Fréttablaðið - 13.12.2018, Side 10
keppni á markaðinum en Rannveig
segir að samkeppnina þurfi einnig
að skoða í víðara samhengi.
„Við erum í samkeppni við alla
afþreyingu, ekki bara önnur fyrir-
tæki í hvalaskoðun. Ef við tökum
rútuferðir sem dæmi þá hefur hörð
samkeppni á milli stærstu rútufyrir-
tækjanna valdið miklum verðlækk-
unum. Rútuferðir um gullna hring-
inn og hvalaskoðunarferðir kostuðu
álíka mikið fyrir þremur árum en nú
eru rútuferðir orðnar mun ódýrari.
Það hefur að sjálfsögðu áhrif á val
ferðamanna á afþreyingu enda horfa
þeir í hverja krónu þegar gengið er
hátt,“ segir Rannveig og bætir við
að veiking krónunnar síðustu vikur
og mánuði hafi verið kærkomin.
Reksturinn hafi gengið vel í nóvem-
ber og það sem af er desember.
„Við fundum strax aukningu í
síðbúnum bókunum. Um leið og
kaupmáttur ferðamanna á Íslandi
eykst þá eyða þeir meiru í afþrey-
ingu. Hins vegar er það því miður
þannig að ferðamenn virðast gera
ráð fyrir að allt sé mjög dýrt þegar
þeir koma til landsins og undirbúa
sig í samræmi við það,“ segir Rann-
veig. Hún segir jafnframt að undan-
farið hafi samþjöppunar gætt innan
greinarinnar og að líklega muni sú
þróun halda áfram.
Elding tekin af sölu
Elding var sett í söluferli undir lok
síðasta árs en Rannveig segir að
fallið hafi verið frá þeim áformum.
„Við bökkuðum út úr söluferlinu
í febrúar vegna þessa að við töldum
að það væri ekki tímabært að taka
þetta skref miðað við aðstæður á
markaðinum. Við ætlum frekar að
komast í gegnum samdráttarskeiðið
og taka stöðuna þegar því er lokið.“
Vegna skertra rekstrarframlaga til kirkjugarða verður
afgreiðslutími skrifstofu Kirkjugarða Reykjavíkur-
prófastsdæma í Gufuneskirkjugarði styttur um
helming frá 2. janúar 2019.
Frá og með nýju ári verður skrifstofa KGRP í Gufunes-
kirkjugarði opin frá klukkan 9 til 13 alla virka daga.
Styttur opnunartími skrif-
stofu í Gufuneskirkjugarði
%-breyting
rekstrargjalda %-breyting
Afkoma Tekjur frá fyrra ári launakostnaðar
Elding 8 855 3% 1%
Special Tours -38 613 21% 31%
Ambassador -103 191 75% 72%
Gentle Giants 0 369 22% 39%
Whale Safari 3 141 9% 109%
Norðursigling -123 666 9% 23%
Arctic Sea Tours 26 141 24% 33%
Sölkusiglingar 3 75 44% 35%
✿ Helstu tölur í rekstri hvalaskoðunarfyrirtækja
Munu verja krónuna gegn
útstreymi aflandskróna
Már Guðmundsson seðlabankastjóri. fréttablaðið/stEfán
Már Guðmundsson seðlabanka-
stjóri segir að það þurfi ekki að ótt-
ast að gengi krónu veikist samhliða
væntanlegu frumvarpi ríkisstjórn-
arinnar um losun aflandskróna.
„Við höfum feikilega mikið púður
í tunnunni,“ segir hann og vísar til
þess að gjaldeyrisvaraforðinn sé 770
milljarðar króna. Þetta kom fram
á fundi þegar Már kynnti vaxta-
ákvörðun peningastefnunefndar í
gærmorgun.
„Maran sem við höfðum áhyggjur
af að myndi leggjast yfir gjaldeyris-
markaðinn,“ segir greiningardeild
Arion banka, „ætti því ekki að halda
vöku fyrir markaðnum á næstunni.“
Aflandskrónur eru metnar 84
milljarðar króna. Þar af eru 37 millj-
arðar króna bundnir á reikningum
sem myndu losna þegar frumvarpið
verður að lögum. Um 40 milljarðar
eru í mislöngum ríkisbréfum og
átta milljarðar í öðrum verðbréfum.
„Ólíklegt er að þessir átta milljarðar
fari á hraða siglingu strax,“ segir
Már. „Það eru samtals 64 milljarðar
króna sem gætu farið út á nokkrum
vikum. Þótt það sé ekki víst.“
Hann segir að Seðlabankinn muni
ekki láta þennan fortíðarvanda, það
er útstreymi aflandskróna, sem hafi
ekkert að gera með núverandi efna-
hagsstöðu, verða til þess að lækka
gengi krónunnar. „Við munum beita
gjaldeyrisinngripum eins og þarf til
að það verði ekki raunin.“
Seðlabankastjóri og greiningar-
deild Arion banka telja að krónan
hafi veikst of mikið í haust og að
krónan eigi styrkingu inni. Seðla-
bankinn telur að raungengið hafi
færst niður fyrir jafnvægisgildi sitt.
– hvj
Við höfum feikilega
mikið púður í
tunnunni.
Már Guðmundsson seðlabankastjóri
Ró ð u r i n n í hva l a -skoðun þyngdist veru-lega á milli áranna 2016 og 2017. Kostn-aðarhækkanir og hátt gengi krónunnar hafa
sett mark sitt á afkomuna.
