Fréttablaðið - 13.12.2018, Side 44
8 KYNNINGARBLAÐ 1 3 . d e s e m B e R 2 0 1 8 F I M MT U DAG U RútIvIst oG spoRt
Við Menntaskólann á Tröllaskaga er boðið upp á fjölbreytt nám og einn
áfanginn kallast Útivist í snjó.
Áfanginn er að mestu leyti verk-
legur og kynnir útivist sem hægt
er að stunda þegar er snjór, eins
og ísklifur, skíði (alpa-, fjalla- og
göngu-), snjóbretti, snjóhúsagerð
og fjallamennsku. Mikil áhersla er
lögð á að nemendur læri sjálfstæði
í óbyggðum, geti metið aðstæður,
t.d. við breytt veðurskilyrði, með
tilliti til öryggis og tekið skyn-
samlegar ákvarðanir varðandi t.d.
leiðarval og notkun öryggisbúnað-
ar og ferðast um óbyggðir Íslands
á öruggan og ábyrgan hátt. Þá er
einnig reiknað með að nemendur
verði að áfanga loknum færir um
að taka þátt í upplýstri umræðu og
rökræðum um málefni er tengjast
útivist og einnig meðvitaðir um
umhverfi sitt, hafandi lært að njóta
þess, virða og nýta á skynsamlegan
hátt með sjálfbærni í huga. Nám-
skeiðið er kennt á útivistarbraut til
stúdentsprófs.
Útivistarnám
í snjó
Aðventan er tími fjölskyldusamveru og fátt betur tilvalið á þessum tíma en að skella sér á skauta á Skauta-
svellinu á Ingólfstorgi. Svellið var opnað
1. desember en þetta er fjórða árið í röð
sem Nova, ásamt samstarfsaðilum, kemur
svellinu upp. Stemningin er ákaflega jóla-
leg enda dunar jólatónlist yfir svellið og
nærumhverfi sem skreytt er um hundrað
þúsund perum sem mynda ljósaþök yfir
iðkendum.
Jólaþorp er í kringum Ingólfssvellið þar
sem hægt er að kaupa til dæmis veitingar
og útivistarfatnað. Enginn aðgangseyrir er
á svellið en hægt er að leigja saman skauta
og hjálm og barnagrindur.
Talið er að um 140 þúsund hafi skautað á
svellinu í fyrra en leigð voru um 20 þúsund
pör.
Svellið er opið alla daga í desember frá
klukkan 12 til 22.
Svellið er opið á eftirfarandi tímum yfir
hátíðarnar:
Þorláks messa: 12-23
Aðfangadagur: Lokað
Jóladagur: Lokað
Annar í jólum: 12-22
Gamlársdagur: 12-16
Skautagleði á Ingólfstorgi
Útivist býður upp á fjölbreytt-ar ferðir árið um kring og er mikið um að vera á næstu
dögum og vikum. Boðið verður upp
á jólarölt umhverfis Hval eyrar vatn
laugardaginn 15. desember milli 13
og 15 en þar verður hægt að ylja sér
með heitu kakói og bregða á leik.
29. desember til 1. janúar er boðið
upp á áramótaferð í Bása með
gönguferðum, góðum mat, blysför,
flugeldum og öðru tilheyrandi.
Þann 5. janúar 2019 verður haldið
í dagsferð en fyrsta dagsferð Úti-
vistar á ári hverju hefur frá upphafi
innihaldið heimsókn í kirkju. Að
þessu sinni verður gengið á milli
tveggja kirkna. Gangan hefst við
Saurbæjarkirkju á Kjalarnesi og
er gengið að Brautarholtskirkju.
Brottför er frá BSÍ klukkan 9.30.
Á þrettándanum verður svo jeppa-
og gönguskíðaferð í Bása á Goða-
landi. Þar verður brenna, flugeldar,
áramótasöngvar og kvöldvaka. Til
að geta tekið þátt í ferðum Útivistar
þarf að vera félagi.
Hressandi
jóla- og
áramótaferðir
1
3
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:5
0
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
B
B
-0
4
6
C
2
1
B
B
-0
3
3
0
2
1
B
B
-0
1
F
4
2
1
B
B
-0
0
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
8
0
s
_
1
2
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K