Gerðir kirkjuþings - 01.01.2016, Síða 15

Gerðir kirkjuþings - 01.01.2016, Síða 15
15 1. mál kirkjuþings 2016 Flutt af kirkjuráði Skýrsla kirkjuráðs Inngangur Biskup Íslands, Agnes M. Sigurðardóttir, er forseti kirkjuráðs lögum samkvæmt. Auk biskups sitja í ráðinu fjórir fulltrúar kjörnir af kirkjuþingi til fjögurra ára, tveir leikmenn og tveir guðfræðingar. Hinir kjörnu kirkjuráðsmenn og varamenn þeirra sitja allir á kirkjuþingi en kirkjuráð var kosið á síðasta kirkjuþingi til fjögurra ára. Þeir eru sr. Elínborg Gísladóttir, sóknarprestur í Grindavíkur-prestakalli, Kjalarnesprófastsdæmi, sr. Gísli Gunnarsson, sóknarprestur í Glaumbæjarprestakalli, Húnavatns- og Skaga- fjarðar prófastsdæmi, Stefán Magnússon, bóndi í Fagraskógi og Svana Helen Björnsdóttir, rafmagnsverkfræðingur og framkvæmdastjóri. Varamenn í kirkjuráði eru Drífa Hjartardóttir bóndi, Einar Karl Haraldsson framkvæmdastjóri, sr. Geir Waage sóknarprestur í Reykholtsprestakalli, Vesturlandsprófastsdæmi og sr. Gísli Jónasson prófastur og sóknarprestur Breiðholtsprestakalli, Reykjavíkurprófastsdæmi eystra. Starfsemi kirkjuráðs Almennt Um störf kirkjuráðs fer eftir lögum um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997 svo og starfsreglum um kirkjuráð nr. 817/2000. Þar er kveðið á um verkefni kirkjuráðs sem fer með framkvæmd þeirra sameiginlegu verkefna þjóðkirkjunnar sem lög og stjórnvaldsreglur ætla því og erinda sem vísað er til þess, m.a. af hálfu kirkjuþings, prestastefnu, samtaka leikmanna, ráðherra og Alþingis. Kirkjuráð undirbýr kirkjuþing í samráði við forseta þingsins og forsætisnefnd. Þá undirbýr ráðið þingmál sín og veitir kirkjuþingsfulltrúum sem þess óska aðstoð við framsetningu þingmála. Kirkjuráð annast almennt framkvæmd ákvarðana þingsins ef annað er ekki ákveðið af kirkjuþingi. Kirkjuráð hefur yfirumsjón með fjármálum og fasteignamálum þjóðkirkjunnar og fer með stjórn Jöfnunarsjóðs sókna, kirkjumálasjóðs og kristnisjóðs. Ráðið úthlutar úr sjóðunum á grundvelli umsókna og fjárhagsáætlana stofnana. Í fjármálaumsýslunni felst m.a. að gera fjárhagsáætlanir og fjárlagatillögur og árita ársreikninga þeirra sjóða sem ráðið stýrir og leggur fram á kirkjuþingi. Kirkjuráðsfundir Kirkjuráð heldur fund að jafnaði einu sinni í mánuði á biskupsstofu og á þessu starfsári (kirkjuþingsárinu) hefur ráðið haldið fimmtán reglulega fundi á starfsárinu auk tveggja aukafunda. Forseti kirkjuþings situr fundi kirkjuráðs þegar málefni kirkjuþings eru til umfjöllunar. Vígslubiskupar sitja fundi ráðsins þegar málefni biskupsstólanna eru til umfjöllunar.

x

Gerðir kirkjuþings

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.