Gerðir kirkjuþings - 01.01.2016, Side 34

Gerðir kirkjuþings - 01.01.2016, Side 34
34 35 Rekstraráætlanir ársins 2017 Biskupsstofa Gert er ráð fyrir að ríkissjóður standi að fullu við kirkjujarðasamkomulagið enda um samningsbundið framlag að ræða. Framlag, eða endurgjald, ríkissjóðs verður þá skv. reiknilíkani því sem notað er til að reikna það út 2.250,5 m.kr. Það skiptist þannig að til greiðslu launakostnaðar eru 1.981,3 m.kr. og til greiðslu annars rekstrarkostnaðar eru 269,2 m.kr. Fyrstu drög að áætluninni gera ráð fyrir að jöfnuður verði í rekstrinum miðað við þessar tekjuforsendur, tekjuafgangur verði 9 m.kr. sem er 0,4% af tekjum. Kirkjumálasjóður Í drögum að áætlun kirkjumálasjóðs er gert ráð fyrir að framlag ríkissjóðs verði 309,6 m.kr. en það er framreiknað framlag gildandi fjárlaga. Rekstrinum er skipt í almenna starfsemi sjóðsins og starfsemi fasteignasviðs. Rekstrargjöld vegna almennrar starfsemi sjóðsins eru áætluð 224,4 m.kr. og eru þau alfarið fjármögnuð af framlagi ríkissjóðs. Rekstrargjöld fasteignasviðsins eru áætluð 155,4 m.kr. Af framlagi ríkissjóðs renna því 85,3 m.kr. til fasteignasviðsins en 70,2 m.kr. eru fjármagnaðar af sértekjum, þ.e. leigutekjum. Samkvæmt þessu er því gert ráð fyrir jöfnuði í rekstri sjóðsins en sá jöfnuður fæst með því að rekstrarkostnaður fasteigna sjóðsins er framreiknaður með áætlun Hagstofunnar um 3,9% verðlagsbreytingar milli ára og mismunurinn er færður á viðhalds- og stofnkostnaðarliðinn. Kirkjumálasjóður Ársáætlun 2017 (drög 1) Almenn starfsemi Tekjur Framlag ríkissjóðs -309.622.000 Flutt á fasteignasvið 85.255.153 Tekjur samtals -224.366.847 Gjöld Kirkjuþing 33.235.292 Kirkjuráð 22.024.648 Kirkjumálasjóður – framlög 40.044.816 Kirkjumálasjóður – nefndir 26.465.064 Kirkjumálasjóður – laun og lífeyrisskuldbindingar 35.739.999 Fjölskylduþjónusta kirkjunnar 27.430.699 Prestastefna, leikmannastefna 15.900.000 Fjármunatekjur – fjármagnsgjöld 23.526.329 Gjöld samtals 224.366.847 Almenn starfsemi samtals 0

x

Gerðir kirkjuþings

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.