Gerðir kirkjuþings - 01.01.2016, Síða 33

Gerðir kirkjuþings - 01.01.2016, Síða 33
33 Kristnisjóður og Jöfnunarsjóður sókna Í skýringu 2 með ársreikningi kirkjumálasjóðs kemur fram að framlög til sjóðsins hafi numið 132,7 m.kr. á árinu 2015. Þar beri hæst framlög úr kristnisjóði og Jöfnunarsjóði sókna. Í ársbyrjun 2006 hafi verið ákveðið að færa verkefni kristnisjóðs yfir á kirkjumálasjóð og því færist framlagstekjur kristnisjóðs óskiptar til kirkjumálasjóðs. Framlög frá Jöfnunarsjóði sókna séu tvíþætt, annars vegar séu 15% af tekjum hans færðar yfir á kirkjumálasjóð til styrktar kirkjulegri félags- og menningarstarfsemi og hins vegar önnur framlög. Þessar ráðstafanir hafi verið gerðar til einföldunar stjórnsýslu. Í ríkisreikningi er staða sjóðanna birt en þar er rekstrarafkoma þeirra jafnan núll og ef tekjuafgangur verður á þeim er hann færður í ríkissjóð með lokafjárlögum. Sjóðirnir hafa ekki efnahag, eiga engar eignir og skulda ekkert. Samantekt Svo sem fram kemur af ofangreindri umfjöllun má draga saman afkomu þess sem nefna má samstæðu þjóðkirkjunnar, þ.e. rekstrarreiknings biskupsstofu, kirkjumálsjóðs, kristnisjóðs og Jöfnunarsjóðs sókna og er hún jákvæð sem nemur kr. 236.073.296.

x

Gerðir kirkjuþings

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.