Fréttablaðið - 25.10.2018, Blaðsíða 52
Bílar
Vinnuþjarkurinn
Navara er svo miklu
meira en það, hann
er í senn fágaður, vel
búinn, með flotta
innréttingu og lík-
lega með bestu
aksturseiginleikana
meðal pallbíla.
Góður kostur með
miklu verðbili.
Þó svo eftirspurnin á Íslandi eftir pallbílum sé ekki eins gríðarleg og í Bandaríkj-unum er sala þeirra góð hér á landi, enda mikil
þörf fyrir duglega slíka bíla bæði í
atvinnustarfsemi og fyrir ferðaglaða
og athafnasama einstaklinga. Úrval-
ið hér á landi í minni pallbílum er
ágætt og dugar að nefna Toyota
Hilux, Mitsubishi L200, Volkswagen
Amarok, Isuzu D-Max og Mercedes
Benz X-Class, auk Nissan Navara, í
því sambandi. Talsverður innflutn-
ingur er svo bæði hjá umboðunum
og á gráa markaðnum á stærri pall-
bílum eins og Ford F-150-350, RAM
og GMC bílum.
Pallbílar voru hér á árum áður
frekar hráir bílar, vinnuþjarkar
sem fyrst og fremst voru hugs-
aðir fyrir atvinnustarfsemi, en
það hefur aldeilis breyst og flestir
þeirra orðnir jafn huggulegir að
innan og venjulegir fólksbílar. Það
á sko við þann bíl sem hér er til
umfjöllunar. Nissan Navara hefur
Fágaður vinnuþjarkur
Kostir og gallar
nissan
navara
l 2,3 lítra dísilvél
l 190 hestöfl
l fjórhjóladrif
eyðsla frá: 7,0 l/100 km í bl. akstri
Mengun: 183 g/km CO2
hröðun: 10,8 í 100 km hraða
hámarkshraði: 180 km/klst.
verð frá: 5.790.000 m. kr.
Umboð: BL
l aksturseiginleikar
l innrétting
l Burðar- og toggeta
l Dýr í flottustu útfærslu
í fullu tré við aðra Nissan-fólksbíla
og fólksbíla almennt að þessu leyti
og hefur því mikið notagildi. Enda
nota margir eigendur hans bílinn
til jafns í borgarsnattinu og þar sem
hann á öllu heldur heima, á erfiðari
vegum landsins. Það var einmitt
þannig sem Navara var notaður í
reynsluakstri, til að klöngrast upp
og niður með laxveiðiá af lengra
taginu og þar fékk hann að finna
fyrir íslenskum slóðum.
lítil eyðsla sannreynd
Vart er reyndar hægt að hugsa sér
þægilegri bíl til slíkrar notkunar,
í það er hann hæfilega stór, lipur
þar sem pláss er ekki mikið, hefur
mikla drifgetu og er sprækur ef á að
haska sér. Svo er náttúrulega yfrið
pláss fyrir farangurinn, hvort sem
er á pallinum eða bara í aftursæt-
unum ef aðeins tveir ferðast.
Nissan Navara kom af núverandi
kynslóð árið 2014 en hefur nú verið
uppfærður. Hann má fá bæði með
160 og 190 hestafla dísilvél, en
báðar eru þær með 2,3 lítra sprengi-
rými. Munurinn liggur í einni eða
tveimur forþjöppum. Reyndur var
bíllinn með öflugri vélinni og hana
skortir ekki afl. Bíllinn er fljótur úr
sporunum, áreynslulaus á lengri
leiðum á malbikinu og þrusu-
öflugur þegar tekið er á honum í
torfærunum. Með þessari vél er
hann gefinn upp með 7 lítra eyðslu
og það var sannreynt í þessum
reynsluakstri. Þó svo bílnum hafi
verið ekið að Langá á Mýrum og
upp og niður með ánni í þrjá daga
og aftur í bæinn var tankurinn enn
hálfur er heim var komið. Fáránlega
flott það.
Navara með aflminni vélinni
selur BL aðeins beinskiptan og
kostar hann þá frá 5.790.000 kr.
