Fréttablaðið - 25.10.2018, Side 8
Íslandspóstur býður til opins fundar
um breytingar í póstþjónustu og
leiðir til þess að tryggja framtíð
hennar á Íslandi.
DAGSKRÁ
Ávarp
Bjarni Jónsson, stjórnarformaður Íslandspósts
Lagaumgjörð póstþjónustu
Andri Árnason, hrl.
Mat á alþjónustubyrði Íslandspósts
Sofia Nyström, Copenhagen Economics
Rekstrargrundvöllur póstþjónustunnar á Íslandi
Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Íslandspósts
Verkefni eftirlitsaðila á fallandi markaði
Cathrine Grimseid, Norwegian Communication Authority
Þróun póstþjónustunnar: Staða og möguleg viðbrögð
Henrik Ballebye, Copenhagen Economics
Vinsamlegast skráið ykkur hjá
irisa@postur.is eða í síma 580 1000
Fundurinn verður haldinn í Rímu,
fundarsal á 1. hæð í Hörpu,
þriðjudaginn 30. október,
kl. 14:00 - 16:30.
Bandaríkin Upp komst um send-
ingu bréfsprengja til nokkurra hátt-
settra Demókrata í Bandaríkjunum
í gær auk fjölmiðilsins CNN. Málið
hefur vakið óhug í Bandaríkjunum
og kjörnir fulltrúar fordæma verkn-
aðinn. Árásartilraunirnar hafa verið
settar í samhengi við ítrekaðar árásir
Repúblikana gegn Demókrötunum
og CNN. Enginn lýsti yfir ábyrgð á
árásartilraununum.
Starfsmenn leyniþjónustu-
stofnunarinnar sem gætir öryggis
forseta Bandaríkjanna (e. Secret Ser-
vice) sögðu í gær frá því að sprengjur
hefðu verið sendar á heimili Obama-
fjölskyldunnar í Washington og á
heimili Clinton-hjónanna í New
York í gær og í fyrradag.
Virk sprengja, auk dularfulls hvíts
dufts, var send á fréttastofu CNN í
New York sem er til húsa í Time War-
ner Center. Sprengjan fannst í póst-
Voveiflegir atburðir í Bandaríkjunum
Barack Obama, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna. myndir/nOrdicphOtOs/AFp hillary clinton, fyrrverandi forsetaframbjóðandi.
George soros spákaupmaður. Bill clinton forseti. debbie Wasserman schultz þingmaður.
Bréfsprengjur hafa í
vikunni verið sendar
á áhrifamenn innan
bandaríska vinstrisins
og á fréttastofu CNN.
Trump forseti ítrekað
gagnrýnt skotmörkin.
Forsetinn fordæmdi
árásina harðlega og sagði
hana svívirðilega.
herberginu og gerðu starfsmenn þar
öryggisgæslu viðvart. Sprengjan var
stíluð á John Brennan, fyrrverandi
yfirmann leyniþjónustunnar CIA,
sem hefur verið tíður gestur á CNN.
Einnig fannst sprengja á skrif-
stofu Demókratans Debbie Wasser-
man Schultz, sem áður gegndi for-
mennsku í miðstjórn flokksins, í
Flórída. Skrifstofan var rýmd í kjöl-
farið. Annar grunsamlegur pakki
fannst í Maryland þar sem póstur
til þingmanna er flokkaður og rann-
sakaður. Sá pakki var ætlaður þing-
manninum Maxine Waters.
Sams konar mál kom upp í
úthverfi New York á mánudaginn
er sprengja fannst í póstkassa hins
frjálslynda milljarðamærings George
Soros, sem stutt hefur Demókrata.
Yfirmaður rannsóknarinnar á
árásunum sagði á blaðamannafundi
í gær að talið væri að málin tengdust.
Um væri að ræða rörsprengjur.
Andrew Cuomo, ríkisstjóri New
York, sagði svo á blaðamannafundi
fyrir utan Time Warner Center að
grunsamlegur pakki hefði verið
sendur á skrifstofu hans. Í ljós kom
að um gervisprengju var að ræða og
er sendingin ekki talin tengd hinum.
