Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2018, Blaðsíða 28
Bort af því besta 03. águst 2018KYNNINGARBLAÐ
Tónastöðin, ein rótgrónasta hljóð-færaverslun landsins, fagnaði 30 ára afmæli í fyrra, en hjónin
Andrés og Hrönn stofnuðu Tónastöðina
árið 1987 á Akranesi. Frá árinu 1995
hefur hún verið í Skipholti. Á þess-
um árum hefur safnast upp gífurleg
reynsla og þekking í versluninni, sem
þjónustar jafnt byrjendur sem lengra
komna.
„Gæði hafa ávallt verið aðalsmerki
hjá okkur. Við erum með allt til alls fyrir
hljóðfæraleikara og tónlistarmenn. Við
leggjum mikla áherslu á að þjónusta
börn og byrjendur vel og erum líka
ráðgefandi fyrir foreldra,“ segir Andr-
és. „Gítarar og píanó eru sívinsæl, en
upphaflega var verslunin stofnuð til
að selja blásturshljóðfæri og þau hafa
verið stór þáttur hjá okkur.
Við lögðum upp með að þjónusta
tónlistarskólana og nemendur þeirra
og þar skipta gæði auðvitað höfuð-
máli.“
Allt í boði sem þarf til tónlistariðkunar
Tónastöðin er svokölluð „full line“ versl-
un og býður upp á trommur, gítara,
píanó, fiðlur og flautur svo fátt eitt sé
nefnt, auk allra fylgihluta og nótna-
bóka.
„Eitt er að selja hljóðfæri, annað
að þjónusta þau eftir á,“ segir Andr-
és. „Mesta áherslan hefur alltaf verið
á gæði þess sem við seljum. Kjörorð
okkar er: „Það besta verður ávallt
ódýrast“ því bestu kaupin eru í hlutum
sem bæði endast vel og eldast vel. Auk
þess eru okkar vörur á hagstæðu verði.
Hljóðfæri eru almennt ódýr á Íslandi
miðað við löndin í kringum okkur því við
gerum okkur grein fyrir því að við erum
í alþjóðlegri samkeppni. Það er líka
nauðsynlegt að þreifa á hljóðfærum og
prófa þau áður en maður kaupir þau.
Við erum með allar tegundir af hljóð-
færum í miklu úrvali, trommur, píanó,
gítara, rafmagnsgítara, upptökutæki,
magnara – við höfum þetta allt. Gítar-
effektar eru hér í úrvali sem þekkist ekki
annars staðar á landinu. Þetta vita
íslenskir hljóðfæraleikarar og við fáum
mikið hrós frá útlendingum sem undr-
ast úrvalið. Þá erum við með óviðjafn-
anlegt úrval af upptökutækjum. Bæði
RODE og ZOOM-tækin hafa til dæmis
verið gríðarlega vinsæl: upptökutæki,
hljóðnemar og vídeóupptökutæki.“
Mesta úrval nótnabóka á landinu
Tónastöðin hefur skapað sér sérstöðu
á margan hátt. Til dæmis er þar mesta
úrval af nótnabókum á landinu og
Tónastöðin hefur alltaf verið stolt af
nótnadeildinni. Mörg þúsund titlar og
ættu flestir sem langar til að spila upp-
áhaldslögin sín að geta fundið nótur af
þeim.
„Kennarar hafa komið frá meðal
annars Noregi og Skotlandi til að kaupa
nótnabækur og segjast hvergi komast
í betri nótnaverslanir í sínum heima-
löndum,“ segir Andrés. „Ferðamenn
koma mikið til okkar, og heimsóknir
þeirra og kaup hafa aukist, sérstaklega
á dýrari hljóðfærum.“
Nýjungar í hljóðfærum
Það skemmtilegasta sem við gerum
er að kynna nýjungar í hljóðfærum
og tækjum: „Við erum til dæmis með
hljóðfæri sem heitir Merlin, sem mætti
kalla nútíma langspil. Svo eru til mörg
afbrigði af gítörum, ekki bara þessi
hefðbundni gítar.“
Að sögn Andrésar kostar það furðu-
lítið í dag að koma sér upp búnaði til að
spila og taka upp tónlist: „Það er hægt
að koma sér upp ótrúlega góðum
búnaði fyrir lítinn pening í dag – sem er
mikil breyting frá fyrri tíð. Okkar viðhorf
er líka að menn eigi ekki að offjárfesta
þegar þeir taka fyrstu skrefin, en fá
samt nógu mikil gæði til að þeir verði
ekki fyrir vonbrigðum. Við þurfum oft
að ráðleggja fólki og hér er til staðar
þekking og reynsla til þess. Allir sem
hér starfa eru með yfirgripsmikla þekk-
ingu og hafa annaðhvort kennt lengi
eða starfað lengi í þessum bransa.“
Hljóðfæri og tónlistarsköpun þróast í
takt við tæknina
Tæknin hefur hafið innreið sína í tón-
listina og hljóðfæri og Tónastöðin býður
upp á margar hentugar lausnir fyrir þá
sem vilja skapa tónlist með tölvum.
„Það eiga allir tölvu í dag, við erum
með upptökukort og tæki sem er hægt
að tengja við tölvuna,“ segir Andrés.
„Við erum með tæki fyrir þá sem spila
ekki á píanó, þá eru til aðrar lausnir
eins og Notepad.“
Tónastöðin er ekki með verkstæði,
en sinnir smáviðgerðum, eins og skipta
um strengi og þess háttar, en tekur
hljóðfæri inn til viðgerðar og er í góðu
samstarfi við viðgerðaraðila.
Gæðagjafir sem endast – gjafabréf í
boði
Andrés bendir á að hljóðfæri og upp-
tökubúnaður séu gjafir sem endast og
séu því margfaldlega peninganna virði:
„Góðir íþróttaskór kosta tugi þúsunda
og endast árið en góður gítar getur
enst alla ævi.“
Gjafabréf í Tónastöðinni eru ávallt
vinsæl enda svo margt til þar sem
gleður tónlistarmenn og tónlistar-
áhugafólk. Hægt er að fá gjafabréf
með upphæð að eigin vali. En það er
líka auðvelt að skipta vörum ef það
heppilegasta hefur ekki verið keypt.
„Þetta er skemmtilegur bransi og
viðskiptavinirnir líka, mér hefur aldrei
leiðst í þessi 30 ár sem ég hef verið
hér,“ segir Andrés, en viðskiptavinirnir
eru á öllum aldri og mislangt komnir
í tónlistinni. Af og til hefur Tónastöðin
verið með viðburði, tónleika og kynn-
ingar og stendur til að halda því áfram.
„Það er mjög gaman, við erum með
svið hér í versluninni.“
Tónastöðin er til húsa í Skipholti 50d,
Reykjavík, sími er 552-1185 og netfang:
tonastodin@tonastodin.is. Facebook:
tonastodin.
Opið er kl. 10–18 virka daga og kl.
10–15 á laugardögum.
TÓNASTÖÐIN
kaup á hljóðfærum og
fylgihlutum, fyrir alla