Gerðir kirkjuþings - 01.01.2016, Page 22
22 23
öðru lagi var samþykkt erindi prófasts Vesturlandsprófastsdæmis varðandi úttekt þegar
hann hverfur úr embætti og greiðslur fyrir landbætur og í þriðja lagi var samþykkt erindi
sveitarfélagsins Skagafjörður varðandi lagningu ljósleiðara. Í þeirri samþykkt var tilgreint
að hún væri í samræmi við stefnu kirkjuráðs í málaflokknum.
Á (2)56. fundi voru lagðar fram og kynntar fundargerðir kirkjustarfshóps. Af
níunda fundi hópsins var tekinn fyrir 1. liður Málefni Breiðabólsstaðar í Fljótshlíð.
Makaskiptasamningur milli jarðanna Lambey og Breiðabólsstaðar. Kirkjuráð samþykkti
gerð samningsins. Aurasel. Deila stendur um veiðitekjur úr ánni Affalli sem höfðu fallið til
Breiðabólsstaðar. Óskað var heimildar kirkjuráðs til að fá ráðgjöf frá landamerkjasérfræðingi
vegna deilunnar. Heimildin var samþykkt. Skálholt. Kirkjustarfshópur átti fund í Skálholti
skv. fundargerð dags. 14. september 2016. Samþykkt var að taka saman skýrslu um
nauðsynlegar framkvæmdir á staðnum, þ.á.m. um flutning vígslubiskups í s.k. rektorshús.
Brattahlíð 5 í Hveragerði, óskað var eftir heimild til sölu eignarinnar. Heimildin var
samþykkt.
Málefni Skálholts og Mosfells. Fram kom tillaga um að gert verði verðmat fyrir eignina
vegna hugsanlegar sölu hennar. Tillagan var samþykkt.
Oddi á Rangárvöllum, fyrirhuguð veglagning og brúargerð yfir Þverá. Samþykkt var
að verða við erindinu enda komi eðlilegt gjald fyrir vegstæðið af hálfu Vegagerðarinnar.
Staðastaður, hæstaréttardómur í máli kirkjumálasjóðs gegn Kára H. Jónssyni.
Framkvæmdastjóra var falið að ganga frá greiðslum á málskostnaði. Úrskurður
Óbyggðanefndar á svæði 88. Erindi Inga Tryggvasonar hrl. Kirkjuráð telur ekki ástæðu
til viðbragða. Framkvæmdastjóra var falið að svara erindi lögmannsins. Skráningarmál.
Erindi fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Samþykkt var að kanna hvort og þá hvaða
úrræði kirkjumálasjóður hefur til að bregðast við úrskurði ráðuneytisins.
Verkefni kirkjuráðs á sviði fjármála
Verkefni kirkjuráðs á sviði fjármála voru til umfjöllunar á alls ellefu fundum á starfsárinu.
Á (2)40. fundi er bókað að kirkjuráð samþykkti að fela framkvæmdastjóra að taka saman
spurningar sem fram hafi komið vegna fyrri samþykktar um skipun þriggja manna
nefndar til að skýra verksvið biskups og kirkjuráðs og setja nefndinni erindisbréf. Þá
er bókað að kirkjuráð samþykki að fela framkvæmdastjóra að leita tilboða í aðkeypta
innri endurskoðun. Að lokum er greint frá því að kirkjuráð hafi undirritað ársreikning
Jöfnunarsjóðs sókna 2014.
Á (2)41. fundi er samþykkt úthlutun úr Jöfnunarsjóði sókna. Þá er samþykkt að
fela framkvæmdastjóra að svara umsókn Ástjarnarsóknar um úthlutun á styrk til
sóknarinnar. Samþykkt er að fela framkvæmdastjóra að óska eftir því við Grafarvogssókn
að leggja fram áætlun um hvernig sóknin hyggst greiða niður skuldir sínar. Samþykkt
er að fela fjármálahópi kirkjuráðs að ræða við fulltrúa Hallgrímssóknar og fulltrúa
Árbæjarkirkju. Fram fer önnur umræða um fjárhagsáætlun kristnisjóðs, kirkjumálasjóðs
og rekstraráætlun biskupsstofu og samþykkt er að bjóða formanni PÍ og kjaramálafulltrúa
PÍ á fund fjármálahóps kirkjuráðs til að fara yfir mál er varðaði erindi Prestafélags Íslands
frá 10. nóvember til biskups Íslands og kirkjuráðs um endurskoðun á rekstrarformi