Fréttablaðið - 29.12.2018, Side 8
SUÐUR-KÓREA Óttast er að gagnaleki
með persónuupplýsingum nærri
eitt þúsund flóttamanna frá Norður-
Kóreu kunni að stofna fjölskyldum
þeirra í heimalandinu í hættu. Sam-
einingarráðuneyti Suður-Kóreu
hefur staðfest að svo virðist sem tölva
í endur búsetumiðstöð hafi verið
hökkuð og persónuupplýsingum 997
norðurkóreskra flóttamanna lekið.
BBC greinir frá því að enginn hafi
enn sem komið er lýst ábyrgð tölvu-
árásarinnar á hendur sér en um er að
ræða fyrstu árás sinnar tegundar og
af þessari stærðargráðu.
Stjórnvöld í Norður-Kóreu hafa
ekki persónuupplýsingar allra þeirra
sem flúið hafa einræðisríkið í gegn-
um tíðina, oft við illan leik. Nú liggur
hins vegar fyrir að upplýsingum um
nafn, fæðingardag og heimilisföng
997 flóttamanna hefur verið lekið
og alls óljóst hvaða áhrif það kunni
að hafa.
Stjórnmálaskýrendur sem BBC
vísar til segja ástæðu til að hafa
áhyggjur af því að lekinn kunni að
stofna fjölskyldum flóttafólksins,
sem enn búa í Norður-Kóreu, í
hættu. Eitt sé þó ljóst að lekinn grafi
undan öryggistilfinningu norðurkór-
eskra flóttamanna í Suður-Kóreu og
kalli hugsanlega á að þeir breyti um
nöfn, símanúmer og heimilisfang.
Það var þann 19. desember síðast-
liðinn sem sameiningarráðuneyti
Óttast að hakk hafi afhjúpað
þúsund föðurlandsflóttamenn
Eftirsótt er af mörgum íbúum Norður-Kóreu að komast suður yfir landamærin. MYND/EPA
Tölvuárás var gerð á
eina af endurbúsetu
miðstöðvum norður
kóreskra flóttamanna í
SuðurKóreu. Persónu
upplýsingum þúsund
flóttamanna lekið. Ótt
ast um öryggi fjölskyldu
meðlima sem enn búa í
NorðurKóreu. Enn óljóst
hver stóð að árásinni.
Það er til staðar
norðurkóreskur
hakkarahópur sem beinir
sjónum sínum aðallega að
föðurlandsflóttamönnum“
Simon Choi, tölvuöryggissérfræðingur
BRETLAND Breski pósturinn, Royal
Mail, hefur neyðst til að hætta við
útgáfu frímerkis sem hannað hafði
verið sérstaklega í tilefni þess að
75 ár eru liðin frá D-deginum svo-
kallaða, eða innrásinni í Normandí.
Ástæðan er að myndin á frímerkinu
sýndi alls ekki breska hermenn gera
áhlaup á ströndina, heldur banda-
ríska. Þá var myndin aukinheldur
alls ekki frá Normandí-strönd,
heldur frá ströndum Hollensku
Nýju-Gíneu sem í dag heitir Indó-
nesía, ansi fjarri Frakklandi. Myndin
er tekin 17. maí 1944 en innrásin í
Normandí hófst ekki fyrr en 6. júní
sama ár.
Frímerkið átti að gefa út við
hátíðlega athöfn á næsta ári í safni
sem fengið hafði nafngiftina „Best
of British“. Ekkert verður nú af því
eftir að fréttastofa BBC benti á áður-
nefndar staðreyndir.
Frímerkinu fylgdi myndatextinn
„Hermenn og læknar bandamanna
vaða í land“ og var sagt sýna komu
þeirra að strönd Normandí. Mistök-
in þykja ansi neyðarleg fyrir breska
póstinn enda má finna myndina á
vefsíðu American Nat ional WWII
safnsins.
Talsmaður Royal Mail hefur beð-
ist afsökunar á mistökunum og stað-
fest að myndina verði ekki að finna
í útgáfunni sem fyrirhuguð er í júní
á næsta ári. – smj
Klúður breska póstsins
Myndin sýndi allt annað en bandamenn koma að landi í Normandí.
Myndin sýnir banda-
ríska hermenn vaða á land í
Hollensku Nýju-Gíneu
tæpum mánuði fyrir D-dag-
inn.
Suður-Kóreu uppgötvaði lekann
og fann grunsamlegt forrit á tölvu
í endurbúsetumiðstöð, eða Hana-
miðstöð, í Norður-Gyeongsang-
héraði. Um er að ræða ríkisstofnun
sem hjálpar þúsundum flóttamanna
úr norðri að aðlagast lífinu sunnan
landamæranna.
Tölvuöryggissérfræðingurinn
Simon Choi segir í samtali við BBC
að líklega sé þetta ekki í fyrsta skipti
sem tölvuárás sé gerð á Hana-mið-
stöð.
„Það er til norðurkóreskur hakk-
arahópur sem beinir sjónum sínum
aðallega að föðurlandsflótta-
mönnum og við vitum að hópurinn
reyndi að hakka eina slíka miðstöð
í fyrra.“
Þótt böndin berist að nágrönn-
unum í norðri er enn of snemmt að
skella skuldinni á þá.
Sameiningarráðuneytið mun,
ásamt lögreglu, rannsaka öryggis-
brestinn og árásina og er rannsókn-
in á frumstigi. mikael@frettabladid.is
BANDARÍKIN Texasbúinn Richard
Overton er látinn, 112 ára að aldri.
Overton var talinn elsti maður
Bandaríkjanna áður en hann dó á
endurhæfingarstöð í Austin. Hann
hafði nýlega verið lagður inn vegna
lungnabólgu.
Overton var í bandaríska hern-
um í síðari heimsstyrjöldinni og
hafði eitt sinn látið hafa eftir sér
að leyndarmálið að langlífinu væri
viskídrykkja og vindlareykingar
sem hann stundaði grimmt á ver-
önd heimilis síns í Austin. Árið 2013
var Overton heiðraður af Barack
Obama, þáverandi Bandaríkja-
forseta á degi uppgjafahermanna
(e. Veterans Day). – smj
Sá elsti látinn
Richard Overton. MYND/EPA
icewear.is
Icewear janúarútsala 2019-8.pdf 1 17/12/2018 09:36
BANDARÍKIN Leikkonan og erind-
reki Flóttamannastofnunar Sam-
einuðu þjóðanna Angelina Jolie gaf
það til kynna í viðtali á BBC að hún
væri að íhuga að láta að sér kveða í
stjórnmálum. Í viðtalinu sagði Jolie
að fyrir 20 árum hefði slíkt aldrei
getað komið til greina, en staðan
væri önnur í dag. „Ég fer þangað sem
þörfin er,“ sagði Jolie. „Ég veit ekki
hvort ég er hæf til að gegna embætti,
aftur á móti þá hef ég grínast með
það að það sé ólíklegt að ég eigi fleiri
gleymdar beinagrindur í skápnum.“
Jolie hefur beitt sér fyrir mannrétt-
indum flóttafólks og barist gegn kyn-
bundnu ofbeldi. – khn
Angelina Jolie
útilokar ekki að
fara í pólitík
2 9 . D E S E M B E R 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
9
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:2
1
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
E
C
-2
6
B
4
2
1
E
C
-2
5
7
8
2
1
E
C
-2
4
3
C
2
1
E
C
-2
3
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
9
6
s
_
2
8
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K