Fréttablaðið - 03.01.2019, Blaðsíða 4
Fáðu blað dagsins í tölvupósti
kl. 5.00 á morgnana.
Skráðu þig á póstlista Frétta-
blaðsins á www.frettabladid.is/
nyskraning. Það kostar ekkert.
Vertu fyrst/ur
að lesa blaðið
UMBOÐSAÐILI RAM TRUCKS Á ÍSLANDI • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433
WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
RAM 3500 - HÖRKUTÓL SEM ENDIST
ramisland.is
EIGUM ALLAR ÚTFÆRSLUR TIL AFHENDINGAR, SLT, LARAMIE, LARAMIE SPORT, LIMITED OG LIMITED TUNGSTEEN.
BJÓÐUM UPP Á 37” TIL 42” BREYTINGARPAKKA.
40” BREYTTUR
UMBOÐSAÐILI RAM Á ÍSLANDI
HEILBRIGÐISMÁL „Það er einkenn-
andi fyrir þessa kynslóð að kvarta
ekki,“ segir Berglind Soffía Blön-
dal um niðurstöður rannsóknar
sinnar um næringarástand aldraðra
eftir útskrift af öldrunardeild Land-
spítalans, en hún skoðaði meðal
annars félagshagfræðilega stöðu
þeirra, fæðuöryggi og fæðuframboð.
Niðurstöðurnar, sem kynntar verða
í Háskóla Íslands í dag, sýna ekki
aðeins ótryggt fæðuöryggi og slæmt
næringarástand þátttakenda heldur
einnig mikið þunglyndi, depurð og
einmanaleika meðal þátttakenda
sem áttu það einnig sameiginlegt
að hafa allir minna en 200 þúsund
krónur til ráðstöfunar á mánuði.
Þátttakendur voru sjúklingar á
aldrinum 77 til 93 ára sem útskrif-
uðust heim af öldrunardeild Land-
spítalans. Gerðar voru mælingar við
heimför og þátttakendur svo heim-
sóttir tvisvar eftir útskrift með viku
millibili. Hún segir þátttakendur
almennt hafa borið sig vel og til
dæmis sagst hafa nóg fyrir stafni,
en svo komi jafnvel í ljós þegar þeir
svari spurningalista um þunglyndi
og hversu oft þeir séu einmana, að
svarið sé gjarnan: „Allan sólarhring-
inn.“
„Það er líka algengt að þau eigi
engan að sem þau geta treyst fyrir
öllu, svona trúnaðarvin sem er
eflaust líka mjög erfitt og gerir mann
einmana, ef maður er að bera hluti
einn sem maður hefur engan til
að ræða um við,“ segir Berglind en
tekur þó fram að flestir þátttakenda
hafi átt ágætt bakland og aðstand-
endur yfirleitt allir af vilja gerðir en
breytingar í samfélaginu valdi samt
þessari einangrun og það að fólk
vilji ekki láta hafa fyrir sér. „Mín
upplifun er sú að aðstandendur séu
mjög viljugir en fólkið sjálft segir
bara: Nei, nei, það er allt í góðu hjá
mér, ég á nóg til, engar áhyggjur.“
Hópurinn sem Berglind skoðaði
var nokkuð fjölbreyttur. Af þeim
þrettán sem hún fylgdi eftir var einn
einstæðingur sem átti hvorki börn
né maka. Um það bil helmingur
hafði misst maka sinn en í hópnum
voru einnig einstaklingar sem áttu
sjálfir mjög veikan maka.
„Þeim, sem eru sjálf í vöðvaniður-
broti af því að þau borða ekki nóg,
og voru líka að sjá um mjög veikan
maka, leið enn verr á sálinni,“ segir
Berglind.
„Það veldur þunglyndi hjá öllum
aldurshópum að fá ekki nóg af
kaloríum. Þegar fólk eldist fara
vöðvarnir að rýrna sem minnkar
hreyfigetu og þá getur allt orðið
rosalega erfitt, ekki síst þegar fólk
er líka að hugsa um veikan maka.“
Berglind segir mikilvægast að
ná tökum á vannæringunni. „Van-
næringin leiðir af sér pirring, óróa,
minnisleysi, þunglyndi, kvíða,
minnkaða hreyfifærni og þetta er
mjög slæmt þannig að best er að
lenda aldrei í þessu og ná að fyrir-
byggja þetta.“
Aðspurð segir Berglind alla þátt-
takendurna hafa einhverja heima-
þjónustu en mismikla þó. „Það er
mín tilfinning að staðan sé betri úti
á landi, en hér á höfuðborgarsvæð-
inu er erfiðara að manna félagsþjón-
ustuna enda láglaunastörf."
