Fréttablaðið - 25.10.2018, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 25.10.2018, Blaðsíða 20
Frá degi til dags Halldór Útgáfufélag: torg ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is ritStjórar: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is fréttablaðið.iS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttablaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5800, ritstjorn@frettabladid.is helgarblað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is menning: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ljóSmyndir: Anton Brink anton@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is Staðreyndin er hins vegar sú að það er ekkert réttlætanlegt við fyrirlitn- ingu á hinu kyninu. Nú þegar hillir undir samdrátt í hagkerfinu eru skatta- lækkanir besta kjarabótin, því fáir fara betur með skattfé en greiðendur þess. Slakaðu á með Slökun g Lítil orka g Þróttleysi g Veik bein g Hormóna ójafnvægi g Svefntruflanir g Vöðvakrampar, kippir og spenna g Kölkun líffæra g Óreglulegur hjartsláttur g Kvíði g Streita g Pirringur Einkenni magnesíum- skorts www.mammaveitbest.is Slakaðu á með Slökun g Lítil orka g Þróttleysi g Veik bein g Hormóna ójafnvægi g Svefntruflanir g Vöðvakrampar, kippir og spenna g Kölkun líffæra g Óreglulegur hjartsláttur g Kvíði g Streita g Pirringur Einkenni magnesíum- skorts www.mammaveitbest.is Slakaðu á með Slökun g Lítil orka g Þróttleysi g Veik bein g Hormóna ójafnvægi g Svefntruflanir g Vöðvakrampar, kippir og spenna g Kölkun líffæra g Óreglulegur hjartsláttur g Kvíði g Streita g Pirringur Einkenni magnesíum- skorts www.mammaveitbest.is lakaðu á eð lö g Lítil orka g Þróttleysi g Veik bein g Hormóna ójafnvægi g Svefntruflanir g Vöðvakrampar, ki pir og spe na g Kölkun líffæra g Óreglulegur hjartslá tur g Kvíði g Streita g Pi ringur Einke i agnesí skorts i t.i En sá sem reiður er, hann er vitlaus, sagði sá lærði maður Jón Vídalín. Svo margt djúp-viturt hafði Vídalín að segja um reiðina að kalla má hann mann allra tíma. Vissulega var það ekki skoðun Vídalíns að menn ættu aldrei að reiðast, hann gerði sér fylli- lega grein fyrir að til er nokkuð sem heitir réttlát reiði. Hann varaði hins vegar við þeirri reiði sem eitrar út frá sér og veldur sömuleiðis skaða þeim sem lætur hana taka af sér völdin. Reiði getur auðveldlega rænt mann viti og flæmir um leið skynsemina á braut. Hin áminnandi rödd Vídalíns er þó ekki líkleg til að slá í gegn á öllum stöðum. Vídalín myndi sem dæmi örugglega ekki fá mörg like á lokuðum Facebook- síðum þar sem kynin keppast við að koma rothöggi hvort á annað. Þar hópa karlmenn sig saman og níða niður konur sem þeim finnst ógna tilveru sinni, gott ef þær eru ekki komnar vel á veg með að leggja líf þeirra í rúst. Konur hafa síðan umráð yfir eigin Facebook-síðum þar sem karlmenn eru afgreiddir sem andstyggileg fyrirbæri sem séu stöðugt til leiðinda og ama. Á lokuðum Facebook-síðum baðar fólk sig í svívirðingum, reynir stöðugt að toppa hvað annað og finnst sér yfirleitt takast alveg ágætlega upp. Hið grimmilega kynjastríð á Facebook fer að mestu fyrir ofan garð og neðan hjá þorra fólks sem kemur ekki auga á ógnina sem á að felast í samskiptum við hitt kynið. Það sér fréttir af reiða fólkinu á netmiðlum fjölmiðla og að sjálfsögðu hváir það, því sjálfu myndi því aldrei koma til hugar að láta út úr sér hluti eins og sagðir eru á þessum síðum. Það þýðir ekki að fólk sem er yfirvegað sé skaplaust, það hefur skap, en er ekki svo illa innrætt og ókurteist að það leyfi sér að hella úr skálum reiðir sinnar yfir aðra. Almennt kann fólk sig og er annt um mannorð sitt. Enda verður það sér ekki auðveldlega til skammar, eins og fólkið á lokuðu Facebook-síðunum. Kannski er það bara ágæt skipting að fólk sem leggur greinilega ekkert upp úr kurteisi fái útrás fyrir gremju og frústrasjónir í lokuðum klúbbi, innan um einstaklinga sem eru orðnir fangar reiðinnar. Ein- hvers staðar verða vondir að vera. En ósköp hljómar það ankannalega þegar þessir einstaklingar neita að horfast í augu við að sitthvað sé athugavert við orð- bragð þeirra. Þeir segjast vera í heilagri baráttu fyrir mannréttindum sem hitt kynið vill hafa af þeim. Um leið á málstaðurinn að vera svo brýnn og mikilvægur að ekki sé hægt að vera á rangri braut. Staðreyndin er hins vegar sú að það er ekkert réttlætanlegt við fyrir- litningu á hinu kyninu. Eins og hinn góði og merki Vídalín benti á þá drepur sá sem lætur reiðina stjórna sér „gott mannorð sitt, hann drepur góða samvisku, já, sálina ef til vill, ef hann meltir reiðina með sér þar til hún úldnar í hjartanu.