Fréttablaðið - 29.12.2018, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 29.12.2018, Blaðsíða 38
Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is Náttúran í Nepal er stórbrotin og magnað að hjóla eftir afskekktum fjallaslóðum umvafinn háum klettum og tindum. MYNDIR/ KJARTAN LONG Hópurinn stundar jóga og teygir eftir daginn, meðan beðið er eftir að sólin setjist. Hjólunum skellt á bakið.Hjólað niður steinlagðar tröppur. Hópurinn á toppnum í 4.200 metra hæð, umvafinn háum tindum. MYND/TANGI Heiða og vinkonur hennar voru í árlegri hausthjóla-ferð í fyrra þegar hug- myndin að þessu ferðalagi skaut upp kollinum. „Ein úr hópnum var nýlega komin frá Nepal. Nepal hafði verið ofarlega á blaði hjá okkur í dálítinn tíma en við Sól- veig Pétursdóttir, vinkona mín, vorum hins vegar ekki í gírnum til að klífa Everest eða fara í göngu- ferð. Við hins vegar sáum fyrir okkur í hillingum að bruna niður nepalska fjallaslóða á hjólum,“ segir Heiða. Ákvörðunin var því tekin um að láta reyna á hjóla- ferð til Nepal, og vinkona Heiðu, Solla P, sá að mestu um skipu- lagninguna. Áður sjálfstætt konungsríki Ákveðið var að ferðast til Mustang-héraðs. „Efri hlutinn af Mustang-héraði var eitt sinn einangrað og sjálfstætt konungs- ríki sem tilheyrði Tíbet en er núna hluti af Nepal og var lokað ferða- mönnum til ársins 1992. Í dag er þarna þjóðgarður og þurfa ferða- menn að borga sig inn á svæðið en vel er fylgst með umferð inn á og út af svæðinu,“ útskýrir Heiða. Mustang skiptist í efra og neðra svæði og hópurinn hjólaði mest í neðra svæðinu sem er fjalllendara en efra svæðið þurrara. Hjólað í 4.200 metra hæð Fimmtán manna hjólahópur frá Íslandi dvaldi í tvær ævintýra- legar vikur í Nepal í haust. Heiða Aðalbjargar Jóns- dóttir var með í för og mælir með ferðalögum á framandi slóðir, það fái fólk til að líta inn á við, núll- stilla sig og njóta. því hvernig það var stemmt þann daginn. Með þessu fyrirkomulagi gátu allir farið á sínum hraða.“ Hjólað niður steintröppur og einstigi Hópurinn flaug út 27. septem- ber en fyrsti áfangastaður var Katmandú. „Við flugum út með Qatar Airways og fórum þetta í þremur leggjum, Keflavík, Katar, Katmandú. við náðum að inn- rita hjólin og annan farangur í Keflavík og hann skilaði sér allur til Katmandú, sem var æði því það er alltaf smá stress að ferðast með svona búnað.“ Fyrsti hjóladagurinn var tekinn í úthverfi Katmandú þar sem hjól- in og lærin voru prufukeyrð. Næst var ekið til Pokhara en á leiðinni var stoppað og kláfur tekinn upp í Manakamana-musteri. „Ferðin niður var frekar höst. Við fórum niður hundruð steintrappa, eftir vegslóðum og einstigi.“ Daginn eftir að komið var til Pokhara hjólaði hópurinn inn í frumskóg rétt utan við bæinn í miklum hita og raka. Næst var flogið upp í fjöllin í Mustang-héraði. „Við lentum í litlu þorpi sem heitir Jomsom. Þaðan hjóluðum við milli fjalla- skála og gistum í Kagbeni, Tinig- haon og Kalopani. Við vorum tvær til þrjár nætur á hverjum stað sem var frábært.