Fréttablaðið - 29.10.2018, Síða 11
E itthvað það rosalegasta sem ég hef orðið vitni að á ævinni eru slagsmál dragdrottninga og nýnasista á McDonald’s í Covent
Garden í London um miðja nótt
einhvern tímann í kringum árið
2000. Vinahópurinn fór oft út að
skemmta sér á næturklúbbi fyrir
samkynhneigða þarna í hverfinu.
Hann hét Heaven. Einn af okkur
var ljósamaður þar. Við fengum
því ókeypis inn og framfyrir í röð,
sem þóttu mikil gæði á náms
árum. Kynhneigð var aukaatriði.
Eina laugardagsnóttina eftir gott
skrall vorum við stödd nokkur
úti á götu fyrir framan þennan
McDonald’s stað og allt í einu
gerðist þetta. Staðurinn sprakk.
Allt logaði í slagsmálum. Um það
bil tíu drag drottningum af Heaven
lenti saman við álíka marga svart
klædda og krúnurakaða nýnasista
í tryllingslegum hópslagsmálum.
Stólar og borð flugu. Hnefar voru
á lofti. Gestir hlupu út í offorsi.
Starfsmenn þutu um ráðalausir.
Löggubíla dreif að.
Ein mynd er mér svo í fersku
minni frá þessum atburði — þaðan
sem ég horfði agndofa hinum
megin við götuna, inn um glugg
ann — að hún er eins og málverk
í huganum. Stór og sterklegur
klæðskiptingur með síða svarta
hárkollu, í glimmertoppi, stuttu
þröngu pilsi og háum leðurstígvél
um stendur uppi á borði og sveiflar
stól í áttina að hópi nýnasista sem
nálgast hann eins og hoppandi
púkar. Hann stóð þarna eins og
leiðtogi hins frjálslynda heims,
studdur hópi klæðskiptinga fyrir
aftan sig. Karlar í pilsum, háum
hælum, sokkum, sokkaböndum, í
brjóstahöldurum og stífmálaðir í
framan stóðu þarna í fylkingu eins
og framvarðasveit mannréttinda
og umburðarlyndis, gegn hatri.
Nasistarnir allir svartklæddir. Allir
krúnurakaðir. Allir eins. Hvað
aflsmuni varðaði virtist þetta jafn
slagur. Ég verð þó að viðurkenna
að það hefur ætíð verið mér upp
örvandi og á einhvern hátt ánægju
leg staðreynd að klæðskiptingarnir
gáfu nákvæmlega ekkert eftir. Ekki
tommu. Nasistarnir fengu að finna
fyrir því.
Enginn meiddist alvarlega.
Lögreglan náði að skakka leikinn.
Allt í einu, jafn skyndilega og allt
þetta hófst, færðist ró yfir svæðið.
Margir voru eftir sig. Einn gestur á
staðnum, hvorki klæðskiptingur
né nasisti, sagði okkur hvernig
þetta hafði byrjað. Eftir taumlaus
an hatursorðaflaum frá nýnasist
um, móðganir og ögranir, sprungu
drottningarnar og svöruðu fyrir
sig. Framhaldið sáum við.
Hin eilífa orrusta
Þessi atburður hefur ætíð fylgt mér
í huganum, vaxið þar og dafnað.
Smám saman hefur það orðið
mér ljóst að þarna varð ég vitni
að smárri en kristaltærri útgáfu
af nákvæmlega þeirri orrustu
sem alltaf virðist eiga sér stað í
heiminum, aftur og aftur. Sífellt
og endalaust. Þetta er baráttan
sem ætíð þarf að heyja, virðist
vera, fyrir mannréttindum, frelsi,
umburðarlyndi og víðsýni. Fyrir
því að fólk fái að vera það sem það
er, óáreitt. Þetta er stríðið gegn
hatrinu, forræðishyggjunni, for
dómunum og kúguninni. Skrifaði
ekki hinn merki sagnfræðingur
Hér á Íslandi finnst mér
sífellt eitthvert fólk reyna að
espa alls konar hópa upp í
stríð og skæting gegn hver
öðrum. Konur gegn körlum.
Verkalýður gegn auðvaldi.
Vinstri menn gegn hægri
mönnum.
Stór og sterklegur klæð-
skiptingur með síða svarta
hárkollu, í glimmertoppi,
stuttu þröngu pilsi og háum
leðurstígvélum stendur
uppi á borði og sveiflar stól í
áttina að hópi nýnasista sem
nálgast hann eins og hopp-
andi púkar.
