Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2018, Blaðsíða 50
50 LÍFSSTÍLL 03. águst 2018
Elsku Ragga
Ég skrifa til þín því ég er alveg ráða-
laus og veit ekki hvað ég á að gera
næst. Maðurinn minn er nýbúinn
að játa fyrir mér framhjáhald og
mig hefði sko aldrei í lífinu grun-
að að hann væri manngerðin til að
gera eitthvað álíka og hélt í alvöru
að við hefðum það bara fínt í sam-
bandinu. Við eigum tvö ung börn
og höfum svo sem ekki stundað
mikið kynlíf síðustu þrjú árin, en
fyrir mér hefur að minnsta kosti
verið mikil ást á milli okkar. Á
heimilinu eru líka tvö eldri börn að
hluta til. Fæðingarnar voru báðar
erfiðar og ég kenni því dálítið um
að hafa kannski ekki sama áhuga
á kynlífi og áður. Hann hefur samt
aldrei kvartað og bara stutt mig og
elskað. Eða ég hélt það alla vega
og hann segist elska mig en ég skil
ekki hvernig hann gat þá gert mér
þetta. Mér líður eins og hann hafi
traðkað á mér og vanvirt mig. Samt
elska ég hann, eða núna elska ég og
hata hann á sama tíma, og get ekki
hugsað mér að missa hann.
Hann lofar öllu fögru og við
erum búin að gráta saman, ég er
búin að öskra og spyrja endalausra
spurninga um hvert einasta smá-
atriði varðandi framhjáhaldið. Ég
held að hann sé búinn að segja mér
allt en ímynda mér endalaust að
það sé hellingur eftir. Hvert einasta
smáatriði er eins og hnífur í hjart-
að.
Hann segist hafa sofið hjá
tveimur konum áður en börn-
in fæddust, bæði skiptin drukkinn
eftir djamm, og svo er hann bú-
inn að eiga í sambandi við vinnu-
félaga, gifta konu, nánast síðan
eldra barnið fæddist. Fyrst segist
hann hafa leitað til hennar sem
vinar og það á að hafa verið í gangi
í meira en ár áður en þau sváfu fyrst
saman. Hann er búinn að sverja að
þau hafi í mesta lagi sofið saman
10 sinnum, sem mér finnst reyndar
ekkert lítið, og að hann hafi bund-
ið enda á sambandið hálfu ári
áður en hann sagði mér allt. Þau
vinna ekki saman lengur, sem bet-
ur fer, en ég þurfti að krefjast þess
að hann eyddi henni á Facebook.
Mig langar að fara heim til hennar
og hella mér yfir hana, en ég treysti
mér ekki til þess vegna þess að ég
gæti hreinlega ráðist á hana. Ég er
svo reið.
Núna er daglega lífið á heimil-
inu ömurlegt. Við reynum að halda
hlutunum eðlilegum fyrir börnin
og erum að komast í einhvers kon-
ar rútínu. Hann segist vilja vinna
traustið mitt aftur en ég sé ekki
hvernig það á að geta orðið. Hvern-
ig gat hann svikið mig svona?
Elsku Ragga hvað á ég að gera
næst? Á ég að biðja hann að flytja
tímabundið út? Á ég að heimta öll
lykilorðin hans á samfélagsmiðl-
um? Þurfum við að leita til ráð-
gjafa? Get ég verið með manni sem
sveik mig svona? Er hægt að bjarga
okkur?
Takk fyrirfram,
Ráðalaus kona
Kæra Ráðalaus
Takk kærlega fyrir að skrifa mér
svona einlæglega og opna þig um
málefni sem snertir ansi marga –
líklega okkur öll. Það er greinilegt
að sársauki þinn er mikill, reiðin
líka og allar erfiðu tilfinningarn-
ar sem þú nefnir. Ég held að við-
brögð þín séu afskaplega eðlileg og
ég er algjörlega viss um að margir
lesendur geta speglað sig í skrif-
um þínum. Svik eins og þessi eru
svo óskaplega sársaukafull. Þú átt-
ir ekki von á neinu og hélst að þú
værir í öruggri höfn þar til annað
kom í ljós.
