Fréttablaðið - 25.10.2018, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 25.10.2018, Blaðsíða 8
Íslandspóstur býður til opins fundar um breytingar í póstþjónustu og leiðir til þess að tryggja framtíð hennar á Íslandi. DAGSKRÁ Ávarp Bjarni Jónsson, stjórnarformaður Íslandspósts Lagaumgjörð póstþjónustu Andri Árnason, hrl. Mat á alþjónustubyrði Íslandspósts Sofia Nyström, Copenhagen Economics Rekstrargrundvöllur póstþjónustunnar á Íslandi Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Íslandspósts Verkefni eftirlitsaðila á fallandi markaði Cathrine Grimseid, Norwegian Communication Authority Þróun póstþjónustunnar: Staða og möguleg viðbrögð Henrik Ballebye, Copenhagen Economics Vinsamlegast skráið ykkur hjá irisa@postur.is eða í síma 580 1000 Fundurinn verður haldinn í Rímu, fundarsal á 1. hæð í Hörpu, þriðjudaginn 30. október, kl. 14:00 - 16:30. Bandaríkin Upp komst um send- ingu bréfsprengja til nokkurra hátt- settra Demókrata í Bandaríkjunum í gær auk fjölmiðilsins CNN. Málið hefur vakið óhug í Bandaríkjunum og kjörnir fulltrúar fordæma verkn- aðinn. Árásartilraunirnar hafa verið settar í samhengi við ítrekaðar árásir Repúblikana gegn Demókrötunum og CNN. Enginn lýsti yfir ábyrgð á árásartilraununum. Starfsmenn leyniþjónustu- stofnunarinnar sem gætir öryggis forseta Bandaríkjanna (e. Secret Ser- vice) sögðu í gær frá því að sprengjur hefðu verið sendar á heimili Obama- fjölskyldunnar í Washington og á heimili Clinton-hjónanna í New York í gær og í fyrradag. Virk sprengja, auk dularfulls hvíts dufts, var send á fréttastofu CNN í New York sem er til húsa í Time War- ner Center. Sprengjan fannst í póst- Voveiflegir atburðir í Bandaríkjunum Barack Obama, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna. myndir/nOrdicphOtOs/AFp hillary clinton, fyrrverandi forsetaframbjóðandi. George soros spákaupmaður. Bill clinton forseti. debbie Wasserman schultz þingmaður. Bréfsprengjur hafa í vikunni verið sendar á áhrifamenn innan bandaríska vinstrisins og á fréttastofu CNN. Trump forseti ítrekað gagnrýnt skotmörkin. Forsetinn fordæmdi árásina harðlega og sagði hana svívirðilega. herberginu og gerðu starfsmenn þar öryggisgæslu viðvart.  Sprengjan var stíluð á John Brennan, fyrrverandi yfirmann leyniþjónustunnar CIA, sem hefur verið tíður gestur á CNN. Einnig fannst sprengja á skrif- stofu Demókratans Debbie Wasser- man Schultz, sem áður gegndi for- mennsku í miðstjórn flokksins, í Flórída. Skrifstofan var rýmd í kjöl- farið. Annar grunsamlegur pakki fannst í Maryland þar sem póstur til þingmanna er flokkaður og rann- sakaður. Sá pakki var ætlaður þing- manninum Maxine Waters. Sams konar mál kom upp í úthverfi New York á mánudaginn er sprengja fannst í póstkassa hins frjálslynda milljarðamærings George Soros, sem stutt hefur Demókrata. Yfirmaður rannsóknarinnar á árásunum sagði á blaðamannafundi í gær að talið væri að málin tengdust. Um væri að ræða rörsprengjur. Andrew Cuomo, ríkisstjóri New York, sagði svo á blaðamannafundi fyrir utan Time Warner Center að grunsamlegur pakki hefði verið sendur á skrifstofu hans. Í ljós kom að um gervisprengju var að ræða og er sendingin ekki talin tengd hinum. Allir pakkarnir áttu það sameigin- legt að á þeim stóð að þeir skyldu endursendast til Debbie Wasserman Schultz. Pakkinn