Gerðir kirkjuþings - 01.01.2016, Page 50
50 51
12. mál kirkjuþings 2016
Flutt af löggjafarnefnd
Starfsreglur
um breytingu á starfsreglum um kirkjuráð nr. 817/2000
1. gr.
2. mgr. 3. gr. breytist og hljóðar svo:
□Kirkjuráð getur haft aðsetur á biskupsstofu.
2. gr.
3. mgr. 5. gr. orðist svo:
□Ákveði kirkjuráð greiðslu umfram fjárhagsáætlun skal fjárhagsáætlun breytt til samræmis
og lögð fyrir kirkjuþing samhliða fjárhagsáætlun næsta árs.
3. gr.
Við 6. gr. bætast sex nýjar málsgreinar, sem verða 2., 3., 4., 5., 6. og 7. mgr. og orðast svo:
□Kirkjuráð skal sjá um að fjárstjórn sjóða og stofnana er undir ráðið heyra sé jafnan í réttu
og góðu horfi og að nægilegt eftirlit sé haft með bókhaldi og meðferð fjármuna þeirra.
Kirkjuráð getur ráðið sér starfsfólk til að sinna því eftirlitshlutverki sem því er ætlað að hafa.
□Kirkjuráð skal leggja fyrir þingið til kynningar endurskoðaða ársreikninga sjóða og
stofnana sem undir ráðið heyra fyrir síðasta fjárhagsár.
□Enga greiðslu má inna af hendi úr þeim sjóðum sem undir kirkjuráð heyra án samþykkis
þess.
□Kirkjuráð getur ákveðið að semja við embætti biskups Íslands eða aðrar stofnanir
þjóðkirkjunnar að annast afmörkuð verkefni sem kirkjuráði ber að sinna eða ráðið ákveður
að stofna til. Hafi þau verkefni í för með sér fjárútlát, skal kirkjuráð tryggja, að nægt fé sé á
hverjum tíma lagt af tekjum kirkjunnar, skv. 7. gr., til að standa straum af kostnaði við þau.
□Undirritun meirihluta fulltrúa kirkjuráðs skuldbindur þá sjóði sem ráðið stýrir við
meiriháttar samningsgerð eins og við sölu fasteigna.
□Kirkjuráð veitir prókúruumboð vegna þeirra sjóða eða stofnana sem undir ráðið heyra.
4. gr.
Við 7. gr. bætast þrjár nýjar málsgreinar, sem verða 2., 3. og 4. mgr. orðast svo:
□Kirkjuráð hefur yfirumsjón með ráðstöfun þess fjár, innan lögmæltra marka, sem
árlega rennur til kirkjunnar sem gagngreiðsla íslenska ríkisins á grundvelli samninga um
kirkjueignir og prestssetur.
□Kirkjuráð hefur yfirumsjón með ráðstöfun fjár, innan lögmæltra marka, sem sem sjóðir
eða stofnanir sem undir ráðið heyra afla með frjálsum framlögum, eða fjár sem rennur
með öðrum hætti til þeirra frá opinberum aðilum, en tilgreint er í 2. og 3. mgr.
□Kirkjuráð hefur yfirumsjón með fasteignum kirkjumálasjóðs sbr. starfsreglur um
prestssetur og aðrar fasteignir þjóðkirkjunnar.