Stjarnan - 01.08.1923, Qupperneq 8
120
STJARNAN
TÓLFTI KAÍTULI.
Ava, hin gylta borg.
Þar sem maður gat heyrt klukkurnar
í Pagodanum gjalla í hinni fornu Ran-
goonborg og sé"S hið breiSa fljót streyma
í sveigum móti hafinu, stóS Adoniram
Judson og horfSi stöSuglega móti vestr-
inu. Hinn léttfætti og teygilegi líkami
hans og hvössu, brúnu augun sýndu, að
hann var sami ungi maSurinn, sem á
námstíS sinni hafSi veriö leiötogi skóla-
bræSra sinna í Brown og Andover. Á
svip hans mátti lesa lærdóm, hreinleika
og dómgreind, en nú báru 'hinir skýru
drættir vott um órjúfanlega ákvörSun
og merki hinna mörgu þjáninga, sem
opinberuSu þær raunir, er hann á mann-
dómsárum sínum haföi mætt. Þrátt
fyrir tíu ára erfiSleika í þessu hitabelt-
islandi var hann ennþá unglegur, og
þrátt fyrir hið forneskjulega sniö á föt-
um hans, voru þau lýtalaus og hann
heföi einmitt komið út úr hinu gamla
prestsetri í Ny-Englandi, sem hafði
verið æskuheimili hans.
Sannleikurinn var sá, að hann hafði
einmitt gengiö út úr sinni litlu skrif-
stofu í kristiboðsstöðinni í Rangoon; úr
því herbergi, sem hafði verið athvarf
hans síðustu tíu mánuðina, þar sem
hann reyndi að gleyma þrá og einveru
sinni með því að stöðuglega stunda nám
sitt af kappi. Á þessu tímabili, rneðan
konan hans var í burtu, 'hafði hann lok-
ið verki sinu á þýöingu nýja testament-
isins og hafði ritað yfirlit yfir sögu
gamla testamentisins í tólf þáttum.
Þetta var feykimikið verk, sem mætti
jafnast við verk það, er tylft af meðal-
heilum gátu framleitt*
En hvenær mundi þetta skip koma
inn á höfnina, sem mundi færa honum
kostulegri grip en allar þær vörur, er
nokkurn tíma höfðu verið fluttar yfir
hafið ? Hann starði á fljótið, til að
verða hinn fyrsti til aö sjá hin hvítu
'Segl koma fram yfir sjóndeildar-
hringinn.
Eftir að frú Judson hafði fariö í
burtu frá Birma tveimur árum áöur,
hafSi maSur hennar í annaS sinn heim-
sótt 'hina konunglegu borg, Ava. Hinn
nýi aSstoSarmaSur hans, dr. Price, fékk
skipun frá konunginum, sem hafSi fréit
af dugnaSi þessa nýja læknis og langaSí
til aS reyna hann. í þessari skipun fkon-
ungsins sá hr. Judson tækifæri til einu
sinni enn aS koma fram meS bænarskrá
um trúfrelsi fyrir hina kristnu i Birma.
ViS þetta tækifæri varS hann ekki fyrir
eins miklum vonbrigSum og í fyrra
skiftiS; því bæSi konungurinn og hirS-
in veittu hinum ameriska lækni og
kennimanni hinar allra beztu viStökur
og sýndu hinn mesta fúsleik til aS kynna
sér þýSingu hins nýja átrúnaSar, sem
þessir vestrænu kennimenn höfðu inn-
leitt í hið birmanska ríki. Eftir fjögra
mánaða dvöl í Ava, þar sem hann stöS-
uglega hafði veriS meS konungsfjöl-
skyldunni og embættismönnum stjórn-