Fréttablaðið - 03.01.2019, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 03.01.2019, Blaðsíða 12
og væntinga þeirra sem ákveða vexti bankans, það er nefndarmanna í peningastefnunefnd, um framtíðar­ þróun vaxtanna. Auk þess telur nefndin að birting spárinnar geti gefið til kynna meiri vissu en í raun sé fyrir hendi. Pen­ ingastefna sé ekki „verkfræðilegt“ úrlausnarefni sem hægt sé að leysa með stærðfræðilíkönum. Til þess sé óvissan of mikil. Nefndin nefnir sem dæmi að innan hennar séu afar ólíkar skoðan­ ir á því hverjir jafnvægisvextir Seðla­ bankans séu. Því óttist nefndar menn að birting einnar spár hjálpi ekki til við að upplýsa markaðinn um lík­ lega þróun vaxta bankans. Varast að draga línu í sandinn Peningastefnunefnd Seðlabankans telur enn fremur að hugsa þurfi betur tillögu starfshópsins um að bankinn geri svonefnt „umferðar­ ljósakerfi“ nýsjálenska seðla­ bankans að inngripastefnu sinni á gjaldeyrismarkaði. Nefndin segir tillöguna þó skoðunarverða og hyggst á næstu mánuðum koma á fót vinnuhópi sem fær það hlut­ verk að leggja mat á inngripastefnu bankans. Nýsjálenska kerfið lýsir sér í ein­ földu máli þannig að seðlabankinn beitir einungis inngripum á gjald­ eyrismarkaði ef gengi gjaldmið­ ilsins, nýsjálenska dalsins, er komið umfram það sem samræmst getur grundvallarhagstærðum hagkerfis­ ins. Gjaldeyrisinngrip eru þannig með síðustu viðbrögðum seðla­ bankans við gengissveiflum og eru því afar fátíð. Skýrar leikreglur gilda einnig um inngripin. Peningastefnunefndin bendir í viðbrögðum sínum á að takmörk séu fyrir því hve fyrirsjáanleg gjald­ eyrisinngrip seðlabanka geti verið án þess að hætta skapist á að fjár­ festar „krói bankann af og hagnist á einhliða veðmálum. Reynslan hefur sýnt að það getur verið varasamt að seðlabankar dragi línu í sandinn í þessum efnum,“ segir nefndin. kristinningi@frettabladid.is Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands telur ekki rétt að bankinn birti eigin stýrivaxtaspá líkt og starfshópur um ramma peninga­ stefnunnar lagði til síðasta sumar. Nefndin segir að birting spárinnar geti verið afvegaleiðandi og hjálpi ekki til við að upplýsa fjárfesta og almenning um líklega þróun stýri­ vaxta bankans. Til viðbótar geti birting spár af hálfu sérfræðinga Seðlabankans, sem er í grundvallaratriðum ólík sýn meirihluta peningastefnunefndar, skapað aukna óvissu á fjármála­ mörkuðum. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í viðbrögðum peninga­ stefnunefndar við tillögum starfs­ hópsins, sem Ásgeir Jónsson, dós­ ent í hagfræði við Háskóla Íslands, stýrði, en nefndin fjallaði um til­ lögurnar á fundi sínum í síðasta mánuði. Starfshópurinn, sem birti niður­ stöður sínar í júní í fyrra, sagði að ein leið til þess að bæta væntinga­ stjórnun Seðlabankans væri sú að hagfræðideild bankans myndi birta fjórum sinnum á ári vaxta­ spáferla sína sem liggja til grund­ vallar verðbólguspá bankans. Slíkt gæti styrkt markaðsvæntingar og aukið gagnsæi í langtímavaxta­ stefnu bankans. Peningastefnunefndin lýsir sig ósammála afstöðu starfshópsins að þessu leyti og bendir á að vaxtaspá Seðlabankans sé gerð af sérfræðing­ um bankans og sé því ekki spá pen­ ingastefnunefndarinnar. Ósamræmi geti því skapast á milli spár bankans Ekki rétt að bankinn birti eigin spá Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands telur að birting stýrivaxtaspáferils bankans muni ekki hjálpa til við að upplýsa fjárfesta