Jökull - 01.12.2006, Side 98
Magnús T. Guðmundsson
Alexander Ingimarsson sá um félagaskrá og var að
auki umsjónarmaður húsnæðis í Mörkinni 6. Steinunn
Jakobsdóttir sá um erlenda áskrift Jökuls.
FÉLAGATAL
Skráðir félagar er nú 480. Heiðursfélagar er 11, al-
mennir félagar 406, fjölskyldufélagar 7, fyrirtæki og
stofnanir 41 og námsmenn 15. Einnig eru um 50
bréfafélagar auk þess sem Jökull er sendur 7 fjölmiðl-
um og erlendir áskrifendur eru rúmlega 60.
FJÁRMÁL
Fjárhagur félagsins er viðunandi og fjárhagsstaðan
traust. Hinsvegar er ljóst að ýmis kostnaður hefur vax-
ið töluvert á síðustu árum, t.d. póstburðargjöld, gjöld
af vefsetri, húsaleiga vegna bíls og fleira. Stjórn fé-
lagsins þarf því jafnan að fylgjast vel með útgjöldum
og leita leiða til að halda rekstrinum sem hagkvæm-
ustum og styrkja og efla fjáröflunarleiðir félagsins.
Nánar er fjallað um fjármálin af gjaldkera þegar hann
kynnir reikninga félagsins.
RANNSÓKNIR
Rannsóknir sem félagið kom að fóru einkum fram
í vorferð á Vatnajökul, ágústferð á Vatnajökul og í
sporðamælingum félagsmanna. Að auki studdi félag-
ið beint og óbeint við fleiri verkefni.
Vorferð
Vorferðin, sú 53. í röðinni, var farin 3.–12. júní. Þátt-
takendur voru 24 en að auki voru fjórir sem héldu til
byggða mánudaginn 6. júní. Að venju var unnið að
margvíslegum verkefnum í ferðinni, s.s. mælingum
á vatnshæð Grímsvatna, vetrarafkomu í Grímsvötn-
um, á Háubungu og Bárðarbungu, GPS landmæling-
um, þyngdarmælingum, kortlagningu jökulyfirborðs
í Grímsvötnum og Gjálp, athugunum á gosstöðvum
í Grímsvötnum frá 2004, kortlagningu gjóskulags-
ins frá gosinu 2004, mælingum á ísskriði í Gjálp og
Skaftárkötlum, vitjað var um veðurstöðvar og unnið
að viðhaldi á gufurafstöðvum á Grímsfjalli. Félagið
naut góðs stuðnings frá Landsvirkjun og Vegagerð-
inni eins og oft áður. Landsvirkjun sá til þess að
snjóbíll Hjálparsveitar Skáta í Reykjavík var með í
för og nýttist hann mjög vel við að gera gryfjur nið-
ur að gjóskulaginu í Grímsvötnum. Auk sjálfboðaliða
JÖRFÍ tóku starfsmenn Jarðvísindastofnunar Háskól-
ans, Veðurstofunnar og Landsvirkjunar þátt í ferðinni.
Einnig var með okkur ungur vísindamaður frá Spáni,
sem hingað kom til að fræðast um gosmyndanir í jökli.
Ferð á Vatnajökul í ágúst
Vegna eldgossins í nóvember haustið áður og vegna
þess verkefnis að mæla með nýjustu tækni (GPS) þrí-
hyrninganetið frá 6. áratugnum var farin ferð á Vatna-
jökul dagana 6.–14. ágúst. Landsvirkjun tók einnig
þátt í ferðinni í þeim tilgangi að vitja um sjálfvirk-
ar veðurstöðvar á jöklinum, og hliðraði þeirri árvissu
ferð sinni til að hægt væri að vinna öll þessi verkefni
samtímis. Einn hluti hópsins hélt austur á Goðahnúka
og var lengst af þar eða í Kverkfjöllum við mæling-
ar. Tókst að mæla inn gömlu merkin og setja upp ný
á hentugri stöðum fyrir GPS mælingar. Í Grímsvötn-
um var unnið að rannsóknum á gígnum frá 2004 og
farið var niður á Skeiðarárjökul til að safna sýnum af
gjóskulögum frá 19. öld sem þar er að finna ofarlega
á leysingarsvæðinu. Tókust allar þessar rannsóknir
með ágætum. Jökullinn var mjög leiðinlegur yfirferð-
ar austan til og sagði það til sín á heimleið, því þá
biluðu allir bílar og svo fór að skilja varð einn eftir
undir Eyjafjöllum.
Sporðamælingar
Nú í febrúar höfðu borist 36 skýrslur um sporðamæl-
ingar til Odds Sigurðssynar, umsjónarmanns mæling-
anna. Langflestir jöklar hopa eins og undanfarin ár
en þó minna en 2003 og 2004 enda var síðastliðið
sumar bæði styttra og kaldara en tvö undangengin ár.
Gaman er að geta þess að starf félagsins og sú saga
sem sporðamælingarnar geyma vekur æ meiri athygli
erlendra fjölmiðla. Oddur sendi eftirfarandi lista yfir
greinar, viðtöl og upplýsingagjöf til ýmissra aðila er-
lendis um Jöklarannsóknafélagið og jöklabreytingar á
Íslandi:
1) Iceland’s glacier - keepers; grein í Toronto Star 20.
mars 2004.
2) The Climate of Man-1; grein í The New Yorker 25.
apríl 2005.
3) Viðtal í beinni útsendingu við Canadian Broa-
dcasting Corporation, Radio One 11. maí 2005.
96 JÖKULL No. 56, 2006