Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2018, Blaðsíða 43

Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2018, Blaðsíða 43
TÍMAVÉLIN 4303. águst 2018 ERT ÞÚ AÐ SMÍÐA PALL ? Pallinn upp á einfaldari hátt með jarðvegsskrúfum Ingólfsson, 42 ára þekktur fjöl- miðlamaður, og miðvikudaginn 1. september játaði hann loks að hafa orðið Lovísu að bana. Ásgeir var blaðamaður og þýðandi sem starfaði hjá Vísi og Morgunblaðinu árin 1960 til 1967. Eftir það varð hann fræg- ur sem fréttamaður og þulur hjá Ríkis sjónvarpinu á fyrstu árum þess. Þar starfaði hann til 1971 og svo hjá Ríkisútvarpinu til 1975, ár- inu áður en hann framdi ódæðið á Miklubraut. Ásgeir óskaði þess að fá að tala einslega við Karl Schutz og í kjöl- farið á því samtali fór hann fyr- ir sakadómara og gaf skýrslu um þennan örlagaríka dag. Þá fór hann með rannsóknarlögreglu- mönnum á öskuhaugana og sýndi þeim staðinn þar sem hann hafði losað sig við vopnið, kúbein en ekki öxi. Lýsing á morðinu, að- draganda þess og eftirmálar voru kunngerðir fjölmiðlum á blaða- mannafundi Schutz og íslenskra rannsóknarlögreglumanna. Bað hana að segja ekki frá Ástæða þess að engar hurð- ir eða gluggar voru brotnir var að hann átti lykil að íbúðinni og þekkti þar til. Rúmu hálfu ári áður hafði hann látið smíða lykil að íbúðinni og vissi að þar inni var verðmætt frímerkjasafn sem hann hugðist stela. Það frí- merkjasafn átti fyrrverandi hús- bóndi heimilisins. Um hálf ellefu leytið um morguninn fór hann inn í íbúð- ina og fann þar hluta safnsins. En hann var lengi í íbúðinni og tók marga aðra muni, svo sem skartgripi. Ásgeir var með bláa íþróttatösku meðferðis en í henni voru ýmis verkfæri úr bílnum hans. Hann var staddur á efri hæð hússins þegar hann heyrði að einhver var að koma inn. Reyndist það vera Lovísa sem hann þekkti ekki og kynnti hann sig því fyrir henni. Henni var ljóst að Ásgeir var þar í leyfis- leysi og hann áttaði sig á að hún vissi það. Því bað hann hana að segja ekki frá ef hann lofaði að skila öllum mununum og hafa sig á brott. Að sögn Ásgeirs hugsaði Lovísa sig um stund en hafn- aði loks beiðni hans þrátt fyrir að hann hafi beðið alls þrisvar sinnum. Þá ætlaði hún að halda á brott úr íbúðinni og segja frá en Ásgeir var í mjög örvingluðu ástandi og greip til þess ráðs að ná í lítið kúbein úr töskunni sinni. Þegar hún beygði sig niður til að fara í skóna sína sló Ásgeir hana nokkrum sinnum í hnakk- ann. Hún hné ekki niður þá heldur gekk inn í stofuna og út að hringstiga sem lá niður í kjallarann. Þar féll hún niður og fylgdi hann á eftir með kúbeinið og sló hana nokkrum sinnum til viðbótar í höfuðið. Eftir þetta skolaði hann kú- beinið í eldhúsvaskinum og dvaldi nokkra stund í íbúðinni til að hugsa næstu skref. Þá setti hann töskuna og kúbeinið í poka og ók með hann út á öskuhauga. Einnig fór hann í efnalaug með jakkann sinn til að hreinsa blóð- ið en frímerkin og annað þýfi úr íbúðinni hafði hann á brott með sér. Sneri lífinu við og fékk uppreista æru Þann 4. mars árið 1977 var Ásgeir dæmdur í Sakadómi Reykjavíkur til sextán ára fangelsisvistar fyrir morðið á Lovísu Kristjánsdóttur. Í þeirri uppkvaðningu var hann einnig dæmdur fyrir þjófnað í íbúðinni og þjófnað á þrem- ur peningakössum í vélsmiðj- unni Héðni rúmu hálfu ári áður. Árið 1979 var hann dæmdur í Hæstarétti en fimm árum síðar var hann kominn á reynslulausn eftir afplánun á Litla-Hrauni. Ásgeir sneri lífi sínu við, sneri sér aftur að þýðingum og starf- aði hjá Íslenska útvarpsfélaginu og Stöð 2 frá árinu 1987 til dauðadags árið 2001. Eftir hann liggja tugir þýddra bóka og eig- in bók um laxveiði í Elliðaán- um. Síðastliðið haust kom fram að Ásgeir fékk uppreist æru árið 1996. n Menntskælingar sviknir um Boy George Á rið 1998 voru íslenskir menntaskólanemar snupr- aðir um að sjá poppgoð- ið Boy George sem átti að skemmta á balli en greitt hafði verið fyrir komu hans. Það var fimmtudaginn 19. nóv- ember árið 1998 sem breski popp- arinn Boy George átti að skemmta nemendum Menntaskólans við Sund á balli á Hótel Íslandi. Stjarna hans skein hvað skærast á níunda áratugnum þegar hann söng lög á borð við Karma Chameleon og Do You Really Want to Hurt Me með hljómsveit sinni The Culture Club. En á þessum tíma var hann orðinn sólólistamaður og hafði getið sér frægðar sem plötusnúður. 