.
En alt annað
Jólasælgæti
í
Liverpool.
Verzlið við þá sem anglýsa í Þrótti.