Gerðir kirkjuþings - 01.01.2016, Page 64

Gerðir kirkjuþings - 01.01.2016, Page 64
64 65 24. mál kirkjuþings 2016 Flutt af biskupi Íslands Þingsályktun um samkirkjustefnu þjóðkirkjunnar Kirkjuþing 2016 samþykkir samkirkjustefnu þjóðkirkjunnar. Samkirkjustefna þjóðkirkjunnar Þjóðkirkjan telur köllun kristinnar kirkju til einingar mikilvæga og leggur áherslu á að sú eining sé sýnileg í biðjandi, boðandi og þjónandi starfi; með samræðu, samfélagi og samstarfi. Sjálfsmynd okkar sem lúterskrar kirkju er að starfa af heilindum með öðrum kirkjum. Greinargerð 1. Hvað er samkirkjulegt starf? Samkirkjumál eru þýðing á hugtaki sem á rætur í gríska orðinu oikoumene, sem þýðir í raun hinn byggði heimur. Í yfirfærðri merkingu er það þau sem byggja saman hinn kristna heim – hin kristna kirkja sem er ein þó að hún greinist í margar deildir. Kristur bað fyrir lærisveinum sínum og þeim sem tækju trú fyrir orð þeirra – að allir væru þeir eitt. (Jóh 20:23). Samkirkjuhreyfingin vinnur að því að græða mein og vinna að einingu kristinnar kirkju, einingu sem þó tekur mið af fjölbreytni kristinna safnaða um allan heim og ólíkra kirkjudeilda. Í heimi þar sem kristin trú er víða á undanhaldi eða jaðarsett verður ekki hjá því komist að kristnar kirkjur vinni saman. Samkirkjulegt starf hefur fyrst og fremst verið skilgreint sem samstarf kirkjudeilda. Það er þó einnig notað hér á landi um samstarf við systurkirkjur erlendis, s.s. norrænar kirkjur eða við Lúterska heimssambandið. Þjóðkirkjan á einnig í samstarfi við fólk af öðrum trúarbrögðum en um það er notað hugtakið þvertrúarlegt starf (interfaith). Samkirkjulegt starf þjóðkirkjunnar á sér stað innanlands og á alþjóðavettvangi meðal annars með þátttöku í hinni alþjóðlegu samkirkjulegu hreyfingu. Í þessu skjali er orðið samkirkjulegt starf notað um samstarf kirkna innanlands og utan og kirkjudeilda. Vinnan að einingu kristins fólks og kirkjunnar snýr bæði að kenningarlegum málefnum og samstarfi. Markmiðið er að vinna í átt að einingu, vitandi að sú eining felur í sér fjölbreytni. Margt hefur áunnist og markvisst samstarf og samræður skilað árangri sem er sýnilegur í yfirlýsingum og skjölum og í viðamiklum verkefnum sem kirkjurnar hafa sinnt saman. Þar má meðal annars nefna hvernig unnið hefur verið að sameiginlegum skilningi á skírn, altarissakramenti og embættum (Lima skýrslan), yfirlýsingu um sameiginlegan skilning um réttlætingu af náð (Lúterska heimssambandið og kaþólska kirkjan) og gagnkvæmri viðurkenningu á embættum og sáttmála um að vaxa saman í lífi og starfi (Porvoo sáttmálinn). Markmið samkirkjuhreyfingarinnar er að vinna að sýnilegri einingu hinnar kristnu

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.