500 þúsund krónur Það var umboðsmaðurinn Guð- mundur Ingi Þórhallsson, nú for- maður Afstöðu, sem ætlaði að flytja inn plötusnúðinn en hann hafði reynslu af slíku. Hann fór hins vegar í erindisleysu út á flugvöll. Í samtali við Morgunblaðið sagði hann: „Við fórum út á flugvöll að sækja Boy George ásamt sérstökum ör- yggisvörðum fyrir hann en þá hafði hann ekki komið með vélinni. Við eigum eftir að kanna hvað fór úr- skeiðis. Við fluttum inn 14 manna hóp í október og munum flytja inn fleiri plötusnúða fyrir áramót og það hefur aldrei neitt brugðið út af fyrr en núna.“ Samkvæmt heimildum DV var kostnaðurinn við komu Boy George um 500 þúsund krónur. Í samtali við DV sagði Guðmundur: „Það var búið að borga þá upp- hæð sem kostaði að fá hann hingað en síðan gerðist ekkert.“ Funi Sigurðsson, formaður nemendaráðs MS, sagðist svekktur og ósáttur við fréttirnar en jafnframt að nemendurnir tækju þessu ekki of illa. Ákveðið var að fá aðra tón- listarmenn til að skemmta á Hótel Íslandi og fullt var út úr dyrum. n R eglulega kemur upp strok úr íslenskum fangelsum og spinnast þá oft miklar hasarfréttir í kringum það. Árið 1966 kom hins vegar upp strokumál hjá varnarliðinu þegar hermaður mætti ekki á stöðina í Keflavík á tilsettum tíma. Leitað á skemmtistöðum og heimilum skyldmenna Í júlí árið 1966 var rúmlega tvítug- ur landgönguliði, Michael Burt að nafni, handtekinn í Vestmanna- eyjum að beiðni bandaríska varnarliðsins. Hann var sendur með flugvél til Reykjavíkur þar sem tveir bandarískir herlög- reglumenn og einn íslenskur lög- reglumaður biðu hans. En þegar hann steig út úr vélinni komst hann undan og náðu þeir ekki að handsama hann. En þeir vissu heldur ekki hvernig Burt leit út. Burt hafði fengið leyfi til að heimsækja íslenska móður sína, Margréti Jónsdóttur í Vestmanna- eyjum, en skilaði sér hins vegar ekki aftur. Þess vegna bað yfir- stjórn flotans um að hann yrði handtekinn og færður aftur á stöðina. Um kvöldið var leitinni að Burt haldið áfram og sent eftir öðrum hermanni sem þekkti hann. Fór sá maður um alla borgina í fylgd með íslenskum lögreglumönnum að leita en sú leit bar engan árang- ur. Þá voru tveir hergæslumenn sendir á skemmtistaði borgarinn- ar og heimili skyldfólks hans. Óttaðist Víetnam Burt sagðist ekki hafa þolað agann í hernum, sérstaklega í æf- ingabúðum í Bandaríkjunum. Þar hafi einn piltur reynt að svipta sig lífi. En eftir strokið bjóst hann við að fá sex mánaða fangelsisdóm og verða síðan „settur fyrir byssu- kjaftana í Víetnam.“ Talaði hann um að reyna að komast á erlent skip til að flýja land. Í tæpan mánuð spurðist ekk- ert til hermannsins en um miðjan ágúst hringdi hann í móður sína. Þá var hann staddur í Sandgerði og starfaði sem háseti. Þau hittust í Innri-Njarðvík, ræddu málin og ákvað Burt að gefa sig fram á Keflavíkurvelli. Þar var Burt hnepptur í varð- hald og var honum í flýti flogið til Philadelphiu-borgar í Pennsyl- vaníufylki þar sem hans beið her- réttur og fangelsisdómur. Móðir hans náði að tala stuttlega við hann í flugvélinni áður en tekið var á loft. Árangurslaust reyndi hún að fá utanríkisráðherra og forseta Íslands til að þrýsta á að hann myndi afplána refsingu sína hér á Íslandi. n Hálfíslenskur strokuher- maður óttaðist Víetnam Kristinn Haukur Guðnason kristinn@dv.is Ásgeir Ingólfsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.