Gerðir kirkjuþings - 01.01.2016, Blaðsíða 7

Gerðir kirkjuþings - 01.01.2016, Blaðsíða 7
7 sætta fólk sem ekki hefur alltaf verið þakklátt starf. Innan kirkjunnar hef ég orðið vitni að baktali og undirmálum sem eiga auðvitað ekki heima í kristinni kirkju. Ég velti því þess vegna fyrir mér hvort okkar eigin viðhorf séu kannski að hamla því að kirkjan og safnaðarstarfið, sem okkur þykir öllum vænt um, er ekki enn öflugra. Ég hef því verið að hugsa um það hvort við getum ekki eins og Miles; varpað af okkur okinu, ákveðið að breyta, vaxa og bæta og gengið glöð í takt til móts við spennandi framtíð. Sagði ekki einhverntíma einhver; „vilji er allt sem þarf “? Kæru vinir. Kirkjuþing eftir kirkjuþing ræðum við málin, hvetjum, fögnum, þökkum og hörmum hitt og þetta. Sitjum hér og skiljum ekki alveg af hverju við náum ekki betri árangri, af hverju kirkjan nær ekki betur til fólks, af hverju ríkisvaldið er erfitt við okkur og af hverju þessum finnst hitt og öðrum þetta. Því má spyrja að ef uppskeran ætti að vera meiri, hverju þurfum við þá að breyta til þess að fá betri uppskeru? Kannski fyrst og fremst okkur sjálfum, viðhorfum okkar og hugmyndum. Getum við breyst? Viljum við breyta okkar vinnubrögðum? Ef svo er getur það gerst á augabragði. Ef við trúum Biblíunni þá er svarið já. Þar er líka öll sú leiðsögn sem við þurfum á að halda. Með bæn og í einingu andans er svo margt mögulegt. Í Galatabréfinu er sagt að ávöxtur andans sé kærleiki, gleði, friður, langlyndi, gæska, góðvild, trúmennska, hógværð og sjálfsagi. Væru þessi orð ekki góð einkunnarorð í okkar samstarfi? Verður ekki auðveldara að takast á við verkefnin í þjóðkirkjunni ef við höfum þessi orð sem leiðarstef? Samtalið við þjóðina er mikilvægt verkefni í okkar kirkju. Á mánudaginn kl. 13.00 verður kynningarfundur um það með hvaða hætti lagt er til að unnið verði að almannatengslum af hálfu þjóðkirkjunnar. Á þriðjudaginn verður upplýsingafundur þar sem farið verður yfir stöðuna í viðræðum við ríkisvaldið um fjárhagsleg tengsl ríkis og kirkju. Á þessu þingi eru lögð fram 24 mál. Þau eru auðvitað misjöfn. Sum stór og flókin, önnur einföld. Í öllum málum þurfum við að vanda okkur og gæta að því að öll sjónarmið fái að koma fram. Það á að mínu mati að leggja áherslu á að það sé að minnsta kosti reynt að ná góðri sátt um öll mál. Þá skiptir miklu að hafa í huga hvernig mál snerta þá sem þiggja þjónustu kirkjunnar eða taka þátt í starfi hennar. Það er mikilvægt að muna að starf kirkjunnar er borið uppi af sjálfboðaliðum sem gefa ótrúlega af tíma sínum, þekkingu og reynslu. Við megum ekki taka ákvarðanir sem gera það ólíklegra að fólki vilji starfa í sóknarnefndum af því afskiptasemi regluverksins dragi það inn í einhver leiðindi sem það hefur engan áhuga á. Regluverkið má ekki draga úr frumkvæði og starfsgleði. Ég tel mikilvægt að við höfum þetta í huga og nefni það að gefnu tilefni eftir samtal við sóknarnefndarformann og sóknarprest fyrr í vikunni. Okkar hlutverk er að setja kirkjustarfinu ramma sem stuðlar að góðu og öflugu starfi hjá sóknum kirkjunnar út um allt land. Þar fer hið mikilvæga starf fram. Okkar er að hlúa að því og hlusta á fólkið sem þar sinnir safnaðarstarfi. Það eru þeir sem eru á vettvangi sem skipta máli. Fáir hafa sagt þann sannleika betur en Theodore Roosevelt í ræðu við Sorbonne í París 23. apríl 1910. Ræðu sem hafði yfirskriftina
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Gerðir kirkjuþings

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.