Fréttablaðið - 29.12.2018, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 29.12.2018, Blaðsíða 12
Merkilegt. Þegar maður lítur til baka yfir svona ár, eins og þetta ár var — ekkert rosalegt ár, verður að segjast — þá er eins og maður muni ekki baun eftir neinu sem gerðist í þjóðlífinu. Maður er tómur. Minnið er steindautt. Samt veit maður að á þessu ári urðu skandalar, eins og á öllum öðrum árum. Það gusu upp hitamál. Það var rifist um eitthvað. Eitthvað gerðist. Maður bara man ekki hvað. Maður þarf að rifja upp. Mér til málsbóta má benda á þá staðreynd að í raun áttu engir gríðarlega afgerandi viðburðir sér stað árið 2018. Held ég. Enginn gekk á Tunglinu. Maður myndi muna eftir því. Engin árás var gerð á Tvíburaturna. Ekkert efnahags- líf hrundi. Líf fannst ekki á öðrum hnöttum. Loftsteinn skall ekki á jörðinni. Ár í móðu Mér líður soldið eins og Gunn- ari Braga hefur liðið þegar hann vaknaði eftir Klaustur og teygði sig í símann sinn. Hvað gerðist eigin- lega? Ég er smá ringlaður. Ég er þó ekki að vakna eftir óreglu. Ég hef verið með fullum sönsum megnið af árinu. Ég var ekki að gera upp á bak. Ég hef verið að fylgjast með. Yfirgripsmikið minnisleysi mitt um þjóðfélagsmál er mér hins vegar sérstakt umhugsunarefni á þessum áramótum. Hvað skiptir mann máli? Hvað situr eftir þegar svona ár hverfur? Ég gúggla. Það var greinilega eitt og annað í deiglunni. Pia Kjærsgaard kom og fór. Fundurinn á Þingvöllum til að fagna full- veldissáttmálanum var epískt klúður. Ég hugsa að ef ég væri einn af skipuleggjendum myndi ég fara með slípirokk á öll skjöl tengd ákvörðunum um þennan viðburð, eins og Jón Gnarr gerði við Banksy-plakatið. Líklega var þetta klúður ársins. Fyrir utan það hvað málflutningur Piu er umdeildur á Íslandi og viðbrögðin við komu hennar því ágætur vitnisburður um tíðarandann, þá felst viss lærdómur líka í öllum þessum hátíðarhöldum í heild sinni. Þau áttu að setja svip sinn á árið. Þetta var jú 100 ára afmæli fullveldisins. Fullt af fólki vann að því af metnaði að skapa hátíðar- stemningu í kringum þennan viðburð. Fólk átti að valhoppa af kæti með gasblöðru. En það varð einhvern veginn ekki neitt úr neinu. Drottningin kom og henni varð kalt. Þingmenn voru þunnir. Vindur gnauðaði. Kannski er þetta fullreynt með 1. des? Það er enginn að fara út að fagna einhverju á 1. des. Það er of mikið myrkur. Of mikil mugga. Of mikið kvef og nef- rennsli. Of mikill jólaerill. Og svo nennir fólk kannski ekki að fagna þessu fullveldi lengur? Ég veit það ekki. Núll stig Þetta var árið sem Ísland, sem fullvalda þjóð, fékk núll stig í Júróvisjón. Sem sagt: Viss ládeyða. Kannski var tónninn sleginn strax í upphafi árs? Hvert var aðalum- ræðuefni janúarmánaðar, gott fólk? Jú. Jarðvegsgerlar. Hér fór fram áköf og gagnmerk umræða um jarðvegsgerla sem fundust í kalda vatninu í Reykjavík. Margir urðu sérfræðingar. Sumum varð heitt í hamsi. Mig rámar í að ein- hver hafi viljað að Dagur segði af sér. Eða var það út af saurgerlum í sjónum? Í öllu falli: Þetta jarðvegs- gerlamál er óútkljáð. Það er greini- legt að menn ætla ekki að klára þessu umræðu. Febrúar kom. Ég held að ein meginástæða þess að árið er svona í huga manns eins og það er — lítið afgerandi — sé sú að í pólitíkinni gerðist eiginlega ekki neitt nema rétt undir lokin þegar Sigmundur