“ Ferðin var skipulögð af frönskum leiðsögu- manni, Tangi, sem flutti til Nepal fyrir 15 árum. „Hann starfar sem leiðsögumaður í nokkra mánuði á ári og nýtir svo frítímann í að leita að nýjum slóðum og hugmyndum fyrir næsta tímabil. Sjálfur fylgdi hann hópnum eftir alla daga en auk hans voru þrír nepalskir leið- sögumenn með í för auk bílstjóra. „Þau voru öll frábær og sáu um allt viðhald á hjólunum okkar og stjönuðu algjörlega við okkur.“ Heiðu kom á óvart hversu mjög slóðarnir sem þau hjóluðu eftir voru fyrir utan alfaraleið. „Við hittum lítið af öðrum ferða- mönnum þrátt fyrir að vera mjög nálægt vinsælli gönguleið í kringum Annapurna.“ Ferðin tók fjórtán daga í heild og var að stærstum hluta skipu- lögð sem hjólaferð. Þó gátu ferðalangarnir gert ýmislegt annað. „Við héldum til dæmis mót í félagsvist. Í Katmandú og Pokhara kíktum við í búðir og í Pokhara fórum við í svifvængja- flug og sumir fóru í þyrluferð yfir Everest.“ Fjölbreyttir dagar Heiða segir ferðina í heild hafa verið mjög vel skipulagða. Dags- túrarnir voru mislangir og fjöl- breyttir. „Dagarnir byrjuðu á stað- góðum morgunverði, hafragraut, kaffi og eggjahræru. Svo var farið í það að sterílísera vatnið, bæta í það söltum og raða í bakpokann fyrir daginn. Hjóladagarnir voru yfirleitt um sex tímar, með tölu- verðu klifri. Lengsti dagurinn var um átta tímar en þá fórum við upp í 4.200 metra hæð. Það var alveg magnað að vera komin þangað upp en enn voru 3.000 metrar í hæstu tinda í kring. Eftir hjóladaginn var kannski skálað í einum köldum og deginum svo lokað með þjóðarrétti Nepala, dal bhat, sem er hrísgrjónaréttur.“ Gott að líta inn á við Heiða mælir klárlega með ferða- lagi á framandi slóðir. „Það fær mann til þess að líta inn á við, núllstilla sig og njóta. Ekki skemmdi fyrir að ferðast um á hjóli. Maður fer svo passlega hratt yfir. Það gat tekið á að koma sér upp brekkurnar en niðurferðin bætti það alveg upp.“ Heiða segir slóðana oft hafa verið tæknilega og að oft hafi hún verið á bremsunni enda nokkuð langt í hjálp ef eitthvað kom upp á. „Ferðin gekk nokkuð áfalla- laust fyrir sig, það voru aðallega einstaka varahlutir í hjólunum sem gáfu sig en ekkert sem ekki var hægt að redda á staðnum. Það sem toppaði ferðina var hvað hópurinn var góður og sam- stilltur.“ Hópurinn samanstóð af fimm- tán manns sem tengdust með ýmsum hætti og höfðu stundað almenna útivist og fjallahjólreiðar í einhvern tíma. „Þetta var pass- lega stór hópur og við höfðum tök á að skipta okkur upp eftir formi. Fólk flakkaði svo á milli hópa eftir Evonia er hlaðin bæti- efnum sem næra hárið og gera það gróskumeira. Myndirnar hér til hliðar sýna hversu góðum árangri er hægt að ná með Evonia. Evonia www.birkiaska.isFyrir Eftir Evonia eykur hárvöxt með því að veita hárrótinni næringu og styrk. 10 KYNNINGARBLAÐ 2 9 . D E S E M B E R 2 0 1 8 L AU G A R DAG U RHEILSA 2 9 -1 2 -2 0 1 8 0 4 :2 1 F B 0 9 6 s _ P 0 6 2 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 E C -4 9 4 4 2 1 E C -4 8 0 8 2 1 E C -4 6 C C 2 1 E C -4 5 9 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 9 6 s _ 2 8 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.