Gerðir kirkjuþings - 01.01.2016, Page 66
66 67
stóru samkirkjulegu samtakanna. Þá hefur þjóðkirkjan tekið þátt í starfi evrópsku
kærleiksþjónustunnar, Eurodiakonia.
Á Íslandi hefur verið starfrækt formlegt samstarf milli kristinna safnaða frá því um
1980 þegar Samstarfsnefnd kristinna trúfélaga á Íslandi var stofnuð að frumkvæði
þjóðkirkjunnar. Óformleg samvinna á sér miklu lengri sögu, til dæmis um Alþjóðlegan
bænadag kvenna, starf sem forystukonur Hjálpræðishersins leiddu lengst af.
Sjálfstæð félög og stofnanir innan kirkjunnar starfa einnig oft á samkirkjulegum
grunni. Hjálparstarf kirkjunnar starfar t.d. náið með samkirkjulegu hjálparsamtökunum
ACT, Æskulýðssamband þjóðkirkjunnar (ÆSKÞ) er í samstarfi við European Fellowship
of Christian Churches, Æskulýðssamband kirkjunnar í Reykjavíkurprófastsdæmum
(ÆSKR) er í samstarfi við Ecumenical Youth Council of Europe.
3. Framtíðarsýn í samkirkjulegu starfi
Kristin kirkja er kölluð til að vinna að einingu kristins fólks, bræðra okkar og systra.
Við erum kölluð til að starfa með þeim að því að breiða út fagnaðarerindið í orði og
verki og vinna að því að við getum í sátt mæst við altarisborðið.
Samkirkjulegt starf er mikilvægur þáttur í starfi kirkjunnar og kemur öllum skírðum
einstaklingum við.
Samkirkjulegt starf hérlendis og erlendis minnir okkur á ábyrgð okkar á náunganum
og er þáttur í því að vinna að réttlæti öllum til handa, friði og verndun sköpunarinnar.
4. Markmið samkirkjulegs starfs þjóðkirkjunnar
Þjóðkirkjan vill vinna að sýnilegri einingu kirkjunnar. Við viljum geta haft sameiginlegt
helgihald.
i. Við störfum með samkirkjulegum samtökum, hérlendis og erlendis, að því sem
eykur samstöðu, t.d. samræður um guðfræði í heiminum.
ii. Við biðjum fyrir einingu kirkjunnar, fyrir öðrum kirkjudeildum og kristnu fólki
um allan heim.
Við erum hluti hinnar alþjóðlegu kirkju Krists og við berum ábyrgð í kristnu
samfélagi
iii. Við tökum þátt í alþjóðlegu starfi sem stuðlar að einingu kirkjunnar.
iv. Við leggjum okkar af mörkum til að aðstoða kirkjur sem eiga undir högg að
sækja.
v. Við leggjum áherslu á að fræða söfnuðina um ólíkar kirkjudeildir og ólíkar
aðstæður.
vi. Við hvetjum söfnuði þjóðkirkjunnar til að leggja sitt af mörkum í hjálparstarfi á
erlendum vettvangi, t.d. með því að styrkja skipulagt kirkjulegt hjálparstarf.
5. Áætlun
Til þess að ná þessum markmiðum leggjum við áherslu á samkirkjulegt starf á sviði
safnaðarins, prófastsdæmisins og biskupsdæmisins.