Þróttur - 20.12.1922, Qupperneq 14

Þróttur - 20.12.1922, Qupperneq 14
02 ÞEOTTUR Úísýni af Loðmundí. LoSirmndar er liæsta f jal1 á Landmanna- afrétti, annaö en Hekla. Upp á þetta fjall hafa fáir ferðamenn komið, líklega ekki aðrir en Björn Gunnlaugsson 1834 og Þor- valdur Thoroddsen 1889. Hvorugnr mun hafa verið heppinn mcö veður, en af Loð- mundi er eitthvert hið besta út.sýni á land- inu, þegar hjart er loft og stilt veöur. YiS lágum í tjaldi viö Landmannahelli, fyrir austan Heklu, og vorum á leið til Piskivatna. Pyrsta nóttin í óbygðum. Eg vaknaöi með hrolli þegar skamt lifði nætur og gat ekki sofnað. Eg lá vakandi og beið þess að birti. Pélagar mínir höfðu breitt yfir höf- uS og sváfu fast og' liátt. Eg tók alt sem eg náSi til og vafði um höfuð mér, því aö það er gamalla manna mál, að þeim verði ekki Loðmundur. (Mynd: Nafnlauscifjelagið). kalt og sé vel borgið, sem er nógu vel bú- inn til liöfuðsins. pegar því var lokið fór mér að hlýna. Fátt er jafnvel þegiS og afturelding í óbygðum. Næturkuldinn er oft talsverður, þótt a‘S sumarlagi sé, og þaS er eins og öll náttúran sé hnípin og skjálfandi í bláleitu morgunhúminu, skömmu áSur en sólin skín yfir fjalla hnúkana. En þegar sólin hefir skiniS um stund og þurkað grösin, þá verð- ur alt lifandi, og þá er eins og livert strá sé önnum kafið. Þegar viS litum út, var bjart veður og gott; þá er við vorum ferðbúnir, héldum við sem leið lá inn meS Hellisfjalli og náSum eftir skamma stund aS LoSmundarvatni. ÞaS er allstórt vatn, sem liggur alveg viS rætur fjallsins, svo að fara verður utan í brattri fjallshlíð- inni til þess að komast innfyrir. Eg var sem á glóðum í hvert skifti sem áburðar- hestunum skrikaði fótur, aS þeir mundu velta meS allan farangurinn í vatniS. En alt fór slysalaust, og áSum viS hjá norð- austurenda vatnsins. Veður var nú oröið mjög heitt, enda var sólin komin hátt á loft. Við réðumst aS fjallinu austanverðu, því aS þar er skemst upp aS íara. Gengur þar út úr því ás og fóruni við upp eftir honum, og svo upp snarbratta hlíSina. Uppgangan var all- erfiS, enda var hitinn mikill, svo að svit- inn draup af liverju höfuShári og rann í lækjum eftir andlitinu. Stundum fór liann í augun svo að dapraSist sjónin með illum sviða, þegar saltiS gerði vart viS sig. Þegar vio komumst upp fyrir ásinn opnaSist fyrir okkur útsýni norður og' austur yfir. ViS héldum lítiS eitt hærra upp Iilíoina og stönsuSuni svo og hvíld- um okkur. Eg hafði aldrei séS jafn ein- kennilegt landslag. Pyrir framan okkur voru ömurlegustu öræfi landsins. Lengst burtu í austri og norðri risu jöklarnir í

x

Þróttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þróttur
https://timarit.is/publication/1299

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.