um líklega þróun vaxtanna. Seðlabankinn hyggst koma á fót vinnuhópi til þess að meta inngripastefnu bankans á gjaldeyrismarkaði. Birta atkvæði hvers nefndarmanns Peningastefnunefnd Seðlabank- ans hefur gert breytingar á starfs- reglum sínum sem felast í því að frá og með fyrsta fundi nefndar- innar á þessu ári skal tilgreina í fundargerð hvers fundar hvernig atkvæði einstakra nefndarmanna féllu. Hingað til hefur aðeins verið greint frá því einu sinni á ári, í ársskýrslu Seðlabankans, hvernig einstakir nefndarmenn greiddu atkvæði undangengið ár. Með breytingunni er komið til móts við eina af tillögum starfshóps Ásgeirs Jónssonar en hópurinn taldi tillöguna til þess fallna að stuðla að aukinni um- ræðu við hverja vaxtaákvörðun um stefnu Seðlabankans þar sem skoðanir mismunandi nefndar- manna kæmu fram opinberlega. Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabankans, og Már Guðmundsson seðlabankastjóri eru tveir af fimm nefndarmönnum peningastefnunefndar. Breytingar hafa verið gerðar á starfsreglum nefndarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Það að birta vaxta- feril getur gefið til kynna meiri vissu en er í raun til staðar og getur því verið afvegaleiðandi. Úr viðbrögðum peningastefnu- nefndar Seðlabanka Íslands Námskeið fyrir matsmenn 15. og 16. janúar Lögmannafélag Íslands og dómstólasýslan standa fyrir námskeiði fyrir dómkvadda matsmenn. Farið verður yfir hlutverk matsmanna og starf þeirra frá dómkvaðningu og þar til þeir skila matsgerð og/eða mæta fyrir dóm. Þá verður farið yfir ákvæði einkamálalaga sem varða störf mats­ manna og samningu og uppsetningu matsgerða, undirbúning matsfunda og störf á vettvangi. Í lok síðari námskeiðsdags verður farið í Héraðsdóm Reykjavíkur þar sem nánar er upplýst um samskipti dómkvaddra mats­ manna við dómstólana. Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa verið matsmenn eða vilja gefa kost á sér sem matsmenn fyrir dómi á sínu sérsviði, s.s. iðnaðarmönnum, tækni­ fræðingum, verkfræðingum, læknum, sálfræðingum, viðskiptafræðingum og endurskoðendum. Handbók með ítarlegum leiðbeiningum fyrir dómkvadda matsmenn er innifalin í námskeiðsgjaldi. Kennarar Viðar Lúðvíksson lögmaður hjá Landslögum og Ragnar Ómarsson byggingafræðingur á Verkfræðistofunni Verkís, formaður Matsmannafélags Íslands. Staður Kennslustofa Lögmannafélags Íslands, Álftamýri 9, 108 Reykjavík og Héraðsdómur Reykjavíkur. Tími Alls 7 klst. Þriðjudagur 15. janúar kl. 13.00­16.00 og miðvikudagur 16. janúarkl. 12.30­16.30 Verð kr. 47.000,­ Skráning á www.lmfi.is Nýtt Strefen 16,2 mg/ml munnholsúði, lausn inniheldur flurbiprofen. Strefen er notað sem skammtímameðferð til að draga úr einkennum bráðra hálssærinda hjá fullorðnum. Einn skammtur (3 úðaskammtar) aftast í hálsinn á 3-6 klst. fresti eftir þörfum, upp að hámarki 5 skammtar á 24 klst. tímabili. Ráðlagt er að nota lyfið að hámarki í þrjá daga. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is. ERT ÞÚ MEÐ HÁLSBÓLGU? Bólgueyðandi og verkjastillandi munnúði við særindum í hálsi Strefen-sprey-Lyfja-5x10.indd 1 03/10/2018 14:54 MARKAÐURINN 3 . J A N Ú A R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 3 -0 1 -2 0 1 9 0 4 :4 3 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 E E -9 4 D 4 2 1 E E -9 3 9 8 2 1 E E -9 2 5 C 2 1 E E -9 1 2 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 8 s _ 2 _ 1 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.