Samantekt á helstu rekstrartölum
hjá átta hvalaskoðunarfyrirtækjum
sýnir örar breytingar á rekstrarum-
hverfinu. Árið 2016 var samanlögð
afkoma jákvæð um 338 milljónir
króna en í fyrra var hún neikvæð
um 222 milljónir. Heildartekjur
námu rétt rúmum þremur milljörð-
um króna og stóðu í stað á milli ára.
Rekstrargjöld jukust hins vegar um
16 prósent og þar af jukust launa-
gjöld um 26 prósent.
Þrjú stærstu hvalaskoðunarfyrir-
tækin standa undir langsamlega
stærstum hluta tekna í greininni,
eða um 2,1 milljarði af þremur millj-
örðum. Aðeins eitt þeirra, Elding,
skilaði hagnaði og nam hann aðeins
einu prósenti af tekjum.
„Það var samdráttur þrátt fyrir að
ferðamönnum fjölgaði. Við fundum
mjög greinilega fyrir því að hver
ferðamaður eyddi minna en áður.
Bókanir fram í tímann hafa vissu-
lega haldið áfram að streyma inn
en það bætist minna við á síðustu
dögunum fyrir ferðir,“ segir Rann-
veig Grétarsdóttir, eigandi hvala-
skoðunarfyrirtækisins Eldingar.
Elding, sem er stærsta fyrirtækið
í atvinnugreininni, hagnaðist um 8
milljónir króna á síðasta ári saman-
borið við 54 milljónir á árinu 2016.
Tekjur fyrirtækisins námu 855 millj-
ónum króna og drógust saman um
tvö prósent á milli ára. Yfir sama
tímabil jókst kostnaður um þrjú
prósent.
„Það eru viðbrigði að fara úr
samfelldum vexti yfir í samdráttar-
skeið. Hvalaskoðunarfyrirtæki eru
að reyna að finna jafnvægi í rekstr-
inum, til dæmis hvað varðar starfs-
mannafjölda og fjölda ferða, og
þurfa að hagræða,“ segir Rannveig.
Special Tours, sem er í eigu Eyþórs
Arnalds, oddvita Sjálfstæðisflokks-
ins í Reykjavíkurborg, er þriðja
stærsta fyrirtækið á markaðinum
mælt í tekjum. Special Tours hafði
hagnast um 149 milljónir króna
árið 2016 en á síðasta ári var félagið
rekið með tapi upp á 38 milljónir.
Munaði miklu um að rekstrargjöld
jukust um 21 prósent og launa-
kostnaður um 31 prósent.
Þá tapaði næststærsta félag-
ið, Norðursigling, 122 milljónum
króna en í félaginu er einnig annars
konar rekstur og fjárfestingar.
Veiking krónunnar kærkomin
Samhliða fjölgun ferðamanna
hafa ýmis hvalaskoðunarfyrirtæki
sprottið upp og ríkir nú hörð sam-
Kreppir að í rekstri
hvalaskoðunarfélaga
Þrjú stærstu hvalaskoðunarfyrirtækin standa undir langsamlega stærstum
hluta tekna í atvinnugreininni, eða um 70 prósentum. fréttablaðið/stEfán
Afkoma hvalaskoðunar-
félaga var mun verri á
síðasta ári en árið á
undan. Eigandi Eldingar
segir hátt gengi krón-
unnar hafa dregið úr
eftirspurn. Hvalaskoð-
unarfyrirtækin þurfi að
finna jafnvægi í rekstr-
inum og áframhaldandi
samþjöppun sé líkleg.
Við erum í sam-
keppni við alla
afþreyingu, ekki bara önnur
hvalaskoðunarfyrirtæki.
Rannveig Grétars-
dóttir, eigandi
Eldingar
Þorsteinn Friðrik
Halldórsson
tfh@frettabladid.is
Í milljónum króna
markaðurinn
1 3 . d e s e m b e r 2 0 1 8 F I m m T U d A G U r10 F r é T T I r ∙ F r é T T A b L A ð I ð
Viðskiptahraðlinum Til sjávar og
sveita hefur verið hleypt af stokk-
unum. Hann er fyrsti viðskipta-
hraðallinn á Íslandi þar sem ein-
blínt er á nýjar lausnir og sjálfbæra
verðmætasköpun í landbúnaði og
sjávar útvegi. Stefnt er á að hann
verði uppspretta nýrra vara og
þjónustu og varpi ljósi á þau tæki-
færi sem felast í sjálfbærri nýtingu
auðlinda á Íslandi. Þetta kemur
fram í tilkynningu.
Til sjávar og sveita hefst í mars
á næsta ári og stendur yfir í níu
vikur. Allt að tíu teymi verða valin
og fá aðgang að vinnuaðstöðu á
tímabilinu auk stuðnings og sér-
þekkingar til að vinna að mark-
miðum sínum. Þau fá jafnframt
ráðgjöf og aðstoð frá sérfræðing-
um, fjárfestum og frumkvöðlum
úr atvinnulífinu meðan á hrað-
linum stendur. Að lokum verður
haldinn uppskerudagur þar sem
teymin kynna hugmyndir sínar
fyrir fjárfestum og öðru áhrifafólki
úr atvinnulífinu.
Um er að ræða samstarfsverkefni
Icelandic Startups, Íslenska Sjávar-
klasans, IKEA á Íslandi, Matarauðs
Íslands, HB Granda og Landbúnað-
arklasans. – hvj
Viðskiptahraðlinum Til
sjávar og sveita komið á fót
1
3
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:5
0
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
B
B
-3
5
C
C
2
1
B
B
-3
4
9
0
2
1
B
B
-3
3
5
4
2
1
B
B
-3
2
1
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
B
F
B
0
8
0
s
_
1
2
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K