Guðmundur
Steingrímsson
Í dag
The board of CCP ehf. and its majority shareholder, Pearl Abyss Iceland ehf.,
reg. no. 660218-1570 have unanimously decided to approve the redemption
of CCP’s shares following Pearl Abyss Iceland ehf.’s acquisition of 99.99% of
CCP’s outstanding share capital. The acquisition was made pursuant to a
share purchase agreement relating to shares in CCP dated 6 September 2018
(a copy of which is available for inspection at CCP’s offices).
CCP is happy to report that 99.99% of shareholders agreed to participate as
sellers under the terms of the share purchase agreement and signed
documentation to that effect without any objections. The redemption price
offered to all remaining shareholders is based on the same valuation as
applied in the share purchase agreement. The redemption price amounts to
USD 20.384 per share, with further possibilities of receiving Earn-Out
Payments as provided for under the terms of the SPA.
Any outstanding shareholders are hereby prompted to reach out to CCP and
initiate the transfer of their shares to Pearl Abyss Iceland ehf. within four
weeks from the publication of this notice, 29 October 2018.
Pursuant to Article 16 of Act No. 138/1994 on Private Limited Companies
minority shareholders shall be informed and made aware that should they
disagree with the basis and calculation of the redemption price they are
being offered, they can request a second opinion from court appointed
assessors. Should the court appointed assessors determine a higher
redemption price than already offered, then that shall apply for all minority
shareholders, irrespective of which minority shareholder made the initial
request for court appointed assessors. Direct cost for the appointment of the
assessors and their work shall be borne by the shareholder requesting
redemption unless otherwise determined by the courts due to special
circumstances.
A notification with further details has been sent by email to registered
shareholders that have registered their email address with CCP.
For further information please direct all queries to minority@ccpgames.com.
Respectfully,
CCP ehf.
NOTICE OF REDEMPTION
OF SHARES IN CCP EHF.
Slagurinn á McDonald’s
Bolsonaro , hommafóbía hans
og kvenfyrirlitning hefur hlotið
rífandi hljómgrunn. Í Bandaríkj
unum eys Trump hinu sama yfir
land og lýð. Víða í Evrópu — meira
að segja á Norðurlöndum — skýtur
kynþáttahyggja aftur rótum.
Því segi ég þetta: Í rifrildum á
Facebook hér á Íslandi um alls
kyns fánýta hluti ætla ég ekki að
taka þátt. En bærist mér hins vegar
herkvaðning frá klæðskiptingum
til orrustu gegn nasistum skyldi ég
keikur smella mér í pils og leður
stígvél og storma inn á vígvöllinn
stífmálaður í framan í nafni mann
réttinda.
Eric Hobsbawm einmitt þykka
bók — Age of Extremes — um það
hvernig seinni heimsstyrjöldin
var háð um þessi gildi? Frelsið
gegn fordómunum. Lýðræðið
gegn einræðinu. Klæðskiptingar
gegn nasistum. Og mikið rosalega
munaði litlu að hatrið ynni. Það
getur ennþá unnið.
Fánýt stríð
Hér á Íslandi finnst mér sífellt eitt
hvert fólk reyna að espa alls konar
hópa upp í stríð og skæting gegn
hver öðrum. Konur gegn körlum.
Verkalýður gegn auðvaldi. Vinstri
menn gegn hægri mönnum. Ég
verð oft ringlaður á þessu. Ég
finn mig engan veginn í þessum
dilkadráttum. Mér finnst Ísland
vera fámenn eyja þar sem er jú
fullt af viðfangsefnum. Alls konar
úrlausnarefni. Það þarf að gæta
að jöfnuði. Það þarf að passa að
hér ríki jafnrétti kynja. Við viljum
ekki fávitaskap. Við þurfum að tala
betur saman. Leita lausna. Mér
finnst þetta eiginlega svo borð
leggjandi að ég nenni ekki að rífast
um það.
Aðeins ein barátta milli hópa
og lífsgilda þeirra finnst mér vera
raunveruleg. Hún á sér stað í
heiminum öllum. Ég er óendanlega
stoltur af því að Ísland tilheyrir
hópi ríkja þar sem mannréttindi
eru í hávegum höfð og frjálslyndi
ríkir. Fólk getur verið það sjálft. En
þetta er ekki alls staðar svona. Og
blikur eru á lofti.
Talsmenn haturs og fordóma
eru að ná fótfestu víða. Þegar þetta
er skrifað standa forsetakosn
ingar yfir í Brasilíu. Hatursáróður
S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 11M Á n u d a g u R 2 9 . o k T ó B e R 2 0 1 8
2
9
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:4
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
3
5
-8
7
F
C
2
1
3
5
-8
6
C
0
2
1
3
5
-8
5
8
4
2
1
3
5
-8
4
4
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
2
8
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K