Fréttablaðið - 29.12.2018, Qupperneq 54
Kristófer Jensson syngur með hljómsveitinni Lights on the Highway í kvöld og annað kvöld á Hard Rock. Sveitin hefur ekki komið saman í þrjú ár og Kristófer hlakkar mikið til. MYND/ERNIR
Sólveig
Gísladóttir
solveig@frettabladid.is
Þrjú ár eru síðan Lights on the Highway kom saman síðast en sveitin átti farsælan
sprett í íslensku tónlistarlífi frá
2003 til 2012. Sveitin gaf út tvær
breiðskífur á tímabilinu, seinni
platan, Amanita Muscaria, var til
nefnd sem plata ársins á Íslensku
tónlistarverðlaununum 2009.
Söngvari sveitarinnar, Kristófer
Jensson, svarar hér nokkrum lauf
léttum spurningum.
Fjölskylda?
Konan mín er Guðlaug Arn
þrúður Guðmundsdóttir, Adda, og
börnin mín eru Kristel Eva, 11 ára,
og Katla Maren, 3 ára.
Hljómsveitir sem þú hefur verið
í?
Cyclone, Carpet, Thin Jim and
the Castaways, Lights on the
Higway.
Áttu þér gælunafn?
Oftast kallaður Kristó.
Hvert er áramótaheitið fyrir
2019?
Ég hef aldrei gefið út einhver sér
stök áramótaheit, en ætlar maður
ekki alltaf að reyna að vera betri
útgáfa af sjálfum sér á nýju ári?
Besta augnablik síðasta árs?
Sumarfríið með fjölskyldunni.
Kærasta æskuminningin?
Heyskapur í sveitinni minni að
Eiði í Kolgrafarfirði.
Neyðarlegasta atvikið?
Þegar ég hrundi í gólfið fyrir
framan fullan strætó af fólki í
Brighton á Englandi. Stóð upp til
að hringja bjöllunni og var búinn
að gleyma að það voru „pull up“
sæti í vagninum. Þegar ég ætlaði
að setjast aftur var sætið farið. Það
sprungu allir úr hlátri í vagninum,
enda mjög fyndið atvik.
Heitur pottur eða gufubað?
Heitur pottur, svo gufubað.
Klukkan hvað ferðu að sofa á
kvöldin?
Í kring um miðnætti.
Hvenær vaknar þú á morgnana?
Korter í sjö.
Áttu bíl?
Nei, en konan mín á tvo.
Ástin er …
… eins og sinueldur, ástin er
segulstál.
Bíómyndin sem þú getur horft á
aftur og aftur?
Requiem for a Dream.
Þinn helsti löstur?
Ég er full hreinskilinn á köflum.
Þinn besti kostur?
Að ég er full hreinskilinn á
köflum.
Áttu þér leikaratvífara?
Einhverjir hafa sagt Mads Mikk
elsen sem ég reyndar skil ekki.
Áttu gæludýr?
Nei.
Draumahelgin?
Rólegheit heima hjá mér með
fjölskyldunni.
Næst á dagskrá?
Tvennir tónleikar á Hard Rock
Reykjavík með Lights on the
Highway 29. og 30. desember.
Það eru þrjú ár frá því að við
komum saman síðast þannig að
það er mikil tilhlökkun hjá okkur.
Uppselt er á fyrri tónleikana en
einhverjir miðar eftir á seinni á
tix.is.
Svo bara áramót með öllu til
heyrandi.
Full hreinskilinn á köflum
Kristófer Jensson rifjar upp gamla takta sem söngvari Lights on the Highway á Hard Rock um
helgina. Sumarfríið með fjölskyldunni var hápunktur ársins en áramótaheit strengir hann ekki.
BÍLABLAÐ FRÉTTABLAÐSINS
Mest lesna bílablað landsins kemur næst út
þriðjudaginn 8. janúar næstkomandi.
Ritstjóri blaðsins er Finnur Thorlacius sem er
bílaáhugamaður af lífi og sál.
Umsjón auglýsinga:
Atli Bergmann • atli@frettabladid.is • sími 512 5457
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 9 . D E S E M B E R 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
2
9
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:2
1
F
B
0
9
6
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
E
C
-5
3
2
4
2
1
E
C
-5
1
E
8
2
1
E
C
-5
0
A
C
2
1
E
C
-4
F
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
9
6
s
_
2
8
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K