Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2018, Blaðsíða 6
6 3. ágúst 2018FRÉTTIR
Það er
staðreynd að…
Hjarta fósturvísis byrjar að slá þremur
vikum eftir getnað.
Rottur eignast afkvæmi svo títt að á
átján mánuðum geta þær eignast meira
en milljón afkvæmi.
Snigill getur sofið í allt að þrjú ár.
Í peningaseðlum er bæði bómull og
pappír. Þess vegna eyðileggjast þeir
ekki í þvottavélum.
Það er sama hvað pappír er stór, það
er aðeins hægt að brjóta hann sjö
sinnum saman.
Gylfaflöt 6 - 8
LOKUM 20. JÚLÍ
HLÖKKUM TIL AÐ TAKA Á MÓTI
YKKUR 14. ÁGÚST AÐ GYLFAFLÖT 6-8
VEGNA FLUTNINGA
„ÍBÚUM HÉRNA Í
HVERFINU ER BRUGÐIГ
Grillþjófar herja á Úlfarsárdal:
DV
hefur áður flutt
fréttir af innbrota
faröldrum í ákveðn
um hverfum og
bæjar félögum á höfuðborgar
svæðinu eins og á Kársnesinu í
Kópavogi, Laugarneshverfinu í
Reykjavík og í Garðabæ. Nú hefur
fjöldi manns í Úlfarsárdal í Reykja
vík lent í því að tapa gasgrillum
og gaskútum. Gerendurnir eru að
minnsta kosti tveir og hafa þeir
sést við iðju sína á bíl sem reyndist
vera stolinn. Málið er til rannsókn
ar hjá Lögreglunni á höfuðborgar
svæðinu. Sjoppulegur og í klofsíðum
buxum
Jón Baldvinsson, íbúi í Úlfarsár
dal, er einn af þeim sem hafa feng
ið að kenna á grillþjófunum en í
gærmorgun var nýlegu Weber
grilli stolið frá honum við heimili
í Lofnarbrunni. Jón hefur tilkynnt
þjófnaðinn til lögreglu og ræddi
við DV. Hann segir:
„Íbúum hérna í hverfinu er
brugðið. Nágrannakona mín
bankaði upp á hjá mér í gær
kvöldi og sagði mér að hún hefði
verið að fara til vinnu rétt fyrir sjö
um morguninn. Þá sá hún svo
lítið druslulegan náunga vappa
með grillið mitt út í bílinn hjá sér
og stinga því í skottið. Við stýrið
sat að henni sýndist kona. Hún
ákvað að keyra aðeins á eftir
þeim inn í Freyjubrunn, næstu
götu fyrir ofan, þar sem bíllinn
staðnæmdist við fellihýsi. Þar tók
nágrannakonan mynd af bílnum
sem var nýlegur Subaruskutbíll
en síðan keyrði hún til vinnu.“
Nágrannakonan sá konuna
sem sat við stýrið ekki vel en mað
urinn var ungur, í klofsíðum bux
um, með nærbuxurnar upp úr, líkt
og hefur verið í tísku. En hann var
þó „sjoppulegur“ til fara.
Þegar farið var að grennslast
fyrir um bílinn kom í ljós að hann
er í eigu Höldurs, Bílaleigu Akur
eyrar, en jafnframt að honum
hafði verið stolið. Nágranninn tók
einnig eftir því að bíllinn var troð
fullur af alls konar góssi, en gat
ekki greint nákvæmlega hvaða
hlutir voru þar.
Kútur klipptur af
Jón sá síðan á Facebooksíðu íbúa
samtaka Úlfarsárdals að íbúinn
sem átti fellihýsið umrædda hafði
einnig orðið fyrir barðinu á þjóf
unum. Hann birti þar mynd sem
sýndi að gaskútur hafði verið skor
inn af hýsinu og tekinn.
