Fréttablaðið - 29.10.2018, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 29.10.2018, Blaðsíða 13
Vildarbörn Icelandair Tuttugu börnum og fjölskyldum þeirra, samtals rúmlega eitt hundrað manns, var í dag afhentur ferðastyrkur úr sjóðnum Vildarbörn Icelandair. Alls hafa 645 fjölskyldur notið stuðnings sjóðsins frá stofnun hans fyrir 15 árum og var úthlutunin í dag sú 31. í röðinni. Sjóðurinn er fjármagnaður með beinu fjárframlagi Icelandair, frjálsum framlögum félaga í Saga Club Icelandair, með söfnun myntar og sölu Vildarengilsins um borð í flugvélum Icelandair, söfnunarbaukum á Keflavíkurflugvelli og söluskrifstofum Icelandair. Einnig koma til frjáls framlög og viðburðir. Starfsemi Vildarbarna Icelandair byggir á hugmyndum og starfi Peggy Helgason, sem hefur um árabil unnið sem sjálfboðaliði á barnadeildum sjúkrahúsa í Reykjavík. Vigdís Finnbogadóttir er verndari sjóðsins. Markmið sjóðsins er að gefa langveikum börnum, foreldrum þeirra og systkinum, tækifæri til þess að fara í draumaferð sem þau ættu annars ekki kost á. Líkt og við úthlutun styrkjanna undanfarið afhentu Sambíóin börnunum bíómiða. ÍS L E N S K A S IA .I S I C E 8 99 35 1 0 /1 8 Á myndinni má sjá styrkþega ásamt stjórnendum Vildarbarna. Það er auðvelt að gerast Vildarvinur – allar upplýsingar er að finna á www.vildarborn.is 2 9 -1 0 -2 0 1 8 0 4 :4 5 F B 0 4 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 1 3 5 -8 C E C 2 1 3 5 -8 B B 0 2 1 3 5 -8 A 7 4 2 1 3 5 -8 9 3 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 8 s _ 2 8 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.