Fréttablaðið - 03.01.2019, Blaðsíða 20
Huddersfield - Burnley 1-2
1-0 Steve Mounie (33.), 1-1 Charlie Wood
(40.), 1-2 Ashley Barnes (73.).
Rautt spjald: Cristopher Schindler (41.),
Robbie Brady (90.).
Chelsea - Southampton 0-0
Bournemouth - Watford 3-3
0-1 Troy Deeney (14.), 0-2 Deeney (27.), 1-2
Nathan Aké (34.), 2-2 Callum Wilson (37.),
2-3 Ken Sema (37.), 3-3 Ryan Fraser (40.).
West Ham - Brighton 2-2
0-1 Dale Stephens (56.), 0-2 Shane Duffy
(58.), 1-2 Marko Arnautovic (66.), 2-2 Ar-
nautovic (68.).
Wolves - Crystal Palace 0-2
0-1 Jordan Ayew (83.), 0-2 Luka Milivojevic,
víti (90+4.).
Newcastle - Man.United 0-2
0-1 Romelu Lukaku (64.), 0-2 Marcus Ras-
hford (80.).
Nýjast
Enska úrvalsdeildin
HANDBOLTI Íslenska karlalands-
liðið í handbolta mætir Noregi í
fjögurra liða æfingamóti sem fram
fer á norskri grundu næstu daga.
Þetta verður mun meiri prófsteinn
á liðið en fyrstu æfingaleikir liðsins
í undirbúningi sínum fyrir heims-
meistaramótið sem hefst í Þýska-
landi og Danmörku eftir rúma viku.
Guðmundur Þórður Guðmunds-
son fór með 17 leikmenn til Noregs
í leikina; gegn Noregi sem leikinn
verður klukkan 17.15 að íslenskum
tíma í dag, síðan Brasilíu og Hol-
landi. Ísland leikur við Brasilíu á
laugardaginn og Erling Richardsson
og lærisveina hans í hollenska lið-
inu á sunnudaginn kemur.
Arnar Freyr Arnarsson mun ekki
leika með íslenska liðinu í þessum
leikjum vegna meiðsla á nefi og
Stefán Rafn Sigurmannsson ferðað-
ist ekki með liðinu til Noregs vegna
veikinda sinna.
Heimir Óli Heimisson kemur
inn í íslenska hópinn í stað Arnars
Freys, en Guðjón Valur Sigurðsson
verður eini hreinræktaði vinstri
hornamaðurinn í hópnum í þess-
um leikjum. Þá kemur Ágúst Elí
Björgvinsson inn í markvarðasveit
íslenska liðsins frá stórsigrunum
gegn Aroni Kristjánssyni og liðs-
mönnum hans hjá Barein milli jóla
og nýárs.
Arnar Birkir Hálfdánarson,
Haukur Þrastarson, Ágúst Birgisson
og Óðinn Þór Ríkharðsson sem léku
með liðinu gegn Barein munu ekki
vera í leikmannhópnum að þessu
sinni, en þó kemur enn til greina
að þeir verði kallaðir inn í leik-
mannahópinn þegar liðið heldur
til München og hefur leik á heims-
meistaramótinu.
Þar verða Króatar fyrstu andstæð-
ingar íslenska liðsins í riðlakeppni
mótsins, en leikur liðanna fer fram
föstudaginn 11. janúar. Ísland er svo
með Spánverjum, Makedóníu, Bar-
ein og Japan, sem Dagur Sigurðsson
stýrir, í riðli á mótinu. – hó
Fyrsta stóra prófið í undirbúningnum
ENSKI BOLTINN Stuðningsmenn
Liverpool hafa beðið í tæp 29 ár eftir
þeirri tilfinningu að fá að sjá leik-
menn liðsins lyfta enska meistara-
titlinum í knattspyrnu karla. Nú er
liðið með sex stiga forystu á toppn-
um þegar 20 umferðir hafa verið
leiknar. Liðið heimsækir ríkjandi
meistara Manchester City á Etihad-
leikvanginn í kvöld og getur komið
sér í ansi þægilega stöðu í baráttu
sinni um að verða enskur meistari í
19. skipti í sögu félagsins í vor.
Síðan Liverpool varð meistari
árið 1999 hefur það lið sem situr
á toppi deildarinnar yfir jóla-
hátíðina oftast nær staðið uppi
sem sigurvegari vorið eftir.
Þeir sem hafa stutt Liverpool
í blíðu og stríðu minna sig
hins vegar á það að liðið var í
þeim sporum bæði tímabilin
2008-09 og 2013-14, en liðinu
tókst ekki að enda biðina
löngu þá. Þeir vilja því margir
hverjir ekki fara á flug í að láta sig
dreyma um að geta aftur kallað sig
ríkjandi meistara, en láta sér nægja
að gaspra um það í lokuðum hópum
að nú hljóti að vera komið að stóru
stundinni.
Manchester City hóf leiktíðina af
sama krafti og liðið endaði deild-
ina síðasta vor. Eftir að hafa gert
markalaust jafntefli við Liverpool í
fyrri umferð deildarinnar á Anfield
fylgdu sjö sigurleikir í deildinni í
röð. Þá tapaði liðið þremur af næstu
fjórum deildarleikjum sínum og
liðið er fyrir þennan leik í þriðja
sæti deildarinnar með 47 stig, stigi
á eftir Tottenham Hotspur sem er í
öðru sæti með 48 stig og sjö stigum
á eftir andstæðingi sínum í kvöld.
