Jökull - 01.12.2006, Page 101
Jöklarannsóknafélag Íslands
í betra standi en verið hefur í mörg ár. Svo er að sjá að
GPS landmælingar henti sérstaklega vel til viðhalds
á þessum húsum enda krefjast mælingarnar þess að
beðið sé í sólarhring á hverjum stað meðan nægileg-
um gögnum er safnað. Mun skálanefndin vera mjög
hliðholl þessum rannsóknum. Enda veitir ekki af að
nota sem flestar leiðir til að sinna viðhaldi skálanna.
Ábyrgð skálanefndar er mikil og hún þarf að vinna
mikið starf til að halda í horfinu. Þetta hefur nefndin
gert með myndarbrag og jafnframt unnið að stöðugum
endurbótum síðastliðin ár.
BÍLAMÁL
Fordinn var notaður í vorferð, ágústferð á Vatnajökul
og vinnuferðir skálanefndar. Á fyrri hluta ársins voru
endurbætur kláraðar með nýjum brettaköntum og aur-
hlífum. Bílanefndin hefur aðstöðu í Hafnarfirði þar
sem húsnæði er leigt undir bílinn. Þar hittist nefndin
og vinnur að endurbótum og viðhaldi. Nýtt húsnæði
hefur fengist í Reykjavík hjá Hafliða Bárði, gömlum
bílanefndarmanni og reiknar nefndin með að komast
þar inn á vormánuðum. Bíllinn nýttist vel í þeim ferð-
um sem hann fór en viðhald og viðgerðir eru kostnað-
arsamar eins og yfirleitt er með bíla af þessari gerð.
ÁRSHÁTÍÐ
Árshátíð félagsins var haldin laugardaginn 19. nóvem-
ber. Fordrykkur var í boði Polaris umboðsins í nýju
húsnæði þess á Höfða. Þaðan var haldið með rútubíl
að félagsheimilinu Görðum á Álftanesi þar sem haldin
var sérlega vel heppnuð árshátíð. Hljómsveitin Fönn
lék fyrir dansi.
STEFNUMÓTUNARNEFND
Stefnumótunarnefnd starfaði lítið á árinu en hefur tek-
ið mjög við sér eftir síðustu áramót. Ekki tókst að
ljúka starfinu nú fyrir aðalfundinn en það er langt
komið. Varaformaður félagsins mun gera frekari grein
fyrir vinnu nefndarinnar undir liðnum önnur mál hér
á eftir.
LOKAORÐ
Töluverð breyting mun verða á stjórn félagsins á
þessu fundi. Einn aðalstjórnarmaður hættir og þrír
ganga úr varastjórn. Halldór Gíslason yngri hefur ver-
ið lykilmaður í bílanefnd og vorferðum í 15 ár en hann
er nú fluttur til Noregs. Kraftur hans og smitandi vinn-
ugleði er í minnum höfð og við eigum vonandi eftir
að fá hann með okkur öðru hvoru þó nú sé vík milli
vina. Hannes Haraldsson er búinn að vera lykilmaður
í félaginu í 30 ár, máttarstólpi vorferðanna og helsti
tengiliður okkar við Landsvirkjun. Hann mun halda
öllu þessu áfram en vill nú rýma til í stjórn fyrir nýju
fólki. Bryndís Brandsdóttir tekur sömu afstöðu enda
segir hún að ritstjórn Jökuls sé ærið starf. Við sem
til þekkjum vitum að þetta er síst ofmælt og þökkum
fyrir að fá að njóta krafta Bryndísar áfram á þeim vett-
vangi. Sverrir Elefsen hefur einnig ákveðið að draga
sig í hlé frá stjórnarstörfum en hann gegnir erilsömu
starfi hjá Vatnamælingum. Sverrir hefur séð um frétta-
bréfið með miklum glæsibrag. Vil ég nota tækifærið
hér og þakka þessum fráfarandi stjórnarmönnum fyrir
farsælt og ánægjulegt samstarf.
Magnús Tumi Guðmundsson
JÖKULL No. 56, 2006 99