Jökull - 01.12.2006, Side 96
Society report
Jarðfræðafélag Íslands
Skýrsla stjórnar fyrir starfsárið 2005
Í stjórn Jarðfræðafélagsins störfuðu Ármann Hösk-
uldsson (formaður), Börge Johannes Wigum (vara-
form.), Bjarni Richter (gjaldkeri), Kristín Vogfjörð,
Rikke Petersen (vefsíðustjóri), Andri Stefánsson (rit-
ari) og Steinunn Hauksdóttir.
Alls eru nú um 269 félagar skráðir í félagið. Störf
félagsins voru með hefðbundnum hætti á árinu. Vor-
fundur og aðalfundur félagsins voru haldnir 9. apríl og
haustfundur 9. nóvember. Haustferð félagsins var far-
in 12. nóvember. Einn fyrirlestur var haldinn á vegum
félagsins þann 11. október. Sigrún Hreinsdóttir talaði
um Denali jarðskjálftann í Alaska árið 2002. Fyrir-
lesturinn var vel sóttur. Fyrirlestrarhald félagsins hef-
ur minnkað stórum, einkum vegna mikils framboðs
fyrirlestra á vegum stofnanna. Er það vísbending um
mikla grósku í faginu og verður að teljast ánægjuleg
þróun.
Vorfundur félagsins fór fram 9. apríl. Hann var
haldinn í Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands.
Fundinn sóttu um 85 félagar. Alls voru kynntar nið-
urstöður um 46. verkefna með fyrirlestrum og vegg-
spjöldum. Í ár var fundurinn aftur settur upp í tveim
sölum og tókst í alla staði vel.
Haustfundur félagsins fór fram 9. nóvember og
var helgaður mannvirkjarannsóknum á Íslandi. Sá
fundur var einnig haldinn í Öskju. Um var að ræða
hálfsdagsfund að venju. Á fundinn mættu um 62
félagar. Alls voru flutt 10 erindi á fundinum. Í
lokin voru svo pallborðsumræður um stöðu mann-
virkjajarðfræði á Íslandi. Birgir Jónsson prófessor við
verkfræðideild Háskóla Íslands hóf fundinn með er-
indi og skilgreiningu á mannvirkjajarðfræði og tengsl-
um hennar við verklega jarðfræði og jarðverkfræði.
Matthías Loftsson hjá Hönnun hf, flutti næst erindi
um grunnrannsóknir í tengslum við mannvirkjagerð.
Atli Karl Ingimarsson einnig hjá Hönnun hf, fjallaði
um jarðfræðilegt eftirlit við jarðgangagerð. Þorgeir S.
Helgason hjá Petromodeli ehf fjallaði um eiginleika
steinefna og prófanir á þeim. Snorri P. Snorrason hjá
Almennu verkfræðistofunni hf, fjallaði um jarðfræði
neysluvatns. Haukur Einarsson hjá Hönnun hf fjall-
aði um mat á umhverfisáhrifum. Ómar Bjarki Smára-
son fjallaði um Grjótnám fyrir brimvarnir á Íslandi og
annarstaðar í heiminum. Hersir Gíslason og Hafdís
Eygló Jónsdóttir fóru yfir námur á Íslandi og korta-
grunn tengdum þeim. Að lokum fjallaði Ingvar Atli
Sigurðsson um verndun jarðminja og nýlega skýrslu
sem fjallar um þau mál.
Haustferð félagsins var farin laugardaginn 12.
nóvember og var ferðinni heitið að Kárahnjúkum til
að kynna fyrir félagsmönnum virkjanaframkvæmdir
þar eystra. Alls fór 51 félagi í ferðina. Flogið var
með Flugfélagi Íslands til Egilstaða og þaðan farið
um á rútu frá Austfjarðarleið. Almennt voru þátttak-
endur ánægðir með viðtökur og kynningar þar eystra.
Vinsældir haustferða fara stöðugt vaxandi og er það
ánægjuefni, enda upplagt til að miðla þekkingu úr
mörkinni til félagsmanna.
Nefndir
Eftirfarandi nefndir störfuðu á vegum félagsins árið
2005. Ritnefnd Jökuls – Fulltrúar félagsins í ritnefnd
Jökuls eru Áslaug Geirsdóttir, ritstjóri, Karl Grön-
vold og Kristján Sæmundsson. Samráðsnefnd Jarð-
vísindastofnanna – Ármann Höskuldsson. Sigurð-
arsjóður – Ármann Höskuldsson (form.), Freysteinn
Sigmundsson og Kristín Vogfjörð. Sigurðarmedalía –
Freysteinn Sigmundsson (form.), Ármann Höskulds-
son og Olgeir Sigmarsson. Orðanefnd – Haukur Jó-
hannesson (form.), Freysteinn Sigurðsson og Sigurð-
ur Sveinn Jónsson. Siðanefnd – Steinunn Hauksdóttir
(form.), Helgi Torfason, Kristján Ágústsson og Þor-
valdur Þórðarson. EFG – Helgi Torfason og Páll Hall-
dórsson. IUGS (nefnd skipuð af umhverfisráðherra) –
Ekki hefur verið óskað eftir tilnefningu JFÍ.
Ármann Höskuldsson
94 JÖKULL No. 56, 2006