Fréttablaðið - 29.12.2018, Síða 12
Merkilegt. Þegar maður lítur til baka yfir svona ár, eins og þetta ár var — ekkert rosalegt ár,
verður að segjast — þá er eins og
maður muni ekki baun eftir neinu
sem gerðist í þjóðlífinu. Maður er
tómur. Minnið er steindautt. Samt
veit maður að á þessu ári urðu
skandalar, eins og á öllum öðrum
árum. Það gusu upp hitamál. Það
var rifist um eitthvað. Eitthvað
gerðist. Maður bara man ekki
hvað. Maður þarf að rifja upp.
Mér til málsbóta má benda á
þá staðreynd að í raun áttu engir
gríðarlega afgerandi viðburðir sér
stað árið 2018. Held ég. Enginn
gekk á Tunglinu. Maður myndi
muna eftir því. Engin árás var gerð
á Tvíburaturna. Ekkert efnahags-
líf hrundi. Líf fannst ekki á öðrum
hnöttum. Loftsteinn skall ekki á
jörðinni.
Ár í móðu
Mér líður soldið eins og Gunn-
ari Braga hefur liðið þegar hann
vaknaði eftir Klaustur og teygði sig
í símann sinn. Hvað gerðist eigin-
lega? Ég er smá ringlaður. Ég er þó
ekki að vakna eftir óreglu. Ég hef
verið með fullum sönsum megnið
af árinu. Ég var ekki að gera upp á
bak. Ég hef verið að fylgjast með.
Yfirgripsmikið minnisleysi mitt
um þjóðfélagsmál er mér hins
vegar sérstakt umhugsunarefni á
þessum áramótum. Hvað skiptir
mann máli? Hvað situr eftir þegar
svona ár hverfur?
Ég gúggla. Það var greinilega
eitt og annað í deiglunni. Pia
Kjærsgaard kom og fór. Fundurinn
á Þingvöllum til að fagna full-
veldissáttmálanum var epískt
klúður. Ég hugsa að ef ég væri
einn af skipuleggjendum myndi
ég fara með slípirokk á öll skjöl
tengd ákvörðunum um þennan
viðburð, eins og Jón Gnarr gerði
við Banksy-plakatið. Líklega var
þetta klúður ársins. Fyrir utan
það hvað málflutningur Piu er
umdeildur á Íslandi og viðbrögðin
við komu hennar því ágætur
vitnisburður um tíðarandann, þá
felst viss lærdómur líka í öllum
þessum hátíðarhöldum í heild
sinni. Þau áttu að setja svip sinn
á árið. Þetta var jú 100 ára afmæli
fullveldisins. Fullt af fólki vann að
því af metnaði að skapa hátíðar-
stemningu í kringum þennan
viðburð. Fólk átti að valhoppa af
kæti með gasblöðru. En það varð
einhvern veginn ekki neitt úr
neinu. Drottningin kom og henni
varð kalt. Þingmenn voru þunnir.
Vindur gnauðaði. Kannski er þetta
fullreynt með 1. des? Það er enginn
að fara út að fagna einhverju á
1. des. Það er of mikið myrkur. Of
mikil mugga. Of mikið kvef og nef-
rennsli. Of mikill jólaerill. Og svo
nennir fólk kannski ekki að fagna
þessu fullveldi lengur? Ég veit það
ekki.
Núll stig
Þetta var árið sem Ísland, sem
fullvalda þjóð, fékk núll stig í
Júróvisjón. Sem sagt: Viss ládeyða.
Kannski var tónninn sleginn strax
í upphafi árs? Hvert var aðalum-
ræðuefni janúarmánaðar, gott
fólk? Jú. Jarðvegsgerlar. Hér fór
fram áköf og gagnmerk umræða
um jarðvegsgerla sem fundust í
kalda vatninu í Reykjavík. Margir
urðu sérfræðingar. Sumum varð
heitt í hamsi. Mig rámar í að ein-
hver hafi viljað að Dagur segði af
sér. Eða var það út af saurgerlum í
sjónum? Í öllu falli: Þetta jarðvegs-
gerlamál er óútkljáð. Það er greini-
legt að menn ætla ekki að klára
þessu umræðu.
