Fréttablaðið - 29.12.2018, Blaðsíða 18
Skáldið og rithöfundurinn Ólafur Jóhann Sigurðs-son hefði orðið 100 ára í ár. Hann var eitt helsta skáld þjóðarinnar á 20. öld, sendi frá sér ljóða-
bækur, skáldsögur, smásögur og
barnabækur. Hann hlaut fyrstur
Íslendinga bókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðs árið 1976 fyrir
ljóðabækurnar Að laufferjum og Að
brunnum. Ritverk hans hafa verið
þýdd á átján tungumál.
Í tilefni aldarafmælisins verður
haldin samkoma sunnudaginn
30. desember í Iðnó og hefst hún
klukkan 15. Meðal þeirra sem
koma fram á samkomunni eru synir
skáldsins, Jón og Ólafur Jóhann.
Reglusamur í öllu
„Jón mun rifja upp atvik frá
bernskuheimilinu og ég les tvö
kvæði eftir pabba um foreldra
hans,“ segir Ólafur Jóhann. Spurð-
ur hvenær hann hafi fyrst kynnst
verkum föður síns segir hann: „Mig
grunar að það fyrsta sem ég las eftir
hann hafi verið barnabækur hans,
Við Álftavatn og Um sumarkvöld
sem hann skrifaði á unglingsaldri.
Hann hélt aldrei að mér sínum eigin
verkum, en ég var snemma farinn
að lesa fullorðinsbókmenntir og
las verk hans með öðrum bók-
menntum.“
Ólafur Jóhann gerðist rithöfund-
ur eins og faðir hans og hefur sent
frá sér fjölda bóka við góðar undir-
tektir og hlaut árið Íslensku bók-
menntaverðlaunin árið 2007 fyrir
smásagnasafn sitt Aldingarðinn.
„Ég sá mjög snemma út á hvað starf
rithöfundar gengur, það snýst um
mikla vinnu. Pabbi var mjög reglu-
samur í öllu, einnig vinnu, en þar
vildi hann nýta hverja stund. Hann
var strangur við sjálfan sig. Hann
benti mér á bækur og við spjöll-
Hann vildi nýta hverja stund
„Ég sá mjög snemma út á hvað starf rithöfundar gengur, það snýst um mikla
vinnu,“ segir ÓIafur Jóhann Ólafsson rithöfundur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
„Hann var strangur við sjálfan sig,“ segir Ólafur Jóhann um Ólaf Jóhann Sigurðsson föður sinn.
Samkoma verður í
Iðnó á sunnudag í
tilefni aldarafmælis
Ólafs Jóhanns Sig-
urðssonar, skálds og
rithöfundar. Heildar-
safn ljóða hans er
komið út.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrun@frettabladid.is
HANN BENTI MÉR Á BÆKUR
OG VIÐ SPJÖLLUÐUM UM
BÓKMENNTIR OG ÞEGAR
ÉG BYRJAÐI SJÁLFUR AÐ
SKRIFA LAS HANN SKRIF
MÍN YFIR.
uðum um bókmenntir og þegar ég
byrjaði sjálfur að skrifa las hann
skrif mín yfir.“
Stórvirkið um Pál
Spurður hvaða verk föður síns hann
hafi í mestum hávegum segir Ólafur
Jóhann: „Ég hef alltaf haldið upp á
smásögur hans. Bréf séra Böðvars
hefur líka alla tíð verið í miklu
uppáhaldi hjá mér, mörg ljóða hans
sömuleiðis og svo stóri þríleikurinn
um Pál blaðamann, sem er eitt af
helstu stórvirkjum okkar á síðustu
öld og það bókmenntaverk sem
fjallar ítarlegast um seinni heims-
styrjöldina. Ég hafði ekki lesið þrí-
leikinn í nokkurn tíma, líklega frá
því síðasta bókin kom út árið 1983,
en fyrir rúmlega tveimur árum las ég
hann allan aftur og naut þess mjög.
Þær bækur eru í mestu uppáhaldi
hjá mér.“
Heildarsafn komið út
Þau sem tala um Ólaf Jóhann Sig-
urðsson og lesa upp úr verkum
hans á samkomunni í Iðnó eru auk
sona hans: Vésteinn Ólason, Þor-
leifur Hauksson, Þóra Sigríður Ing-
ólfsdóttir, Þorsteinn Gunnarsson,
Gunnar Stefánsson, Guðmundur
Andri Thorsson og Þórey Sigþórs-
dóttir. Þá mun Ragnheiður Gröndal
syngja lög við kvæði Ólafs Jóhanns.
Aðgangur er ókeypis.
Þess skal að lokum getið að í til-
efni aldarafmælisins er komið út
heildarsafn ljóða Ólafs Jóhanns með
ítarlegum formála Vésteins Ólason-
ar. Á bókarkápu er vitnað í þessi orð
Kristjáns Árnasonar skálds: „Að lesa
ljóð Ólafs Jóhanns er ekki ósvipað
því að horfa ofan í silfurtæran hyl.“
Hitað upp fyrir
skaupið
Það styttist í að
árið verði gert
upp í árlegu
áramótaskaupi
RÚV. Það er fyrir
taks hugmynd að
liðka hláturtaug
arnar og horfa á
klassískar gaman
myndir á borð
við A Fish Called
Wanda, Wayne's
World og Dumb
and Dumber sem
ritstjórn Frétta
blaðsins er sam
mála um að falli
aldrei úr gildi.
Mary Poppins í bíó
Hin magnaða Mary Poppins snýr aftur til Banks
fjölskyldunnar í London á tímum kreppunnar
miklu. Emily Blunt leikur Mary sem kemur
þremur börnum sem hafa týnt gleðinni til
hjálpar.
Styðja við
Áramótaskóginn
Sprengjuglaðir
jafnt sem um
hverfissinnar
ættu að láta sér
annt um uppá
tæki björgunar
sveita sem bjóða
fólki að kaupa
rótarskot sem
verður gróðursett
í Áramótaskógi.
Vel til fundið!Strengja áramótaheit
Um áramót er tilvalið að strengja
áramótaheit. Til dæmis að minnka
farsímanotkun, eyða fleiri gæða
stundum með ástvinum, læra eitt
hvað nýtt, lifa heilsusamlegra lífi og
lenda í ævintýrum.
2 9 . D E S E M B E R 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R18 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
HELGIN
2
9
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:2
1
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
E
B
-F
5
5
4
2
1
E
B
-F
4
1
8
2
1
E
B
-F
2
D
C
2
1
E
B
-F
1
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
9
6
s
_
2
8
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K