Fréttablaðið - 29.10.2018, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 29.10.2018, Blaðsíða 11
E itthvað það rosa­legasta sem ég hef orðið vitni að á ævinni eru slagsmál drag­drottninga og nýnasista á McDonald’s í Covent Garden í London um miðja nótt einhvern tímann í kringum árið 2000. Vinahópurinn fór oft út að skemmta sér á næturklúbbi fyrir samkynhneigða þarna í hverfinu. Hann hét Heaven. Einn af okkur var ljósamaður þar. Við fengum því ókeypis inn og framfyrir í röð, sem þóttu mikil gæði á náms­ árum. Kynhneigð var aukaatriði. Eina laugardagsnóttina eftir gott skrall vorum við stödd nokkur úti á götu fyrir framan þennan McDonald’s stað og allt í einu gerðist þetta. Staðurinn sprakk. Allt logaði í slagsmálum. Um það bil tíu drag drottningum af Heaven lenti saman við álíka marga svart­ klædda og krúnurakaða nýnasista í tryllingslegum hópslagsmálum. Stólar og borð flugu. Hnefar voru á lofti. Gestir hlupu út í offorsi. Starfsmenn þutu um ráðalausir. Löggubíla dreif að. Ein mynd er mér svo í fersku minni frá þessum atburði — þaðan sem ég horfði agndofa hinum megin við götuna, inn um glugg­ ann — að hún er eins og málverk í huganum. Stór og sterklegur klæðskiptingur með síða svarta hárkollu, í glimmertoppi, stuttu þröngu pilsi og háum leðurstígvél­ um stendur uppi á borði og sveiflar stól í áttina að hópi nýnasista sem nálgast hann eins og hoppandi púkar. Hann stóð þarna eins og leiðtogi hins frjálslynda heims, studdur hópi klæðskiptinga fyrir aftan sig. Karlar í pilsum, háum hælum, sokkum, sokkaböndum, í brjóstahöldurum og stífmálaðir í framan stóðu þarna í fylkingu eins og framvarðasveit mannréttinda og umburðarlyndis, gegn hatri. Nasistarnir allir svartklæddir. Allir krúnurakaðir. Allir eins. Hvað aflsmuni varðaði virtist þetta jafn slagur. Ég verð þó að viðurkenna að það hefur ætíð verið mér upp­ örvandi og á einhvern hátt ánægju­ leg staðreynd að klæðskiptingarnir gáfu nákvæmlega ekkert eftir. Ekki tommu. Nasistarnir fengu að finna fyrir því. Enginn meiddist alvarlega. Lögreglan náði að skakka leikinn. Allt í einu, jafn skyndilega og allt þetta hófst, færðist ró yfir svæðið. Margir voru eftir sig. Einn gestur á staðnum, hvorki klæðskiptingur né nasisti, sagði okkur hvernig þetta hafði byrjað. Eftir taumlaus­ an hatursorðaflaum frá nýnasist­ um, móðganir og ögranir, sprungu drottningarnar og svöruðu fyrir sig. Framhaldið sáum við. Hin eilífa orrusta Þessi atburður hefur ætíð fylgt mér í huganum, vaxið þar og dafnað. Smám saman hefur það orðið mér ljóst að þarna varð ég vitni að smárri en kristaltærri útgáfu af nákvæmlega þeirri orrustu sem alltaf virðist eiga sér stað í heiminum, aftur og aftur. Sífellt og endalaust. Þetta er baráttan sem ætíð þarf að heyja, virðist vera, fyrir mannréttindum, frelsi, umburðarlyndi og víðsýni. Fyrir því að fólk fái að vera það sem það er, óáreitt. Þetta er stríðið gegn hatrinu, forræðishyggjunni, for­ dómunum og kúguninni. Skrifaði ekki hinn merki sagnfræðingur Hér á Íslandi finnst mér sífellt eitthvert fólk reyna að espa alls konar hópa upp í stríð og skæting gegn hver öðrum. Konur gegn körlum. Verkalýður gegn auðvaldi. Vinstri menn gegn hægri mönnum. Stór og sterklegur klæð- skiptingur með síða svarta hárkollu, í glimmertoppi, stuttu þröngu pilsi og háum leðurstígvélum stendur uppi á borði og sveiflar stól í áttina að hópi nýnasista sem nálgast hann eins og hopp- andi púkar. Guðmundur Steingrímsson Í dag The board of CCP ehf. and its majority shareholder, Pearl Abyss Iceland ehf., reg. no. 660218-1570 have unanimously decided to approve the redemption of CCP’s shares following Pearl Abyss Iceland ehf.’s acquisition of 99.99% of CCP’s outstanding share capital. The acquisition was made pursuant to a share purchase agreement relating to shares in CCP dated 6 September 2018 (a copy of which is available for inspection at CCP’s offices). CCP is happy to report that 99.99% of shareholders agreed to