Fréttablaðið - 13.12.2018, Side 32
NETVERSLUN
SIGURBOGINN.IS
Telma Magnús-
dóttir stendur
á bak við skart-
gripalínuna
Varpið sem er
innblásin af ís-
lenskum fugls-
eggjum. Hún er
trú raunverulegu
útliti eggjanna og
lögun en aðlagar
stærðina enda
sum of stór til að
bera sem skart.
Ég er alin upp í sveit og hef allt-af verið heilluð af friðsældinni sem fylgir fuglshreiðrum og
fegurð og fjölbreytileika eggjanna.
Mig hafði lengi langað að skapa
eitthvað sem væri innblásið af
íslenskri náttúru og varð fyrsta
eggið til fyrir jólin 2011 þegar mig
vantaði jólagjöf fyrir vinkonu. Það
vakti lukku og leiddi til þess að ég
ákvað alfarið að snúa mér að Varp-
inu,“ segir Telma, en listin hefur
lengi blundað í henni. „Ég lærði
ferðamálafræði af praktískum
ástæðum en langaði að gefa þessu
séns,“ segir Telma sem er með
aðstöðu hjá Minør Coworking úti
á Granda sem er samfélag sjálfstætt
starfandi hönnuða, listamanna og
frumkvöðla.
Merkið hefur vaxið og dafnað
og eru skartgripalínurnar orðnar
þónokkrar. Þær eru innblásnar
af hrafnseggjum, langvíueggjum,
lundaeggjum, rjúpnaeggjum,
smyrilseggjum, snjótittlings-
Egg tákna upphaf
Telma er alin upp í sveit og hefur alltaf verið heilluð af fegurð og fjölbreyti-
leika fuglseggja. Hún segir að eggin geti verið einstök jólagjöf. MYND/EYÞÓR
Þetta hálsmen tilheyrir Hrafnsvarpinu.Fyrstu hálsmenin hennar Telmu voru
kríuegg. Þau eru í raunstærð.
Eyrnalokkar í stíl við hálsmenin.
Fremst eru lokkar úr Teistuvarpinu.
Eggin hennar Telmu eru mjög falleg.
Vera
Einarsdóttir
vera@frettabladid.is
Veggmyndir eru nýjasta afurð Telmu.
Þær kallar hún Handan hreiðurs.
Hér má sjá men úr Langvíuvarpinu.
eggjum og teistueggjum en hverri
línu tilheyra hálsmen, eyrnalokkar
og hringir. „Þá hef ég tekið við
sérpöntunum og gert fálkaegg og
auðnutittlingsegg svo dæmi séu
nefnd.“
Telma byrjaði á kríueggjum.
„Ég bar óttablandna virðingu fyrir
kríum sem barn en ég ólst upp
með kríuvarp í túnfætinum. Mér
fannst krían mjög heillandi en var
líka svakalega hrædd við hana.“
Aðspurð segist Telma trú raun-
verulegum lit og lögun eggjanna en
að útlitið geti þó verið breytilegt
innan tegunda. „Ég tek mið af því
og þess vegna er hvert egg ein-
stakt.“
Þó Telma sé trú útlitinu þarf hún
að aðlaga stærð sumra eggjanna.
Kríueggin eru í raunstærð en mörg
hinna hef ég þurft að minnka enda
of stór til að ganga með um háls-
inn,“ segir Telma.
Telma segir að eggin geti verið
einstök gjöf og að þeim fylgi falleg
merking. „Þau geta meðal annars
verið tilvalin gjöf fyrir einhvern
sem stendur á tímamótum. Þau
tákna upphaf og mér þykir t.d.
alltaf sérstaklega fallegt að sjá
ófrískar konur bera þau.“
Eggin, sem eru úr leir, eru
handmáluð og lökkuð. „Þegar ég
mála eggin er ég alltaf með pappír
undir sem með tímanum safnast
á málning og mismunandi litir
eggjanna. Með hugmyndina um
endurnýtingu fyrir augum ákvað
ég að vinna hann frekar og ramma
inn sem málverk sem ég kalla
Handan hreiðurs, en þar má sjá
vísa af hinum ýmsu tegundum.“
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 3 . D E s E M B E R 2 0 1 8 F I M MT U DAG U R
1
3
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:5
0
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
B
B
-3
A
B
C
2
1
B
B
-3
9
8
0
2
1
B
B
-3
8
4
4
2
1
B
B
-3
7
0
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
8
0
s
_
1
2
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K