Rót vandans að mati Berglindar
liggur í alvarlegum skorti á hjúkr-
unarrýmum og þrýstingi alls staðar
frá á spítalann að útskrifa fólk sem
fyrst, því jafnvel þótt fólkið fái góða
næringu inni á spítalanum sé dvölin
alltof stutt til að tími gefist til þess
að vinna upp vannæringuna. „Í
fyrsta lagi bráðvantar hjúkrunar-
rými til að spítalinn geti starfað eins
og hann á að gera. Það er mikið af
öldruðu fólki sem liggur inni á spít-
ölum mánuðum saman meðan það
bíður eftir hjúkrunarrými og tekur
á meðan upp pláss sem aðrir þurfa á
að halda. Það er eitt af stóru vanda-
málunum,“ segir Berglind.
Hún segir að það megi bæta mikið
með aukinni eftirfylgni.
„Ef fólk kemur inn á spítala og er
vannært í legunni ætti næringar-
fræðingur að fylgja fólki heim ekk-
ert síður en til dæmis iðjuþjálfar.
Ef næringarfræðingur kemur heim
með fólki á fyrsta eða öðrum degi
eftir útskrift þá getur hann tekið
út eldhúsið og ísskápinn, veitt ráð
um hvernig megi auka matarlyst og
fleira,“ segir Berglind, sem vinnur
nú að íhlutandi rannsókn um nær-
ingareftirfylgni, heimsækir fólk eftir
útskrift af öldrunardeild og gefur
þeim sem þurfa orku- og prótein-
bætta fæðu, þróaða sérstaklega fyrir
rannsóknina.
adalheidur@frettabladid.is
Þeir elstu bæði einmana og vannærðir
Berglind Soffía Blöndal kynnir niðurstöður rannsóknar sinnar í Háskóla Íslands eftir hádegi í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Þeim, sem eru sjálf í
vöðvaniðurbroti af
því að þau borða ekki nóg og
voru líka að sjá um mjög
veikan maka, leið enn verr á
sálinni.
Berglind Soffía Blöndal, doktorsnemi
í næringarfræði
Þunglyndi, einmanaleiki
og depurð einkennir
þátttakendur í rannsókn
Berglindar Soffíu Blön-
dal sem kannaði næring-
arástand sjúklinga eftir
útskrift af öldrunardeild
Landspítalans. Nær-
ingarástand hópsins er
einnig slæmt en margir
þeirra hafa einnig veikan
maka að hugsa um.
Berglind kynnir niður-
stöður sínar í Háskóla
Íslands í dag.
Kynslóðin sem lætur ekki hafa fyrir sér
„Þetta er vandamálið sem við
eigum við að etja. Þessi kynslóð
er stolt fólk sem vill ekki væla við
ókunnuga. Fólk bara þegir og unir
við þá fátækt sem það býr við,“
segir Ellert B. Schram, formaður fé-
lags eldri borgara í Reykjavík. Hann
segir niðurstöður rannsóknarinnar
samt koma sér á óvart. „Vandamál
okkar sem viljum þeim vel og
viljum hjálpa er að okkur er ekki
sagt nógu mikið. Fólk vill vera
beint í baki og vera þátttakendur
í þjóðfélaginu en ekki vera að
kvarta og kveina,“ segir Ellert og
telur þetta hafa verið svona lengi
og minnist afa síns og ömmu sem
lifað hafi af litlu og aldrei talað
um það.
„Barátta okkar í Félagi eldri
borgara snýst um að vekja athygli
ráðamanna á því að það þurfi að
taka tillit til þessa hóps í samfélag-
inu sem er ekki alltaf kvartandi og
kveinandi en þarf á hjálp að halda.
Fólk tekur mér alltaf kurteis-
lega en svo er aldrei neitt gert,“
segir Ellert. Hann segist þó vona
að rannsóknir eins og þessi og
barátta eldri borgara skili sér ein-
hvern tíma. „Það á ekkert að gera
það með einhverjum látum heldur
bara þegjandi og hljóðalaust,“
segir Ellert.
3 . J A N Ú A R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
3
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:4
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
E
E
-A
D
8
4
2
1
E
E
-A
C
4
8
2
1
E
E
-A
B
0
C
2
1
E
E
-A
9
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
2
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K