sem fannst á skrif- stofu Schultz átti sum sé ekki að fara þangað heldur til Erics Holder, fyrr- verandi dómsmálaráðherra, en rangt heimilisfang var skrifað á pakkann. Þá var einnig greint frá því að pakkinn sem sendur var Soros hefði, öfugt við hina, verið settur í póst- kassa hans en ekki sendur með pósti. Að auki sagði Jake Tapper, frétta- maður á CNN, að þar sem sprengj- urnar hefðu verið virkar væri ljóst að ætlun árásarmannsins hefði verið að fremja fjöldamorð. Bent hefur verið á, meðal annars í umfjöllun The New York Times, að Repúblikanar, og þá sérstaklega forsetinn, hafa beint sjónum sínum að öllum skotmörkum sprengju- sendinganna. Trump hefur til að mynda kallað Hillary Clinton spillta, Bill Clinton kynferðisofbeldismann, sagt Soros stýra komu ólöglegra innflytjenda til landsins, Obama ljúga um fæð- ingarstað sinn, krafist þess að Schultz verði fangelsuð og kallað CNN „þjóð- aróvin“. Hafa margir því kennt forsetanum um að hafa skapað svo sundrað and- rúmsloft í Bandaríkjunum að ódæð- isverk sem þessi þrífast. Þannig sagði Alexander Soros, sonur George, að með tilkomu Trumps í stjórnmálin hefði landslagið breyst. Hvítir þjóð- ernishyggjumenn og gyðingahatarar hefðu stigið fram og hatur í garð and- stæðinga í stjórnmálum aukist.  Hillary Clinton sagði í ræðu á fjár- öflun í Flórída fyrir komandi þing- kosningar að hún væri afar þakklát leyniþjónustunni. „En þetta eru uggvænlegir tímar, er það ekki? Og á þessum tímum er bandarískt sam- félag sundrað. Við verðum að gera allt sem við getum til að sameina það á ný. Við verðum líka að kjósa frambjóðendur sem vilja berjast fyrir þessu sama markmiði.“ Donald Trump fordæmdi árás- irnar líkt og aðrir Repúblikanar. Í ávarpi í gær sagði hann alríkisrann- sókn hafna á málinu. Ríkisstjórnin myndi rannsaka málið af fullum þunga og „draga þá sem bera ábyrgð á þessum fyrirlitlegu gjörðum til ábyrgðar“. Aukinheldur sagði for- setinn að bandarískt samfélag þyrfti að standa saman á tímum sem þessum. Pólitískt ofbeldi væri ekki liðið í Bandaríkjunum.  thorgnyr@frettabladid.is Tala um falskan fána Hörðustu stuðningsmenn for- setans, svokallaða hitt hægrið (e. alt-right), voru ekki sannfærðir um að raunveruleg hætta hefði verið á ferðum. Á spjallborði tileinkuðu forsetanum á Reddit mátti lesa samsæriskenningar um að Hillary Clinton, Soros eða Demókratar hefðu sjálfir skipulagt árásirnar til þess að láta Repúblikana líta illa út nú þegar tæpar tvær vikur eru til þing- kosninga. Sams konar kenningar mátti lesa á Twitter. Þar sagði Michael Flynn yngri, sonur fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Trumps sem hefur verið ákærður fyrir að ljúga að alríkislögreglunni vegna Rússarannsóknarinnar, að tíma- setningin væri grunsamleg. „Þetta gæti verið versta pólitíska belli- bragð sem ég hef séð á ævinni,“ tísti Flynn áður en hann eyddi tístinu og sagðist ekki vita hvort um „falskan fána“ væri að ræða. 2 5 . o k t ó B e r 2 0 1 8 F i M M t U d a G U r8 F r é t t i r ∙ F r é t t a B L a ð i ð 2 5 -1 0 -2 0 1 8 0 4 :3 7 F B 0 6 4 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 2 B -0 D B 0 2 1 2 B -0 C 7 4 2 1 2 B -0 B 3 8 2 1 2 B -0 9 F C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 6 4 s _ 2 4 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.