Ég velti fyrir mér hverju játn-
ing mannsins þíns þjónaði. Fyrst
hann elskar þig svona mikið, sam-
bandið var búið og hann ákveðinn
í að halda áfram að vera hluti af
fjölskyldunni. Mig grunar að hann
hafi verið að létta á samviskunni
sinni – flytja sársaukann yfir á þig
– og ég er alls ekki viss um að það
sé alltaf besta hugmyndin. En játn-
ingin kom, líf ykkar fór á hvolf og úr
því þarf að vinna.
Ég þekki afskaplega fáa sem
hafa aldrei nokkurn tíma orðið fyrir
áhrifum af framhjáhaldi, beint eða
óbeint. Við tengjum framhjáhald
við sársauka, svik, rifrildi, ang-
ist, lygar, missi, áföll, skömm, ein-
angrun og vonbrigði. Við lærum
í uppvextinum að framhjáhald sé
eitt það versta sem hægt sé að gera
maka sínum eða lenda í – samt
halda sjúklega margir fram hjá.
Hvað er það? Sumir vilja halda því
fram að í framhjáhaldi felist tæki-
færi til betra sambands, nýs lífs og
nándar.
Sambandsráðgjafinn Esther
Perel hefur líkt þessu við að fá
krabbamein og lifa það af. Enginn
velur eða vill fá krabbamein, en sú
erfiða reynsla getur gefið lífinu nýja
dýpt. Prófaðu að gúgla Esther, hún
hefur ýmislegt gagnlegt að segja,
og einnig er óhætt að mæla með
bókum hennar The state of affairs
og Mating in captivity þar sem hún
fjallar um ýmislegt sem tengist
einkvæni, framhjáhaldi og hvers
vegna svona óskaplega margir
stunda athæfi sem veldur þetta
miklum sársauka.
Mér finnst líklegt að maðurinn
þinn sé að segja alveg satt þegar
hann játar þér ást sína og kannski
hefur ástin verið söm allan tím-
ann. Framhjáhald hefur oft ekkert
með ást á makanum að gera, held-
ur eitthvað allt annað. Kannski
var sjálfsmyndin hans það veik að
hann sótti í viðurkenningu frá fleir-
um – kannski var það spennan og
feluleikurinn sem kitlaði – stund-
um var hann kannski bara graður.
Spurningum þínum í lok bréfs-
ins get ég ekki svarað. Fyrir suma
er aðskilnaður í einhvern tíma það
hárrétta – fyrir aðra alls ekki. Sum-
ir vilja endilega hafa aðgang að lyk-
ilorðum og leyfi til að skoða síma,
tölvupóst og annað fyrirvaralaust
og hvenær sem er – finnst það
nauðsynlegt fyrir öryggi. Ég mundi
hins vegar alltaf vilja ræða rétt
makans til einkalífs. Kannski getið
þið haldið áfram og notað reynsl-
una til að styrkja tengsl ykkar,
endurnýja sambandið – því get ég
þó alls ekki svarað en eflaust væri
mjög gagnlegt fyrir ykkur að leita
til ráðgjafa. Þriðji aðili sem getur
greitt fyrir samtali ykkar, kannski
dálítið eins og túlkur, gæti hjálp-
að mikið. Í það minnsta þurfið þið
að gera ráð fyrir að talsverð vinna
sé framundan. Hverju vinnan skil-
ar er svo óvíst – en vonandi verð-
ur það annaðhvort fallegt og sterkt
samband, eða þolanlegur skilnað-
ur. n
HVERSDAGSLEIKINN Á
SKILIÐ ÓTRÚLEGAN
SÍMA
DUAL 12 MP MYNDAVÉL
NOKIA
8 SIROCCO
Ragnheiður Eiríksdóttir
er hjúkrunarfræðingur
og kynlífsráðgjafi.
raggaeiriks.com
raggaeiriks@gmail.com
„HVERNIG GAT HANN SVIKIÐ MIG SVONA?“