Gerðir kirkjuþings - 01.01.2016, Page 20
20 21
Umhverfismál
Kirkjuþingi unga fólksins er umhugað um náttúruna og var þingið í ár m.a. pappírslaust
sem spor í átt að grænni kirkju. Á hverju ári hafa umhverfismál legið fyrir þinginu.
Kirkjuþing unga fólksins fagnar því að á biskupsstofu sé starfandi nefnd sem vinnur eftir
Ljósaskrefinu og umhverfisstefnu þjóðkirkjunnar, en skorar um leið á þjóðkirkjuna í heild
að fylgja í þau fótspor og vera leiðandi afl í samfélaginu í umhverfisvernd.
Tillaga um að fella starfsreglur kirkjuþings unga fólksins á brott og leggja þingið niður
Á þriðja tug sjálfboðaliða sitja þingið á hverju ári og gefa vinnu sína til að reyna að stuðla
að jákvæðum breytingum innan kirkjunnar en uppskera lítið.
Þingið hefur komið saman á hverju ári frá 2011 og sömu mál eru lögð fyrir þingið aftur
og aftur, kirkjuþingsfulltrúar fá litlar upplýsingar um afdrif og meðferð þingmála og
lítill árangur er sjáanlegur af störfum þingsins. Ef ekki á að taka störf kirkjuþings unga
fólksins alvarlega af hverju er þá verið að halda slíkt þing? Í umræðum og nefndarvinnu
var lagt til að þetta mál yrði fellt en því meiri áhersla ætti að vera á málinu um meðferð
kirkjuþingsmála. Samþykkt var að koma á fót nefnd sem héldi utan um og fylgdi eftir
málum KUF.
Vantrauststillaga á kirkjuráð
Lögð var fyrir þingið vantrauststillaga á kirkjuráð vegna meðferða mála kirkjuþings unga
fólksins, en málið var lagt fram til að ítreka þá ósk kirkjuþingsfulltrúa að störf þeirra séu
tekin alvarlega og að mál af kirkjuþingi unga fólksins fái eðlilega meðferð. Málið var fellt.
Lýkur hér umfjöllun um kirkjuþing unga fólksins og ályktanir þess.
Verkefni kirkjuráðs
Fyrsti fundur kirkjuráðs eftir 52. kirkjuþing var 240. fundur og var haldinn hinn 17.
nóvember á síðasta ári. Alls urðu fundir kirkjuráðs 17 á kirkjuþingsárinu eins og áður hefur
komið fram og var síðasti fundur fyrir núverandi kirkjuþing sá 256. í röðinni. Í skýrslu
þessari verður vísað til fundanna um gjörðir kirkjuráðs í númeraröð og til hægðarauka
verður einungis vísað til þess tugar sem þeir tilheyra. Þannig verður 240. fundur nefndur
40. fundur, 241. fundur verður nefndur 41. fundur o.s.frv. Einungis verður fjallað um
mál sem tekin voru á dagskrá og hlutu þar afgreiðslu af hálfu ráðsins eða skuldbindandi
ákvörðun var tekin um.
Verkefni kirkjuráðs á fasteignasviði
Verkefni fasteignasviðsins voru til umfjöllunar á tólf fundum kirkjuráðs á starfsárinu.
Á (2)40. fundi var greint frá dómi Héraðsdóms Vesturlands í máli sem varðaði dúntekju í
s.k. Hagahólma. Kirkjumálasjóður var stefnandi í málinu en Héraðsdómur dæmdi stefnda
í hag. Málinu var áfrýjað til Hæstaréttar og á 256. fundi kom fram að Hæstiréttur hefði
staðfest dóm Héraðsdóms.