Allir pakkarnir áttu það sameigin-
legt að á þeim stóð að þeir skyldu
endursendast til Debbie Wasserman
Schultz. Pakkinn sem fannst á skrif-
stofu Schultz átti sum sé ekki að fara
þangað heldur til Erics Holder, fyrr-
verandi dómsmálaráðherra, en rangt
heimilisfang var skrifað á pakkann.
Þá var einnig greint frá því að
pakkinn sem sendur var Soros hefði,
öfugt við hina, verið settur í póst-
kassa hans en ekki sendur með pósti.
Að auki sagði Jake Tapper, frétta-
maður á CNN, að þar sem sprengj-
urnar hefðu verið virkar væri ljóst að
ætlun árásarmannsins hefði verið að
fremja fjöldamorð.
Bent hefur verið á, meðal annars
í umfjöllun The New York Times,
að Repúblikanar, og þá sérstaklega
forsetinn, hafa beint sjónum sínum
að öllum skotmörkum sprengju-
sendinganna.
Trump hefur til að mynda kallað
Hillary Clinton spillta, Bill Clinton
kynferðisofbeldismann, sagt Soros
stýra komu ólöglegra innflytjenda
til landsins, Obama ljúga um fæð-
ingarstað sinn, krafist þess að Schultz
verði fangelsuð og kallað CNN „þjóð-
aróvin“.
Hafa margir því kennt forsetanum
um að hafa skapað svo sundrað and-
rúmsloft í Bandaríkjunum að ódæð-
isverk sem þessi þrífast. Þannig sagði
Alexander Soros, sonur George, að
með tilkomu Trumps í stjórnmálin
hefði landslagið breyst. Hvítir þjóð-
ernishyggjumenn og gyðingahatarar
hefðu stigið fram og hatur í garð and-
stæðinga í stjórnmálum aukist.
Hillary Clinton sagði í ræðu á fjár-
öflun í Flórída fyrir komandi þing-
kosningar að hún væri afar þakklát
leyniþjónustunni. „En þetta eru
uggvænlegir tímar, er það ekki? Og
á þessum tímum er bandarískt sam-
félag sundrað. Við verðum að gera
allt sem við getum til að sameina
það á ný. Við verðum líka að kjósa
frambjóðendur sem vilja berjast fyrir
þessu sama markmiði.“
Donald Trump fordæmdi árás-
irnar líkt og aðrir Repúblikanar. Í
ávarpi í gær sagði hann alríkisrann-
sókn hafna á málinu. Ríkisstjórnin
myndi rannsaka málið af fullum
þunga og „draga þá sem bera ábyrgð
á þessum fyrirlitlegu gjörðum til
ábyrgðar“. Aukinheldur sagði for-
setinn að bandarískt samfélag
þyrfti að standa saman á tímum sem
þessum. Pólitískt ofbeldi væri ekki
liðið í Bandaríkjunum.
thorgnyr@frettabladid.is
Tala um falskan fána
Hörðustu stuðningsmenn for-
setans, svokallaða hitt hægrið (e.
alt-right), voru ekki sannfærðir
um að raunveruleg hætta hefði
verið á ferðum. Á spjallborði
tileinkuðu forsetanum á Reddit
mátti lesa samsæriskenningar
um að Hillary Clinton, Soros
eða Demókratar hefðu sjálfir
skipulagt árásirnar til þess að láta
Repúblikana líta illa út nú þegar
tæpar tvær vikur eru til þing-
kosninga.
Sams konar kenningar mátti
lesa á Twitter. Þar sagði Michael
Flynn yngri, sonur fyrrverandi
þjóðaröryggisráðgjafa Trumps
sem hefur verið ákærður fyrir að
ljúga að alríkislögreglunni vegna
Rússarannsóknarinnar, að tíma-
setningin væri grunsamleg. „Þetta
gæti verið versta pólitíska belli-
bragð sem ég hef séð á ævinni,“
tísti Flynn áður en hann eyddi
tístinu og sagðist ekki vita hvort
um „falskan fána“ væri að ræða.
2 5 . o k t ó B e r 2 0 1 8 F i M M t U d a G U r8 F r é t t i r ∙ F r é t t a B L a ð i ð
2
5
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:3
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
2
B
-0
D
B
0
2
1
2
B
-0
C
7
4
2
1
2
B
-0
B
3
8
2
1
2
B
-0
9
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
6
4
s
_
2
4
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K