Jökull - 01.12.2006, Page 91
Jöklabreytingar 2004–2005
2. mynd. Línurit sem sýnir fylgni milli meðalhita sumars í Stykkishólmi (fenginn hjá Veðurstofu Íslands) og
árlegra breytinga á sporði Sólheimajökuls (5 ára hlaupandi meðaltal). – Annual variations of the terminus
of Sólheimajökull compared with mean summer temperature in Stykkishólmur (5-year running mean). Teikn-
ing/Drawing: Bergur Einarsson.
20. öld. Ekki varð komist í austasta merkið fyrr en að
áliðnum vetri.
Svínafellsjökull – Mælt er niður bratta öldu en komið
er þar á slétt land svo Guðlaugur býst við að jökullinn
styttist ört úr þessu. Komið er lón við Hafrafell.
Falljökull – Guðlaugur setti nýtt merki í fyrra og var
nú einungis mælt frá því.
Í yfirliti Helga Björnssonar á Kvískerjum frá 31.
október 2005 má fræðast um margt sem snýr að verk-
um jöklamælingamannsins. Þar segir meðal annars:
„Við bræður [Hálfdán] vorum reyndar báðir saman í
þessum ferðum eins og að undanförnu. Til þess not-
uðum við jeppa og svo bát til að komast yfir Breiðá og
dráttarvél til að flytja bátinn. Auðvelt er að komast að
sporði Breiðamerkurjökuls upp af Nýgræðum. Þar er
jökulbotninn fremur sléttur og Nýgræðnakvíslin var
vel væð.
Öðru máli gegnir þar sem mælt er nær Breiða-
merkurfjalli því að Breiðárlón nær orðið góðan spöl
vestur fyrir mælingarstaðinn. Við mældum þar áfram
yfir lónið í jökulvegginn á móti með fjarlægðarmæli
sem við höfum að láni.
Sker eða eyja er að koma undan jökulsporðinum
þar skammt fyrir austan. Við fórum þangað á bátnum
og könnuðum landnám plantna eins og á fleiri skerjum
þar nálægt. Athyglisvert er að finna þar vel þroskaðar
plöntur eins og skriðlíngresi aðeins fáa metra frá jök-
ulbrúninni þar sem jökull lá yfir í fyrrasumar. Breyt-
ing hefur orðið á lóninu, sem er meðfram Breiðamerk-
urfjalli að austan, því að ekki er lengur framrás úr því
syðra megin, heldur norðan megin og þá aðeins læk-
irnir, sem koma frá fjallshlíðinni þar á móti, því að
Deildará, sem kemur úr Jökuldal, rennur ekki heldur í
þetta lón, heldur stystu leið í Breiðárlón. Enda sýndist
JÖKULL No. 56, 2006 89