Gerðir kirkjuþings - 01.01.2016, Síða 11

Gerðir kirkjuþings - 01.01.2016, Síða 11
11 á kynslóðir presta um árabil sagði í grein um lífsgildin og börnin: „Kristinn siður hefur haft mótandi áhrif á einstaklinga og þjóðir allt frá upphafi vega kristinnar sögu. Þegar kristinn siður ruddi sér braut til áhrifa meðal þróttmikilla, heiðinna þjóða norðurálfu, mýkti hann skap manna, lægði ofstopa, dró úr hefnigirni og gæddi allt líf þjóðanna siðfágun.“ Ég vil ekki að andvaraleysi kirkjunnar varðandi fræðslu og tilboð um hana verði til þess að trú, von og kærleikur gleymist, en á þessi atriði kristinnar trúar lagði Lúter áherslu. Það er tiltölulega auðvelt að setja fram fræðsluefni nú á dögum til þess eru margar leiðir. En það er ekki nóg. Það þarf að fylgja því eftir að fræðsla komist til skila. Prófastsdæmin hafa m.a. það hlutverk að standa fyrir fræðslu. Hvert prófastsdæmi getur tekið að sér málaflokk hvað fræðsluna varðar. Kirkjuráð verður að gera ráð fyrir fjármagni til verkefnisins í fjárhagsáætlun sinni. Fræðslumiðstöðvar um landið geta komið efninu á framfæri, en hlutverk þeirra er að standa að fræðslu fyrir fullorðna. Samvinna kirkjunnar og fræðslumiðstöðvanna er ekki nýlunda en aðalatriðið er að vinna stíft að því að koma efninu á framfæri og vinna að því að vekja áhuga fólks á efninu. Það er ekki nóg að útbúa efni og auglýsa námskeið. Aðal vinnan felst í því að vekja áhuga fólks. Til þess þarf mannafla, til þess þarf fjármagn. Fyrir tveimur vikum fór fram landsmót æskulýðsfélaganna, en það hefur verið haldið í októbermánuði um áraraðir. Mótið fór fram á Akureyri að þessu sinni og sóttu það um 500 ungmenni víðs vegar að af landinu. Undanfarin ár hefur æskulýðssamband þjóðkirkjunnar verið í samstarfi við Hjálparstarf kirkjunnar í tengslum við landsmótin. Unglingarnir eru með þeim hætti minnt á að vera „gjörendur orðsins og eigi aðeins heyrendur þess“ eins og Jakob postuli orðar í riti sínu. Þátttakendur fá fræðslu og láta gott af sér leiða. Þau hafa frelsað þrælabörn úr skuldaánauð og safnað fyrir fátæk ungmenni á Íslandi svo dæmi sé tekið. Í ár var þemað í takt við verkefni okkar tíma, „Flóttamenn og fjölmenning.“ Ungmennin söfnuðu fötum áður en þau fóru að heiman fyrir flóttafólk og hælisleitendur á Íslandi, í Jórdaníu, Sýrlandi og Líbanon en í síðasttöldu löndunum vinnur lúterska heimssambandið með flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna og fleirum að hjálparstarfi. Undirbúningur og allt utanumhald þessara landsmóta er til fyrirmyndar í alla staði. Mikil þekking og reynsla hefur orðið til og ég fullyrði að þarna er kirkjan í farabroddi faglegheita og skipulags. Fyrir nokkrum árum samþykkti kirkjuþing að setja á oddinn vinnu við forvarnir gegn kynferðisofbeldi og öðru ofbeldi. Sú vinna hefur verið í gangi síðan og er nú farin að taka á sig mynd í formi námskeiða, fræðslumyndbands, gæðavottunar og fleira. Um er að ræða samstarfsverkefni fræðslusviðs og fagráðsins sem ber yfirskriftina Verklag í viðkvæmum aðstæðum. Þetta er sístætt verkefni sem stöðugt þarf að halda á lofti og tryggja að lifi til framtíðar. Unnið er að því að allt starfsfólk kirkna landsins fái tiltekna fræðslu og undirriti vilja sinn til þess að vinna samkvæmt þessu verklagi. Með þessu móti mun kirkjan vera í fararbroddi hér á landi hvað varðar forvarnir gegn kynferðisofbeldi og öðru ofbeldi þar sem byggt er á alþjóðlegum stöðlum og samþykktum. Vinna þessi tengist því óneitanlega gæðastjórnun innan kirkjunnar og vinnustaðamenningu. Stefnt er að því að ýta verkefninu úr vör á haustmánuðum 2017. Þar sem um svo mikilvægt og viðkvæmt verkefni er að ræða er brýnt að tryggja því

x

Gerðir kirkjuþings

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.