“ Þetta kallast svo sannarlega að hitta naglann á höfuðið! Vitleysa reiðinnar Meirihluti borgarstjórnar í Reykjavík felldi nýlega tillögu mína um lægri skatta á atvinnuhúsnæði. Skattar og gjöld borgarinnar eru flest í lög- bundnu hámarki. Samt hækkuðu skuldir á síðasta kjör- tímabili um 36 milljarða eða tæp 60%. Nýr meirihluti siglir áhyggjulaus sömu leið, því skuldir borgarsjóðs hafa vaxið um 650 milljónir á mánuði frá áramótum, eða um rúmar 22 milljónir á hverjum einasta degi það sem af er ári. Þrátt fyrir mikla árlega tekjuaukningu aukast útgjöld- in enn hraðar og þeir sjá sem vilja, að rekstur borgarinnar er ekki sjálfbær. Hinir fjölmörgu og stóru tekjustofnar duga samt ekki borginni. Í stað þess að lækka gjaldskrá Orkuveitu Reykjavíkur og rýmka þar með fjárráð borgar- búa er áætlað að borgin greiði sér 14 milljarða króna í arð á næstu fjórum árum. Gjaldskrárhækkanir fyrri ára eru með óbeinum hætti orðnar tekjustofn borgarinnar. Eru þá ótaldir íþyngjandi eignaskattar sem hækka leiguverð og minnka áhuga fyrirtækja og fólks á að búa og starfa í borginni. Hækkun eignaverðs skilar sér því miður ekki sjálfkrafa í veski borgarbúa í lok mánaðar. Nálgun Reykjavíkurborgar ætti að vera að skilgreina lögbundin verkefni sín, kostnaðargreina þau og afla síðan þeirra tekna sem til þarf. Meirihlutinn í borginni snýr þessu alveg á haus. Spáð er hversu mikið skattgreiðslur borgarbúa og fyrirtækja aukast og hversu mikið má auka skuldir. Þeim fjármunum er síðan ráðstafað í verkefni sem sátt ríkir um en ekki síður hin, sem alls engin sátt ríkir um. Nokkur þeirra hafa verið í umræðunni síðustu vikur en skyldu þau vera fleiri? Nauðsynlegt er að tryggja að umsvif borgarinnar fari ekki úr böndunum. Fylgjast þarf með að grunnþjónustu sé sinnt vel en fjármunum ekki ráðstafað óvarlega. Þannig mætti sleppa ýmsum fasteignaverkefnum og spara umtalsverða fjármuni. Við höfum upplifað góðæri síðustu ár. En þessi ósjálfbæra útgjalda- og skuldaaukning kemur í bakið á borgarbúum þegar hægir á hagkerfinu. Skattheimtu verður að stilla í hóf svo fólk haldi eftir þeim fjármunum sem ekki er brýn þörf á í samneysluna. Nú þegar hillir undir samdrátt í hagkerfinu eru skatta- lækkanir besta kjarabótin, því fáir fara betur með skattfé en greiðendur þess. 22 milljónir á dag … Katrín Atladóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðis- flokksins alþingi götunnar Þingmenn Pírata lögðu fram áhugavert lagafrumvarp í gær. Þar er lagt til að tíu almennir borgarar fái í hverjum mánuði að ávarpa þingfund um mál- efni líðandi stundar. Hver ræða má ekki vera lengri en tvær mínútur og formið því það sama og í liðnum Störf þingsins, sem stundum er kallaður hálftími hálfvitanna. Forvitnilegt yrði að sjá hvaða nafngift þessar 20 mínútur almennings fengju en hér er stungið upp á Alþingi götunnar. Ef af þessu verður fengjum við úr því skorið hvort það sé þverskurður þjóðarinnar sem situr á Alþingi.  óhappdrætti ríkisins Samkvæmt frumvarpinu skulu borgararnir sem hlotnast sá heiður að fá að ávarpa Alþingi valdir af handahófi úr kjörskrá. Forsætisnefnd þingsins er falin nánari útfærsla og yrði áhuga- vert að sjá hvernig framkvæmd- inni yrði háttað. Maður gæti séð fyrir sér að höfðað yrði til borgaralegrar skyldu þeirra sem yrðu dregnir út og fólk hrein- lega skikkað til að mæta. Miðað við hvernig kosningaþátttaka hefur verið að þróast og afar lítið traust almennings á Alþingi er ekkert víst að það yrði mjög eftirsóknarvert að vinna í þessu happdrætti. Svo verður maður bara að vona Pírata vegna að Pia Kjærsgaard sé ekkert á leiðinni inn á kjörskrá á Íslandi. sighvatur@frettabladid.is 2 5 . o k t ó b e r 2 0 1 8 F I M M t U D A G U r20 s k o ð U n ∙ F r É t t A b L A ð I ð SKOÐUN 2 5 -1 0 -2 0 1 8 0 4 :3 7 F B 0 6 4 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 2 A -F 0 1 0 2 1 2 A -E E D 4 2 1 2 A -E D 9 8 2 1 2 A -E C 5 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 6 4 s _ 2 4 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.