Febrúar kom. Ég held að ein
meginástæða þess að árið er
svona í huga manns eins og það
er — lítið afgerandi — sé sú að í
pólitíkinni gerðist eiginlega ekki
neitt nema rétt undir lokin þegar
Sigmundur og félagar duttu í það.
Að öðru leyti voru stjórnmálin
mestmegnis með kyrrum kjörum.
Ástæða þess held ég að sé einföld.
Mér sýnist að við stjórnvölinn sé
ríkisstjórn sem hefur það beinlínis
að markmiði sínu, og kannski að
eina markmiði sínu, að gera sem
minnst. Að setja á pásu. Að rugga
ekki bátnum. Þetta sést einna best
á því að þingið fór í frí fyrir jól á
tilsettum tíma, sem hefur ábyggi-
lega ekki gerst síðan níu hundruð
og eitthvað.
Þetta markmið er smá skiljan-
legt. Eftir mörg ár óróa og mót-
mæla ríkir viss langþreyta í
samfélaginu. Friður er markmið í
Hvað gerðist eiginlega?
Guðmundur
Steingrímsson
Í DAG
Dregið hefur verið í jólahappdrætti Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra. Vinningar komu á eftirtalin númer:
Toyota Yaris live Hybrid að verðmæti kr. 3.050.000 hvor bifreið
27141 46549
Ferðavinningur að upphæð kr. 600.000 hver vinningur
2753 37234 62933
Ferðavinningur að upphæð kr. 300.000 hver vinningur
163 9348 20352 28221 34714 43661 51876 63816 69496
949 9811 20949 29314 34896 44355 53002 64011
1266 10077 21034 29726 36712 44650 55478 64724
3295 10587 21148 30092 36945 44876 55744 64988
3327 11088 21468 30521 37022 45044 57508 66625
4451 11209 21841 31069 39165 46187 58051 67602
4485 11601 23448 31578 39244 46712 58110 68003
4796 12249 23615 31919 40267 47628 59543 68294
4911 12852 25649 32279 40927 48289 60060 68304
6527 12874 25973 33140 40990 48411 62637 68425
6570 13650 26286 33154 41390 49572 62928 68447
7410 16550 26546 34037 41825 50387 63025 68526
8305 20014 27346 34429 42183 51518 63623 68961
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra þakkar landsmönnum veittan stuðning og óskar vinningshöfum til hamingju.
Handhafar vinningsmiða framvísi þeim á skrifstofu Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra að Háaleitisbraut 13,
Reykjavík, sími 535-0900.
Byrjað verður að greiða út vinninga 7. janúar 2019. Vinningaskrá er einnig birt á heimasíðu félagsins www.slf.is
sjálfu sér. Einstaka verkalýðsleið-
togar eru að reyna að keyra upp
stemningu fyrir marxisma og smá
byltingu, en heilt yfir virðist ríkja
þörf fyrir ró. Þjóðin er innávið.
Breyttur veruleiki
Facebook mun þó auðvitað alltaf
loga. Þjóðin er ekki steindauð.
Eitt af því sem hefur einkennt árið
er aukinn hraði vissra umfangs-
mikilla breytinga úr einum veru-
leika yfir í annan, þar sem sam-
félagsmiðlar eru í aðalhlutverki.
Við erum öll í beinni útsendingu.
Við erum öll í lófanum á hinum.
Enginn getur lengur farið niður í
bæ og verið dóni án þess að vakna
daginn eftir við sms frá mömmu
sinni um að það sé eitthvert skrítið
myndband af honum í gangi á
internetinu. Svona er þetta bara.
Núna er runninn upp sá tími að
allir verða að haga sér, eða vera
með hauspoka ella.
Hvert þetta leiðir á endanum
á eftir að koma í ljós. Það er ekki
augljóst að allsherjar sið- og kurt-
eisisbyltingin verði niðurstaðan.
Hugsanlega breytast bara viðmiðin
eða dólgslætin magnast í óhler-
uðum undirheimum. Kannski
verður veröldin þannig eftir tíu
ár að myndband af þingmönnum
á bar að tala illa um konur þykir
alvanalegt. Enn ein upptakan. Ég
vona ekki, en við vitum það ekki.
Tímarnir eru forvitnilegir hvað
þetta varðar. Framtíðin þróast yfir-
leitt ekki í beinni, rökréttri línu.