„Utan um þennan kút var öfl
ugur vírlás og strappar til að halda
kútnum á fellihýsinu. Þeir virðast
því hafa öflug tól og tæki til þess að
stunda sína iðju. Þetta var ekki fest
með einhverju plasti heldur var
lásinn eins og öflugustu reiðhjóla
lásar.“
Jón, sem hefur búið í hverfinu í
nokkur ár, segir að í gegnum tíðina
hafi verið brotist inn í íbúðir þar
rétt eins og annars staðar. Þarna
er mikil uppbygging og mikið af
verðmætum verkfærum á mörg
um stöðum. Þetta mál sé hins
vegar ekki eins og margar aðrar
innbrotahrinur þar sem þjófar
vakta hús og tæma þau af verð
mætum þegar íbúarnir eru í burtu.
Sjálfur telur hann að um dópista
par sé að ræða sem taki hluti sem
auðvelt sé að taka.
Ekki eru þó allir sannfærðir um
það. Ein kona í íbúasamtökunum
tók eftir grunsamlegum bíl sem
var lagt við verslunina Bauhaus við
eina akstursleið úr hverfinu. Var
bíllinn með gott útsýni yfir Vestur
landsveg og sat þar einn maður
sem hugsanlega var að vakta lög
regluna fyrir þjófana. Nefndi hún
sérstaklega að bíllinn hefði verið
með pólskar númeraplötur. Jón
bendir á að fjöldi erlendra verka
manna sé við vinnu í hverfinu
enda mörg hús í byggingu. Því
sé ekkert víst að þessi bíll tengist
málinu nokkuð.
Þrír aðrir íbúar hverfisins segja
frá því á síðunni að grillum hafi
verið stolið frá þeim og gaskútar
hafi horfið frá þremur til viðbótar.
„Við vitum ekki nákvæmlega
hversu margir hafa tapað grill
um eða öðrum lausamunum af
lóðunum sínum,“ segir Jón. „Ég
veit ekki hvernig þessu er komið
í verð. Hugsanlega fara þeir með
gaskútana og fá skilagjald en sum
grillanna eru gömul og ég veit ekki
hvort það sé markaður fyrir þau.
Ég hef ekki gefið mér tíma til að
athuga hvort grillin séu komin inn
á einhverjar sölusíður, Bland eða á
Facebook.“
Sniffa eða selja
Valgarður Valgarðsson, aðalvarð
stjóri á stöð 4 sem Úlfarársdalur
fellur undir, segir að málið sé ekki
leyst en að kærur hafi borist.
„Að grillum sé stolið er ekki al
gengt en það kemur fyrir. Það eru
aðallega kútarnir sem hafa verið
teknir. Það kemur fyrir að grill séu
tekin en þá ekki í svona stórum
stíl.“
Hvað gera þjófarnir við góssið?
„Það er allur gangur á því
hvernig þeir reyna að koma þessu
í verð. Hvort þeir noti þetta sem
skiptimynt sín á milli eða hvort
þetta er auglýst á sölusíðum.“
Er verið að sniffa úr kútunum?
„Það var nú sérstaklega mikið
gert á tímabili. Þeir hafa líka reynt
að selja þá, komu þá með kútana
í stykkjavís og reyndu að fá greitt
fyrir þá hjá olíufélögunum. En fé
lögin eru búin að herða reglurnar
hjá sér varðandi þetta. Þeir sem
taka grill taka líka oftast kútana
með.“
Innan Úlfarsárdals hefur verið
rætt um að koma upp eftirlits
myndavélakerfi við leiðir inn í
hverfið, sem eru nokkuð fáar. Sí
fellt fleiri hverfi og bæjarfélög hafa
gert það og má þar nefna Garða
bæ, Seltjarnarnes, Selfoss, Kópa
vog og Mosfellsbæ. Fjármögnun
og rekstur slíkra véla er með mis
munandi hætti en þær eru settar
upp í samstarfi við Neyðarlínuna
og lögregluna sem eru einu að
ilarnir sem hafa aðgang að þeim
og upptökur einungis skoðaðar ef
grunur leikur á að glæpur hafi ver
ið framinn. n
Fellihýsið sem kúturinn var klipptur af
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
Teikning: Guðfinna Berg