Gerðir kirkjuþings - 01.01.2016, Qupperneq 21
21
Á (2)41. fundi voru tekin fyrir sex mál er vörðuðu fasteignasviðið. Fjórum af þeim var
lokið með ákvörðun en þau vörðuðu (1) uppgjör við afhendingu prestssetursjarðarinnar
Reynivalla, (2) erindi sóknarprestsins á Melstað varðandi ærgildi sem kirkjuráð samþykkti
en klofnaði í afstöðu sinni og bókuðu tveir kirkjuráðsmenn að ærgildi í eigu kirkjujarða
sem ekki væru í notkun ætti að selja þá þegar, (3) dóm Hæstaréttar í máli er varðaði
Hrunaheiðar þar sem kirkjuráð samþykkti að greiða bætur vegna málsins samkvæmt
niðurstöðu Hæstaréttar og að lokum (4) erindi frá ábúanda að Hálsi 2 í Fnjóskadal þar
sem hann sótti um leyfi til landbúnaðarstarfsemi í atvinnuskyni en kirkjuráð samþykkti
beiðnina.
Á (2)42. fundi var til umfjöllunar erindi sem kirkjuþing 2015 beindi til kirkjuráðs
um að skipaður yrði þriggja manna starfshópur sem skoði ályktun við starfsreglur um
prestssetur og aðrar fasteignir þjóðkirkjunnar í tengslum við stefnumörkun um eignir
og eignastýringu. Kirkjuráð samþykkti að skipa í starfshópinn Önnu Guðmundu
Ingvarsdóttur, formann, Egil Heiðar Gíslason og Ásbjörn Jónsson.
Á (2)43. fundi var kynnt kauptilboð í Laugaveg 31 og samþykkt að hvorki stæði til að
leigja né selja Kirkjuhúsið, Laugavegi 31, að svo stöddu.
Á (2)46. fundi var fundargerð kirkjustarfshóps lögð fram. Á fundinum voru alls átta
mál til umfjöllunar er vörðuðu fasteignasviðið. Þremur þeirra lauk með ákvörðun ráðsins.
Fyrsta málið varðaði breytingar á aðalskipulagi Borgarbyggðar og lagningu mótorcross
brautar í nágrenni Borgar á Mýrum. Kirkjuráð samþykkti að mótmælunum yrði komið á
framfæri við viðeigandi aðila. Þá var samþykkt að rafstrengur í landi Brúna yrði lagður í
jörð. Að lokum var samþykkt erindi frá RARIK um að háspennukerfi frá Stóra Kroppi að
Reykholti verði endurnýjað.
Á (2)50. fundi samþykkti kirkjuráð að fela kirkjustarfshópi að gera drög að eignastefnu
fyrir næsta kirkjuráðsfund og byggja hana á fasteignastefnu þjóðkirkjunnar frá 2012.
Á (2)51. fundi samþykkti kirkjuráð að tekjur af lóðarleigu vegna fjarskiptamasturs
á prestssetursjörðinni Laufási megi renna til Laufáskirkju. Þá er samþykkt tillaga
kirkjustarfshóps um að auglýsa jörðina Valþjófsstað til leigu, en undanskilja þau
svæði sem sveitarfélagið hefur þá þegar til afnota. Að lokum er bókað að sóknarpresti
Staðastaðarprestakalls hafi verið gerð grein fyrir því að reiknað sé með því að sóknarprestur
taki við húsnæðinu og jörðinni frá 1. júlí 2016 og greiði leigu frá þeim tíma.
Á (2)53. fundi eru til umfjöllunar fjögur mál en engu þeirra lauk með ákvörðun.
Á (2)54. fundi voru til umfjöllunar þrjú mál og lauk þeim öllum með ákvörðun. Í fyrsta
lagi var samþykkt erindi umhverfissviðs Mosfellsbæjar og Lágafellssóknar um breytingu á
deiliskipulagi varðandi hringtorg á Þingvallavegi. Þá var samþykkt að veita Lágafellssókn
umbeðna heimild til að brúa gilið milli kirkju og kirkjugarðs. Að lokum samþykkt beiðni
sóknarnefndarinnar um stuðning við erindi þess efnis að Vegagerðin standi að gerð
heimreiðar milli kirkju og prestsseturs, vegtengingu yfir gilið milli kirkju og nýs kirkjugarðs
að Mosfelli ásamt bifreiðastæðum í samræmi við c lið 8. gr. vegalaga. Allar samþykktirnar
voru háðar því skilyrði að viðunandi samningar náist við hlutaðeigandi aðila, bæjaryfirvöld
og Vegagerðina um fjármögnun og þátt Vegagerðarinnar í framkvæmdum þeim sem
sóknarnefndin hefur fyrirhugað að standa að samkvæmt erindi sínu til kirkjuráðs. Í