Svona bylting færir okkur til áður
óþekktra áfangastaða.
Annað sem virðist þó þróast
í óþægilega beinni, rökréttri
línu eru loftlagsbreytingar. Þar
er línan skýr. Við erum á leið til
fjandans. Undir þessu lítt afgerandi
ári kraumuðu þannig afgerandi
breytingar einnig hvað þetta
varðar. Þetta var ár veðursins.
Hér á Íslandi var skítaveður. Úti
í heimi loguðu skógar í fortaks-
lausum hitabylgjum og þurrkum
með skelfilegum afleiðingum. Þessi
veruleiki mun hafa áhrif á okkur
öll. Eitthvað rosalegt þarf að gera.
Megi ófyrirsjáanleg bylting gjarnan
breyta þessari línu.
Móment ársins
Spurning um að setja Hannes Þór
Halldórsson í málið? Auðvitað var
það móment ársins þegar Hannes
varði vítið frá Messi. Ef Hannes er
ekki búinn að prenta út þá frétta-
mynd og þekja stofuvegginn sinn
með henni er spurning um að ein-
hver geri það fyrir hann. Það var
líklega hin raunverulega fullveldis-
hátíð, þegar Íslendingar hoppuðu
um andlitsmálaðir í Íslandsbolum
í húsunum sínum, á börum, í
almenningsgörðum eða úti í Rúss-
landi þegar Hannes varði vítið. Og
auðvitað er það einkennandi fyrir
mann sem Íslending að sami skapi,
að maður skuli ekki telja ástæðu til
að fjölyrða frekar um frammistöðu
íslenska liðsins á þessum vettvangi.
Maðurinn varði frá Messi. Geri
aðrir betur.
Lífið er núna
Já, farvel, árið 2018. Ég hafði
gaman af þér. Nú þegar ég hef
gúgglað hvað gerðist sé ég að þetta
var þrátt fyrir allt eitt af þessum
árum sem voru full af lífi og fjöri.
Það var eitthvað manneskjulegt
við þetta ár. Sjálfsskoðun ríkir. Það
er gerjun í gangi. Andstæðurnar í
veröldinni eru miklar og enginn
veit í raun hvað gerist næst.
Ég fer hins vegar ekki ofan af því
hversu bitastætt það er að setjast
niður og ætla sér að rifja upp
atburði þjóðlífsins, en muna ekki
baun. Hvað skiptir máli? Hvað
situr eftir þegar ár líður?
Ég held að flestir hafi sömu
sögu að segja. Atburðir einka-
lífsins og þeir atburðir sem
snerta við manni í tilverunni, eru
efstir á baugi. Ég man lítið eftir
Piu Kjærsgaard, né heldur hvarflar
hugurinn oft að jarðvegsgerlum
í Heiðmörk, en vá hvað ég ber
góðar minningar frá fermingu
dóttur minnar, fyrsta maraþoni
okkar hjóna, frábæru balli í Flatey,
bakpokaferðalagi um Portúgal og
árlegri skíðaferð norður. Við-
burðir þjóðlífsins koma og fara
en lífið heldur áfram. Alls staðar
er fólk að gera eitthvað. Fólk í
vinnu. Fólk í stressi. Fólk að hlæja.
Fólk að syrgja. Fólk að keppa að
markmiðum. Fólk að slaka á. Fólk
að lifa af. Fólk að hittast. Fólk að
plana.
Lífið er núna, sagði Stefán Karl
og kvaddi. Mér finnst það vera
setning ársins frá manni ársins.
Enn eitt árið er liðið manni til lág-
stemmdrar en skýrrar áminningar
um það að hið besta sem manni
býðst er að skapa sér góðar minn-
ingar sjálfur og safna þeim. Svo
getur maður gúgglað allt hitt.
Gleðilegt ár!
Minnið er steindautt. Samt
veit maður að á þessu ári
urðu skandalar, eins og á
öllum öðrum árum.
2 9 . D E S E M B E R 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R12 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
9
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:2
1
F
B
0
9
6
s
_
P
0
9
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
E
C
-0
E
0
4
2
1
E
C
-0
C
C
8
2
1
E
C
-0
B
8
C
2
1
E
C
-0
A
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
9
6
s
_
2
8
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K