Fréttablaðið - 29.12.2018, Page 74
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Auðbrekku 1, Kópavogi síðan 1996
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er.
Margrét Ásta GuðjónsdóttirSverrir EinarssonKristín Ingólfsdóttir
Útfararþjónusta
Vönduð og persónuleg þjónusta
athofn@athofn.is - www.athofn.is
ATHÖFN ÚTFARAÞJÓNUSTA - s: 551 7080 & 691 0919
Inger Steinsson
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram-
kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Lára Árnadóttir,
umsjón útfara
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 9, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Ástkær eiginmaður minn, faðir og afi,
Sigurður Símon Sigurðsson
Fossheiði 15, Selfossi,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands
fimmtudaginn 27. desember.
Ingibjörg Guðmundsdóttir
Guðrún Halldóra Sigurðardóttir
Laufey Soffía Þórsdóttir
Ástkær móðir okkar, amma
og langamma,
Ingibjörg Árnadóttir
Látraströnd 50, Seltjarnarnesi,
andaðist á Landspítalanum þann
9. desember. Útförin hefur farið fram
í kyrrþey.
Þorbjörg Nanna Haraldsdóttir
Kristjana Edda Haraldsdóttir
Heimir Haraldsson
Ágúst Fjeldsted Ilia Anna Haarde
Hermann Sigurðsson Sigríður Dögg Arnardóttir
og barnabarnabörn.
Yndislega dóttir okkar,
systir og mágkona,
Laufey Eiríksdóttir
Blikaási 1, Hafnarfirði,
andaðist 26. desember á líknardeild
LSH í Kópavogi. Útförin fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn
8. janúar kl. 13.00.
Arnþrúður Þórðardóttir Eiríkur Bj. Barðason
Gustav Þór Álfhildur
Árni Þór Andrea Helga
og aðrir ástvinir.
Þó Alexandra Jóhannesdóttir sé borgarbarn að uppruna þá líst henni vel á sig á Skagaströnd, enda sótti hún um sveitar-stjórastarf þar – og fékk. „Ég
var fyrir norðan í eina viku fyrir jólin,
langaði að taka smá snúning þar áður
en árinu lyki og flyt svo með mitt hafur-
task þangað núna upp úr áramótum,“
segir hún. Kveðst hafa skrifað undir
ráðningarsamninginn í september en
þurft að vinna uppsagnarfrest í Reykja-
vík og einungis tekið tveggja daga frí á
milli starfa.
Þó Alexandra sé bara þrítug að aldri
hefur hún verið framkvæmdastjóri í
tveimur fyrirtækjum. Nú síðast vann
hún sem almennur lögfræðingur í sam-
steypu sem heitir IP Eignarhald en hún
segir nýja embættið frumraun hennar
í sveitarstjórnarstarfi. „Mig langaði að
breyta til og líka að skipta um umhverfi,
komast út úr bænum og í þessa ró sem
fylgir lífi úti á landi, eins og ég geri mér
það í hugarlund að minnsta kosti,“ segir
hún og fullyrðir að reynsla hennar af
fyrstu dögunum á Skagaströnd lofi
góðu. „Mér þótti mjög gott að koma
norður, þar tóku mér allir af mikilli
hlýju og vinsemd. Þetta er öðru vísi sam-
félag en í bænum, nándin er svo mikil
bæði við bæjarbúa og náttúruna og allt
var gert til að bjóða mig velkomna.“
Tæplega 500 íbúar eru á Skagaströnd,
að sögn Alexöndru. Grunnþjónustan
sem er á hendi sveitarfélagsins er þó sú
sama og í fjölmennari sveitarfélögum
og skyldurnar þær sömu. „Svo er hlut-
verk sveitarstjóra Skagastrandar aðeins
viðameira en víða annars staðar því
hann er hafnarvörður á staðnum. Einn-
ig sinnir hann starfi framkvæmdastjóra
félagsþjónustu Austur-Húnavatnssýslu,
það er byggðasamlag um það verkefni
og sveitarstjórinn á Skagaströnd er
yfir málaflokknum. Það er því í ýmis
horn að líta,“ segir Alexandra og bætir
við. „En ég er með gott fólk í kring um
mig sem þekkir til og það er gríðarlega
mikilvægt.“
Húsnæðisskortur er ekki vandamál
á Skagaströnd og Alexandra kveðst
vera komin með litla raðhússíbúð rétt
hjá bæjarskrifstofunni. „Það er mikill
lúxus að vera þrjár mínútur að labba
í vinnuna í stað þess að vera kannski
hálftíma eða fjörutíu mínútur í bílnum
eins og margir búa við fyrir sunnan. Mér
finnst yndislegt að geta farið út að labba
með hundinn í morgunsárið og mæta
svo beint í vinnuna.“ Hún segir lögfræði-
þekkinguna ugglaust koma henni vel í
þessu nýja starfi og sá stjórnsýslubak-
grunnur sem henni fylgi. „Almenn lög-
fræði nýtist í raun og veru á hvaða sviði
sem er,“ segir hún. „Það er alltaf verið
að vinna með eitthvert regluverk, því er
gott að vera vel læs á það.“
gun@frettabladid.is
Lúxus að vera bara þrjár
mínútur að labba í vinnuna
Alexandra Jóhannesdóttir er nýr sveitarstjóri á Skagaströnd. Hún tók við veldissprot-
anum viku fyrir jól og flytur með búslóðina norður nú í byrjun nýs árs. Hún segir við-
tökurnar fyrir norðan hafa verið hlýjar og lítur björtum augum á framhaldið.
„Nándin er mikil bæði við bæjarbúa og náttúruna,“ segir Alexandra um lífið á Skagaströnd. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
2 9 . D E S E M B E R 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R34 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT
2
9
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:2
1
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
E
C
-2
B
A
4
2
1
E
C
-2
A
6
8
2
1
E
C
-2
9
2
C
2
1
E
C
-2
7
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
9
6
s
_
2
8
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K