participate as sellers under the terms of the share purchase agreement and signed documentation to that effect without any objections. The redemption price offered to all remaining shareholders is based on the same valuation as applied in the share purchase agreement. The redemption price amounts to USD 20.384 per share, with further possibilities of receiving Earn-Out Payments as provided for under the terms of the SPA. Any outstanding shareholders are hereby prompted to reach out to CCP and initiate the transfer of their shares to Pearl Abyss Iceland ehf. within four weeks from the publication of this notice, 29 October 2018. Pursuant to Article 16 of Act No. 138/1994 on Private Limited Companies minority shareholders shall be informed and made aware that should they disagree with the basis and calculation of the redemption price they are being offered, they can request a second opinion from court appointed assessors. Should the court appointed assessors determine a higher redemption price than already offered, then that shall apply for all minority shareholders, irrespective of which minority shareholder made the initial request for court appointed assessors. Direct cost for the appointment of the assessors and their work shall be borne by the shareholder requesting redemption unless otherwise determined by the courts due to special circumstances. A notification with further details has been sent by email to registered shareholders that have registered their email address with CCP. For further information please direct all queries to minority@ccpgames.com. Respectfully, CCP ehf. NOTICE OF REDEMPTION OF SHARES IN CCP EHF. Slagurinn á McDonald’s Bolsonaro , hommafóbía hans og kvenfyrirlitning hefur hlotið rífandi hljómgrunn. Í Bandaríkj­ unum eys Trump hinu sama yfir land og lýð. Víða í Evrópu — meira að segja á Norðurlöndum — skýtur kynþáttahyggja aftur rótum. Því segi ég þetta: Í rifrildum á Facebook hér á Íslandi um alls kyns fánýta hluti ætla ég ekki að taka þátt. En bærist mér hins vegar herkvaðning frá klæðskiptingum til orrustu gegn nasistum skyldi ég keikur smella mér í pils og leður­ stígvél og storma inn á vígvöllinn stífmálaður í framan í nafni mann­ réttinda. Eric Hobsbawm einmitt þykka bók — Age of Extremes — um það hvernig seinni heimsstyrjöldin var háð um þessi gildi? Frelsið gegn fordómunum. Lýðræðið gegn einræðinu. Klæðskiptingar gegn nasistum. Og mikið rosalega munaði litlu að hatrið ynni. Það getur ennþá unnið. Fánýt stríð Hér á Íslandi finnst mér sífellt eitt­ hvert fólk reyna að espa alls konar hópa upp í stríð og skæting gegn hver öðrum. Konur gegn körlum. Verkalýður gegn auðvaldi. Vinstri menn gegn hægri mönnum. Ég verð oft ringlaður á þessu. Ég finn mig engan veginn í þessum dilkadráttum. Mér finnst Ísland vera fámenn eyja þar sem er jú fullt af viðfangsefnum. Alls konar úrlausnarefni. Það þarf að gæta að jöfnuði. Það þarf að passa að hér ríki jafnrétti kynja. Við viljum ekki fávitaskap. Við þurfum að tala betur saman. Leita lausna. Mér finnst þetta eiginlega svo borð­ leggjandi að ég nenni ekki að rífast um það. Aðeins ein barátta milli hópa og lífsgilda þeirra finnst mér vera raunveruleg. Hún á sér stað í heiminum öllum. Ég er óendanlega stoltur af því að Ísland tilheyrir hópi ríkja þar sem mannréttindi eru í hávegum höfð og frjálslyndi ríkir. Fólk getur verið það sjálft. En þetta er ekki alls staðar svona. Og blikur eru á lofti. Talsmenn haturs og fordóma eru að ná fótfestu víða. Þegar þetta er skrifað standa forsetakosn­ ingar yfir í Brasilíu. Hatursáróður S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 11M Á n u d a g u R 2 9 . o k T ó B e R 2 0 1 8 2 9 -1 0 -2 0 1 8 0 4 :4 5 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 1 3 5 -8 7 F C 2 1 3 5 -8 6 C 0 2 1 3 5 -8 5 8 4 2 1 3 5 -8 4 4 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 8 s _ 2 8 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.