og félagar duttu í það. Að öðru leyti voru stjórnmálin mestmegnis með kyrrum kjörum. Ástæða þess held ég að sé einföld. Mér sýnist að við stjórnvölinn sé ríkisstjórn sem hefur það beinlínis að markmiði sínu, og kannski að eina markmiði sínu, að gera sem minnst. Að setja á pásu. Að rugga ekki bátnum. Þetta sést einna best á því að þingið fór í frí fyrir jól á tilsettum tíma, sem hefur ábyggi- lega ekki gerst síðan níu hundruð og eitthvað. Þetta markmið er smá skiljan- legt. Eftir mörg ár óróa og mót- mæla ríkir viss langþreyta í samfélaginu. Friður er markmið í Hvað gerðist eiginlega? Guðmundur Steingrímsson Í DAG Dregið hefur verið í jólahappdrætti Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra. Vinningar komu á eftirtalin númer: Toyota Yaris live Hybrid að verðmæti kr. 3.050.000 hvor bifreið 27141 46549 Ferðavinningur að upphæð kr. 600.000 hver vinningur 2753 37234 62933 Ferðavinningur að upphæð kr. 300.000 hver vinningur 163 9348 20352 28221 34714 43661 51876 63816 69496 949 9811 20949 29314 34896 44355 53002 64011 1266 10077 21034 29726 36712 44650 55478 64724 3295 10587 21148 30092 36945 44876 55744 64988 3327 11088 21468 30521 37022 45044 57508 66625 4451 11209 21841 31069 39165 46187 58051 67602 4485 11601 23448 31578 39244 46712 58110 68003 4796 12249 23615 31919 40267 47628 59543 68294 4911 12852 25649 32279 40927 48289 60060 68304 6527 12874 25973 33140 40990 48411 62637 68425 6570 13650 26286 33154 41390 49572 62928 68447 7410 16550 26546 34037 41825 50387 63025 68526 8305 20014 27346 34429 42183 51518 63623 68961 Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra þakkar landsmönnum veittan stuðning og óskar vinningshöfum til hamingju. Handhafar vinningsmiða framvísi þeim á skrifstofu Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra að Háaleitisbraut 13, Reykjavík, sími 535-0900. Byrjað verður að greiða út vinninga 7. janúar 2019. Vinningaskrá er einnig birt á heimasíðu félagsins www.slf.is sjálfu sér. Einstaka verkalýðsleið- togar eru að reyna að keyra upp stemningu fyrir marxisma og smá byltingu, en heilt yfir virðist ríkja þörf fyrir ró. Þjóðin er innávið. Breyttur veruleiki Facebook mun þó auðvitað alltaf loga. Þjóðin er ekki steindauð. Eitt af því sem hefur einkennt árið er aukinn hraði vissra umfangs- mikilla breytinga úr einum veru- leika yfir í annan, þar sem sam- félagsmiðlar eru í aðalhlutverki. Við erum öll í beinni útsendingu. Við erum öll í lófanum á hinum. Enginn getur lengur farið niður í bæ og verið dóni án þess að vakna daginn eftir við sms frá mömmu sinni um að það sé eitthvert skrítið myndband af honum í gangi á internetinu. Svona er þetta bara. Núna er runninn upp sá tími að allir verða að haga sér, eða vera með hauspoka ella. Hvert þetta leiðir á endanum á eftir að koma í ljós. Það er ekki augljóst að allsherjar sið- og kurt- eisisbyltingin verði niðurstaðan. Hugsanlega breytast bara viðmiðin eða dólgslætin magnast í óhler- uðum undirheimum. Kannski verður veröldin þannig eftir tíu ár að myndband af þingmönnum á bar að tala illa um konur þykir alvanalegt. Enn ein upptakan. Ég vona ekki, en við vitum það ekki. Tímarnir eru forvitnilegir hvað þetta varðar. Framtíðin þróast yfir- leitt ekki í beinni, rökréttri línu. Svona bylting færir okkur til áður óþekktra áfangastaða. Annað sem