Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2018, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2018, Blaðsíða 21
FÓLK - VIÐTAL 213. ágúst 2018 A tli er fæddur á Árbakka við Tindilmýri á Snæfjalla- strönd en búsettur á Akur- eyri í dag. Innan við tvítugt fór hann að sinna meðfæddum áhuga sínum á listum, hann hnýtti meðal annars skópör úr bagga- böndum og netagirni. Þá fór hann að búa til klippimyndir, skrif- aði smásögur og samdi rokklag á plötuna Húsið. Listaverk hans hafa verið sýnd meðal annars í Safnasafninu, Handverkshátíð- inni á Hrafnagili í Eyjafjarðarsveit og alþjóðlegri textílsýningu á Kjar- valsstöðum. „Þegar maður er að kynnast nýjum konum eða leita að nýrri ást á netinu og eitthvað slíkt, þá segi ég alltaf að atvinnan sé mitt áhugamál og áhugamálið mín at- vinna,“ segir Atli og tekur fram að í raun þurfi þrjá menn til að sinna þeim störfum sem hann sinnir. „Einelti er ekki bara einelti“ Að sögn Atla varð hann fyrir ógur- legu einelti í skóla sem krakki, af öllum gerðum, eins og hann bæt- ir við. „Einelti er ekki bara einelti. Það getur verið líkamlegt og and- legt, eða hvort tveggja. Ég lenti sjálfur mikið í hópárásum,“ segir hann og fullyrðir að þessar minn- ingar hafi fylgt honum í langa tíð og geri enn. Tilveran fór aðeins að fara upp á við í kringum fjórtán ára aldur- inn. Á þessum tíma var Atli undir miklum áhrifum hljómsveita á borð við Nasareth, Queen og ekki síst Kiss sem var að slá í gegn með þriðju plötu sinni á þessum tíma. Þetta tímabil leiddi til þess að hann fór að herma eftir upp- áhaldslistamönnum sínum og stefndi langt með þessum áhuga. Segist hann fljótlega hafa farið að fikta á gítar í kjölfar trommuæfing- anna og rísandi tónlistaráhugans. „Svo komst maður að því að mað- ur átti ekkert erindi í að syngja eins og maður var að gera, svo fór ég að prófa að syngja inn á tvær rásir og þá kom miklu meiri fylling. Tvær til fjórar raddir og náttúrlega „risa- -ædolin“ í Queen eru þekktar fyrir stórar raddir,“ segir Atli. „Ég fann út frá þessu fyrir ster- kri þörf fyrir tjáningu. Ég hvarf úr vinnu sem ég var í á þeim tíma og hentist í sköpun, sem þá var út- skurður úr mörgu. Ástarsorg átti jafnframt stóran þátt í þeirri þörf sem ég fékk til að skapa og átti sinn sess í þunglyndinu að hluta til.“ Undir áhrifum afa síns Atli ræðir tímabil í sínu lífi þar sem hann upplifði sjaldan sem aldrei frið eða ró, hvorki frið fyrir sér sjálfum né öðrum röddum. „Ég hef alltaf verið viðkvæm sál og það má rekja til árásanna í skólanum,“ segir Atli. Þá rifjar hann upp minningu þegar hann var stadd- ur á miðilsfundi, en þá hafði hann lengi fundið fyrir undarlegum áhrifum. „Miðillinn spurði mig hvort forfaðir minn ynni í gegnum mig.“ Atli Viðar upplifði hópeinelti og þunglyndi Tómas Valgeirsson tomas@dv.is Frelsaðist með listsköpuninni Fann tilganginn í lífinu í gegnum útskurðarlist, tónlist og greinaskrif Fjöllistamaðurinn Atli Viðar Engilbertsson hefur sameinað þrjú stærstu áhugamál sín í listsköpun; útskurðarlist, tónlist og skrif. Í samtali við DV segir hann að hann hafi skrifað sig upp úr þunglyndi á hinu fræga ári hrunsins, eins og hann orðar það, en þá frelsaðist hann með skrifum og sköpun eftir margra ára vanlíðan í kjölfar ástarsorgar. Textílskófatnaður sem Atli hnýtti. Atli á bilinu 16–18. ára.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.