Með þeirri aflmeiri er hann aðeins
seldur með 7 gíra sjálfskiptingu
og kostar frá 7.290.000 kr. og er á
7.790.000 í Tekna-útfærslu. Þar er
sannarlega kominn eigulegur bíll
en jafnframt tveimur milljónum
dýrari en í sinni ódýrustu mynd.
innréttingin ferlega flott
Aðeins að útlitinu, en líklega mun
flestum finnast Navara fremur lagleg-
ur bíll, án þess að sprengja neinn feg-
urðarskala. Það á reyndar við flesta
keppinauta hans, enginn þeirra er
ljótur en enginn sláandi flott hönn-
un. Líklega verður þó D-Max að falla
neðst á skalann, en hinir allir prýði-
legir útlits. Innanrými Navara ber að
hrósa – vel fer um fjóra farþega en ef
til vill er dálítið þröngt um fimm.
Höfuð- og fótarými aftur í duga vel
fyrir fullorðna svo fremi sem ekki
er ferðast með körfuboltalið. Í öðru
lagi er innréttingin lagleg, virðist vel
smíðuð og ætti að þola talsvert jask.
Það er sko enginn landbúnaðarfíling-
ur í útliti innréttingarinnar og Nissan
hefur lagt sig fram um að hann standi
ekki að baki sínum fólksbílum eða
jeppum. Afar mikil líkindi eru með
X-Trail jeppanum þar.
Pallurinn er stór og lengdist um 7
cm frá síðustu kynslóð. Þar má setja
allt að 1.074 kg farm, sem verður að
teljast ansi gott fyrir ekki stærri pall-
bíl. Annað gott við pallinn er að hann
er fóðraður með grófmynstruðu
plasti sem heldur mörgum farangr-
inum kyrrum í akstri. Enn fremur eru
festingar í hliðunum til að halda öllu
á sínum stað.
vel vandað til fjöðrunar
Aðalatriðið við hvern bíl er hvernig
er að aka honum og þar olli Navara
ekki vonbrigðum. Stundum fannst
mér eins og ég væri á fólksbíl, svo
fyrirhafnarlaus og léttur var akstur
hans. Stýrið er nákvæmt og fjöðr-
unin ferlega góð og kom það best
í ljós þegar jaskast var upp óslétta
slóðana upp með ánni. Þar át hann
vel upp ójöfnurnar og stóð sig vel
þegar tekið var á og krappar beygjur
teknar á talsverðri ferð. Fimm liða
gormafjöðrun að aftan á þar stóran
þátt. Tilfinningin var þannig að tölu-
vert mikið mætti misbjóða þessum
sterka bíl, hann færi í gegnum það
allt með stæl. Líklega er hann bestur
meðal keppinauta sinna hvað þetta
varðar. Oft er betra fyrir akstursgetu
pallbíla að þyngja þá með farangri
í skúffuna, en fyrir þessum ókosti
fannst ekki því svo til ekkert var
þar. Hann kastaði að minnsta kosti
aldrei til rassinum, þó tilefni hafi
stundum verið til.
Nissan hefur greinilega vandað
sig vel við þróun þessa heimsbíls
sem fæst svo víða. Hann er smíðaður
á Spáni, í Bandaríkjunum, S-Afríku,
Taílandi, Kína, Malasíu, Mexíkó,
Argentínu og Egyptalandi. Líklega
er það þess vegna sem hann er svona
góður. Svo er ekki verra til þess að
vita að Navara getur togað 3,5 tonna
aftanívagn, sem og að hann er með
5 ára ábyrgð eða upp að 100.000 km
akstri.
reynsluakstur
Finnur
Thorlacius
finnurth@frettabladid.is
innréttingin er lagleg, virðist vel smíðuð og ætti að þola talsvert jask.
navara var notaður til að klöngrast upp og niður með laxveiðiá af lengra taginu og fékk að finna fyrir íslenskum slóðum.
2 5 . o k t ó b e r 2 0 1 8 f i M M t U d a G U r28 b í l a r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
2
5
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:3
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
2
A
-E
6
3
0
2
1
2
A
-E
4
F
4
2
1
2
A
-E
3
B
8
2
1
2
A
-E
2
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
6
4
s
_
2
4
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K