virðist þó þróast í óþægilega beinni, rökréttri línu eru loftlagsbreytingar. Þar er línan skýr. Við erum á leið til fjandans. Undir þessu lítt afgerandi ári kraumuðu þannig afgerandi breytingar einnig hvað þetta varðar. Þetta var ár veðursins. Hér á Íslandi var skítaveður. Úti í heimi loguðu skógar í fortaks- lausum hitabylgjum og þurrkum með skelfilegum afleiðingum. Þessi veruleiki mun hafa áhrif á okkur öll. Eitthvað rosalegt þarf að gera. Megi ófyrirsjáanleg bylting gjarnan breyta þessari línu. Móment ársins Spurning um að setja Hannes Þór Halldórsson í málið? Auðvitað var það móment ársins þegar Hannes varði vítið frá Messi. Ef Hannes er ekki búinn að prenta út þá frétta- mynd og þekja stofuvegginn sinn með henni er spurning um að ein- hver geri það fyrir hann. Það var líklega hin raunverulega fullveldis- hátíð, þegar Íslendingar hoppuðu um andlitsmálaðir í Íslandsbolum í húsunum sínum, á börum, í almenningsgörðum eða úti í Rúss- landi þegar Hannes varði vítið. Og auðvitað er það einkennandi fyrir mann sem Íslending að sami skapi, að maður skuli ekki telja ástæðu til að fjölyrða frekar um frammistöðu íslenska liðsins á þessum vettvangi. Maðurinn varði frá Messi. Geri aðrir betur. Lífið er núna Já, farvel, árið 2018. Ég hafði gaman af þér. Nú þegar ég hef gúgglað hvað gerðist sé ég að þetta var þrátt fyrir allt eitt af þessum árum sem voru full af lífi og fjöri. Það var eitthvað manneskjulegt við þetta ár. Sjálfsskoðun ríkir. Það er gerjun í gangi. Andstæðurnar í veröldinni eru miklar og enginn veit í raun hvað gerist næst. Ég fer hins vegar ekki ofan af því hversu bitastætt það er að setjast niður og ætla sér að rifja upp atburði þjóðlífsins, en muna ekki baun. Hvað skiptir máli? Hvað situr eftir þegar ár líður? Ég held að flestir hafi sömu sögu að segja. Atburðir einka- lífsins og þeir atburðir sem snerta við manni í tilverunni, eru efstir á baugi. Ég man lítið eftir Piu Kjærsgaard, né heldur hvarflar hugurinn oft að jarðvegsgerlum í Heiðmörk, en vá hvað ég ber góðar minningar frá fermingu dóttur minnar, fyrsta maraþoni okkar hjóna, frábæru balli í Flatey, bakpokaferðalagi um Portúgal og árlegri skíðaferð norður. Við- burðir þjóðlífsins koma og fara en lífið heldur áfram. Alls staðar er fólk að gera eitthvað. Fólk í vinnu. Fólk í stressi. Fólk að hlæja. Fólk að syrgja. Fólk að keppa að markmiðum. Fólk að slaka á. Fólk að lifa af. Fólk að hittast. Fólk að plana. Lífið er núna, sagði Stefán Karl og kvaddi. Mér finnst það vera setning ársins frá manni ársins. Enn eitt árið er liðið manni til lág- stemmdrar en skýrrar áminningar um það að hið besta sem manni býðst er að skapa sér góðar minn- ingar sjálfur og safna þeim. Svo getur maður gúgglað allt hitt. Gleðilegt ár! Minnið er steindautt. Samt veit maður að á þessu ári urðu skandalar, eins og á öllum öðrum árum. 2 9 . D E S E M B E R 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R12 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 9 -1 2 -2 0 1 8 0 4 :2 1 F B 0 9 6 s _ P 0 9 2 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 8 5 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 E C -0 E 0 4 2 1 E C -0 C C 8 2 1 E C -0 B 8 C 2 1 E C -0 A 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 9 6 s _ 2 8 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.