Margir telja að taphrinu Man-
chester City megi skýra með brott-
hvarfi Benjamins Mendy og svo
því að Fernandinho, Sergio Agü-
ero og Kevin De Bruyne hafi verið
meiddir en þeir eru að skríða saman
eftir meiðsli á þessum tímapunkti.
Fernandinho var á sínum stað sem
akkerið inni á miðsvæðinu hjá
Manchester City þegar liðið komst
aftur á sigurbraut með 3-1 sigri á
Southampton í síðustu umferð og
Agüero skoraði eitt marka liðsins í
þeim leik.
Liverpool getur sett átta fingur
á titilinn í Manchester í kvöld
Liverpool sækir Manchester City heim í toppslag ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu karla í 21. um-
ferð deildarinnar á Etihad-leikvanginum í kvöld. Liverpool nær níu stiga forskoti á toppi deildarinnar með
sigri í þessum leik, en Manchester City þarf nauðsynlega á sigri að halda til þess að halda lífi í titilvörninni.
Aron Pálmarsson verður í eldlínunni með íslenska landsliðinu í handbolta
þegar liðið mætir Noregi í æfingaleik ytra síðdegis í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Óvíst er aftur á móti hvort Pep
Guardiola geti teflt fram Kevin De
Bruyne í kvöld. Belgíski sóknar-
tengiliðurinn æfði með liðinu í gær
og tekin verður ákvörðun í dag um
hvort hann sé leikfær eður ei.
Liverpool hefur hins vegar haft
betur í síðustu átta leikjum sínum í
öllum keppnum eða frá því að liðið
laut í lægra haldi fyrir PSG í næst-
síðustu umferð riðlakeppninnar í
Meistaradeild Evrópu í lok nóvem-
ber. Liðið kom sér með þessum sigr-
um áfram í 16 liða úrslit Meistara-
deildarinnar og í þægilegt forskot á
toppi deildarinnar. Liverpool fór illa
með Arsenal í síðustu umferð þar
sem lokatölur urðu 5-1, en Roberto
Firmino sem hafði haft hægt um sig
í markaskorun fram að því skoraði
þrennu í þeim leik.
Jafntefli í leiknum í kvöld við-
heldur þeirri stöðu sem liðið er í, en
sigur myndi mögulega koma stuðn-
ingsmönnum Liverpool úr lokuðum
hópum og fram í dagsljósið og á
samfélagsmiðla þar sem básúnað
verður að nú verði stuðningsmenn
annarra liða að trúa því að liðið
bæti 19. meistaratitlinum í safn
sitt og minnki forskot Man chester
United sem sigursælasta liðs í sögu
ensku efstu deildarinnar í einn titil.
hjorvaro@frettabladid.is
Jürgen Klopp sem stýrir Liverpool og Pep Guardiola, stjóri Manchester City, leiða saman hesta sína á Etihad-vellinum.
Úrslit leiksins ráða miklu um framhaldið í toppbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu. NORDICPHOTOSGETTY
Aðeins Liverpool hefur
verið á toppi ensku deildar-
innar um jólin án þess að
verða svo meistari.
8
Liverpool hefur sigrað
í síðustu átta leikjum
sínum í öllum keppnum.
FÓTBOLTI Bandaríski sóknartengi-
liðurinn Christian Pulisic skrifaði í
gær undir samning hjá Chelsea en
hann gengur til liðs við félagið frá
Dortmund í sumar. Með því hafði
Chelsea betur í kapphlaupi við
mörg af stærstu liðum Evrópu um
skærustu stjörnu Bandaríkjanna í
knattspyrnu þrátt fyrir að Pulisic sé
aðeins tvítugur að aldri.
Chelsea greiðir tæplega sextíu
milljónir punda fyrir Pulisic sem
átti átján mánuði eftir af samningi
sínum í Þýskalandi. Með því er Pul-
isic þriðji dýrasti leikmaðurinn í
sögu félagsins á eftir Kepa Arrizaba-
laga og Alvaro Morata og dýrasti
bandaríski leikmaðurinn í sögunni.
Hann mun klára tímabilið hjá Dort-
mund sem er í harðri baráttu um
titilinn heima fyrir áður en hann
leikur fyrsta leik sinn fyrir Chelsea.
Pulisic skaust fram á sjónar-
sviðið með liði Dortmund aðeins
átján ára gamall og hefur alls leikið
115 leiki fyrir þýska félagið þrátt
fyrir ungan aldur en hlutverk hans
hefur farið minnkandi eftir komu
Jadons Sancho til Dortmund. Með
bandaríska landsliðinu hefur hann
leikið 23 leiki og skorað í þeim
níu mörk og bar fyrirliðabandið í
fyrsta sinn á dögunum. Varð Pul-
isic með því yngsti
fyrirliðinn í sögu
b a n d a r í s k a
l a n d s l i ð s i n s
og er honum
ætlað að leiða
liðið næsta ára-
tuginn. – kpt
Vonarstjarna
Bandaríkjanna
til Chelsea
Hinn banda-
ríski Pulisic.
3 . J A N Ú A R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R20 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
0
3
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:4
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
E
E
-C
6
3
4
2
1
E
E
-C
4
F
8
2
1
E
E
-C
3
B
C
2
1
E
E
-C
2
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
8
s
_
2
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K