Gerðir kirkjuþings - 01.01.2016, Side 24
24 25
sam þykkir kirkju ráð að fela fjármála hópi kirkju ráðs að kanna hagkvæmni og möguleika
á útvistun bókhaldsvinnu í samráði og samstarfi við framkvæmdastjóra kirkjuráðs og
skrifstofu- og mannauðsstjóra biskupsstofu.
Á (2)51. fundi er bókað að fram hafi verið lögð fundargerð fjármálahóps. Þá segir
að kirkjuráð samþykki að ljúka við skráningu verklags fjármála biskupsstofu og sjóða
kirkjunnar fyrir septembermánuð nk. og kirkjuráð samþykki að fresta útvistun bókhalds
Skálholts til 1. janúar 2017. Næst eru tekin fyrir málefni Skálholts. Þar segir að nokkur
mál hafi verið kynnt og séu til athugunar en síðan segir að kirkjuráð samþykki að veita
úr kirkjumálasjóði 47.5 m.kr. til viðhalds í Skálholti, með þeim fyrirvara að sex mánaða
uppgjör kirkjumálasjóðs sýni fram á að svigrúm sé til þess. Kirkjuráð samþykkti að fela
fjármálahópi kirkjuráðs að fylgja málinu eftir. Næst er bókað að kirkjuráð samþykki að
gangast í ábyrgð vegna lántöku Ástjarnarsóknar Kjalarnesprófastsdæmi að fjárhæð allt
að 60 m.kr. Sóknin hafi verið stofnuð af kirkjuþingi 2001 og síðan þá hafi starfsaðstaðan
verið óviðunandi. Sú sérstaða safnaðarins sé grundvöllur ákvörðunar kirkjuráðs og sé
ekki fordæmisgefandi fyrir aðra söfnuði. Séra Gísli Gunnarsson óskaði eftir að bókað yrði
að hann sæti hjá við afgreiðslu málsins. Nokkur mál voru lögð fram til kynningar og að
lokum var lagt fram erindi frá verkefnisstjóra kirkjutónlistar dagsett í júní 2016 varðandi
nýjan samning við Fjölís. Kirkjuráð samþykkti samninginn.
Á (2)53. fundi var lögð fram og kynnt fundargerð fjár mála hóps. Þá var tekið fyrir erindi
nefndar um fimm alda minningu sið bótarinnar. Kirkjuráð samþykkti að veita nefndinni
vilyrði fyrir 13 m.kr. fjár veitingu sem nefndin sækir um samkvæmt fjárhagsáætlun.
Vilyrðið er háð því að svigrúm sé í kirkjumálasjóði en það kemur í ljós við heildarfjárhags-
áætlunar gerð kirkju málasjóðs og fer afgreiðsla málsins fram á úthlutunarfundi kirkjuráðs
í desember. Næst var tekið fyrir erindi frá Stórólfshvolfssókn með bréfi dags. 15. ágúst
sl. Samþykkt var að fela framkvæmdastjóra að svara erindi fulltrúa sóknarnefndar og
jafnframt að fela starfsfólki fasteignasviðs að kynna sér málið í héraði. Þá var tekið fyrir
erindi og umsókn um fjárveitingu lagt fram frá undirbúningshópi sem hefur í hyggju
að láta rita og gefa út ævisögu Jóns Vídalín Skálholtsbiskups í tilefni af því að um þessar
mundir eru 350 ár frá fæðingu hans (2016), 300 ár frá fyrstu útgáfu Húspostillunnar (2018)
og 300 ára ártíðar hans (2020). Kirkjuráð tók vel í erindið og mun afgreiða umsóknina
við gerð fjárhagsáætlunar vegna ársins 2017. Að lokum voru teknir fyrir ársreikningar
Jöfnunarsjóðs sókna og kirkjumálasjóðs fyrir árið 2015. Kirkjuráð undirritaði ársreikning
Jöfnunarsjóðs sókna 2015 en samþykkti svohljóðandi bókun vegna ársreiknings
kirkjumálasjóðs: Reikningar kirkjumálasjóðs, frekari upplýsingar frá 251. kirkjuráðsfundi,
liður 2 a iii. Kirkjuráð samþykkti að óska eftir frekari upplýsingum, tölulegum upplýsingum
um reikninga og viðfangsefni kirkjumálasjóðs, sem kynntir voru á 251. kirkjuráðsfundi.
Á (2)54. fundi var lögð fram og kynnt fundargerð fjármálahóps. Þá voru lögð fram
og kynnt drög að hálfs árs upp gjöri biskupsstofu og kirkjumálasjóðs. Næst voru lögð fram
drög að bréfi til ríkisv aldsins varðandi efndir á kirkju jarða sam komu laginu og sam þykkt
að forseti kirkjuráðs undirriti bréfið fyrir hönd kirkjuráðs og sendi það forsætis-, fjármála
og efna hags- og innan ríkis ráðuneyti. Þá kynnti kirkjuráð þann vilja sinn að unnið veði að