Þróttur - 15.12.1920, Side 30

Þróttur - 15.12.1920, Side 30
36 ÞRÓTTUR Tl P n 1111 P óskar ÖIIum fl'eði,e9ra jóia 11 U1 °9 9ott tarsæ,t nýár. HeimMiieistari atviuniiniaima í hnefaieik (þyngsta flokki) heitir Jack Dempsey. Hann sigraði fyrverandi heimsmeistara Jess Willard í fjórðu lotu. Mótið fór fram í Bandaríkjunum (Toledo, Ohio); 40 þús. áhorfendur sóttu það, og komust færri að en vildu. Hnefaleikmót þetta þykir eitt hið allra sögulegasta, sem háð hefir verið, bæði vegna þess hve það stóð stutt yfir og eins hve yfirburðir sigurvegarans voru miklir. Það er sagt að Indíána blóð renni í æðum þessa nýja heimsmeistara, en það sé blandað skorzku og írsku blóði; á það að vera heimsins bezta kynblöndun, að því er Torsten Tenger segir í Idrottsbladet. Jack Dempsey hefir að eins einu sinni verið sigraður i hnefaleik, var það í fyrsta skiftið sem hann kom opinberlega fram. Hann er 1,80 stikur á hæð og 170 pund á þyngd. Það hefir komið til orða að Jóhannes glímu- kappi Jósefsson þreytti við J. D. Átti Jóhannes að reyna að leggja hann með glímubrögðum einum eða sjálfsvörn sinni, en J. D. að berja hann niður. Farið skyldi eftir venjulegum hnefa- leikslögum (þ. e. hnefaleikslögum Marquis of Queensberry). Ekkert hefir orðið úr þessu móti enn þá, og hefir þó Jóhannes oft skorað hann á hólm. Fari svo að J. Ð. taki ekki þessari áskorun Jóhannesar, þá er það sú fyrsta hólmgöngu- áskorunin sem hann neitar. Líklega vill J. D. heldur keppa við frægasta hnefaleiksm. Norðurálfunnar, Ceorg Carpentier —, þvi þar er til mikils fjárs að vinna. Tvær miljónir króna er boðið í það að fá að halda mót þetta. Sagt er að það eigi að fara fram í Vesturheimi. — Fyrsti heimsmeistari atvinnumanna i hnefa- leik hét John L. Sullivan. Héjt hann þeirri tign í 10 ár, frá 1882—92. James J. Coibelt hét sá næsti og var hann ósigraður í 5 ár (1892—97). Robert Fritzimmons hét sá þriðji. Hann var heimsmeistari í 2 ár (1897—99). James J. Jef- fries var heimsmeistari frá 1899—1906. Tommy Burns frá 1907 — 8. Jack Johnson svertingi frá 1908—15. Jess Willard frá 1915—19 og Jack Dempsey frá 1919. af Dreng j af ötum, Drengjafrökkum, Telpukápum, Telpukjólum. x\Uir þurfa að klæðast á jólunum. Kaupið því hjá Si M leiniigsu IflLA-BAZAE Bazar! Bazar ! Frá og með deginum í dag gefst öllum ahnenningi tækifæri á að gera verulega góð og hagfeld innkaup á JÓLA-BAZAR okkar. óvcnju stórt úrval af allskonar leikföngum og sérlega snotrum jólagjöfnm fyrir alla, en þó einkum fyrir börn og unglinga. Lítið fyrst inn til okkar, alþekt vörugæði okkar og sann- :: virði eru beztu meðmælin :: SIMI 599. il „CULLFOSr HAFNARSTRÆTI 15. SIMI 599. Verzlið við þá sem auglýsa í krótti.

x

Þróttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þróttur
https://timarit.is/publication/1299

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.