Fréttablaðið - 03.01.2019, Side 4

Fréttablaðið - 03.01.2019, Side 4
Fáðu blað dagsins í tölvupósti kl. 5.00 á morgnana. Skráðu þig á póstlista Frétta- blaðsins á www.frettabladid.is/ nyskraning. Það kostar ekkert. Vertu fyrst/ur að lesa blaðið UMBOÐSAÐILI RAM TRUCKS Á ÍSLANDI • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433 WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16 RAM 3500 - HÖRKUTÓL SEM ENDIST ramisland.is EIGUM ALLAR ÚTFÆRSLUR TIL AFHENDINGAR, SLT, LARAMIE, LARAMIE SPORT, LIMITED OG LIMITED TUNGSTEEN. BJÓÐUM UPP Á 37” TIL 42” BREYTINGARPAKKA. 40” BREYTTUR UMBOÐSAÐILI RAM Á ÍSLANDI HEILBRIGÐISMÁL „Það er einkenn- andi fyrir þessa kynslóð að kvarta ekki,“ segir Berglind Soffía Blön- dal um niðurstöður rannsóknar sinnar um næringarástand aldraðra eftir útskrift af öldrunardeild Land- spítalans, en hún skoðaði meðal annars félagshagfræðilega stöðu þeirra, fæðuöryggi og fæðuframboð. Niðurstöðurnar, sem kynntar verða í Háskóla Íslands í dag, sýna ekki aðeins ótryggt fæðuöryggi og slæmt næringarástand þátttakenda heldur einnig mikið þunglyndi, depurð og einmanaleika meðal þátttakenda sem áttu það einnig sameiginlegt að hafa allir minna en 200 þúsund krónur til ráðstöfunar á mánuði. Þátttakendur voru sjúklingar á aldrinum 77 til 93 ára sem útskrif- uðust heim af öldrunardeild Land- spítalans. Gerðar voru mælingar við heimför og þátttakendur svo heim- sóttir tvisvar eftir útskrift með viku millibili. Hún segir þátttakendur almennt hafa borið sig vel og til dæmis sagst hafa nóg fyrir stafni, en svo komi jafnvel í ljós þegar þeir svari spurningalista um þunglyndi og hversu oft þeir séu einmana, að svarið sé gjarnan: „Allan sólarhring- inn.“ „Það er líka algengt að þau eigi engan að sem þau geta treyst fyrir öllu, svona trúnaðarvin sem er eflaust líka mjög erfitt og gerir mann einmana, ef maður er að bera hluti einn sem maður hefur engan til að ræða um við,“ segir Berglind en tekur þó fram að flestir þátttakenda hafi átt ágætt bakland og aðstand- endur yfirleitt allir af vilja gerðir en breytingar í samfélaginu valdi samt þessari einangrun og það að fólk vilji ekki láta hafa fyrir sér. „Mín upplifun er sú að aðstandendur séu mjög viljugir en fólkið sjálft segir bara: Nei, nei, það er allt í góðu hjá mér, ég á nóg til, engar áhyggjur.“ Hópurinn sem Berglind skoðaði var nokkuð fjölbreyttur. Af þeim þrettán sem hún fylgdi eftir var einn einstæðingur sem átti hvorki börn né maka. Um það bil helmingur hafði misst maka sinn en í hópnum voru einnig einstaklingar sem áttu sjálfir mjög veikan maka. „Þeim, sem eru sjálf í vöðvaniður- broti af því að þau borða ekki nóg, og voru líka að sjá um mjög veikan maka, leið enn verr á sálinni,“ segir Berglind. „Það veldur þunglyndi hjá öllum aldurshópum að fá ekki nóg af kaloríum. Þegar fólk eldist fara vöðvarnir að rýrna sem minnkar hreyfigetu og þá getur allt orðið rosalega erfitt, ekki síst þegar fólk er líka að hugsa um veikan maka.“ Berglind segir mikilvægast að ná tökum á vannæringunni. „Van- næringin leiðir af sér pirring, óróa, minnisleysi, þunglyndi, kvíða, minnkaða hreyfifærni og þetta er mjög slæmt þannig að best er að lenda aldrei í þessu og ná að fyrir- byggja þetta.“ Aðspurð segir Berglind alla þátt- takendurna hafa einhverja heima- þjónustu en mismikla þó. „Það er mín tilfinning að staðan sé betri úti á landi, en hér á höfuðborgarsvæð- inu er erfiðara að manna félagsþjón- ustuna enda láglaunastörf." Rót vandans að mati Berglindar liggur í alvarlegum skorti á hjúkr- unarrýmum og þrýstingi alls staðar frá á spítalann að útskrifa fólk sem fyrst, því jafnvel þótt fólkið fái góða næringu inni á spítalanum sé dvölin alltof stutt til að tími gefist til þess að vinna upp vannæringuna. „Í fyrsta lagi bráðvantar hjúkrunar- rými til að spítalinn geti starfað eins og hann á að gera. Það er  mikið af öldruðu fólki sem liggur inni á spít- ölum mánuðum saman meðan það bíður eftir hjúkrunarrými og tekur á meðan upp pláss sem aðrir þurfa á að halda. Það er eitt af stóru vanda- málunum,“ segir Berglind. Hún segir að það megi bæta mikið með aukinni eftirfylgni.  „Ef fólk kemur inn á spítala og er vannært í legunni ætti næringar- fræðingur að fylgja fólki heim ekk- ert síður en til dæmis iðjuþjálfar. Ef næringarfræðingur kemur heim með fólki á fyrsta eða öðrum degi eftir útskrift þá getur hann tekið út eldhúsið og ísskápinn, veitt ráð um hvernig megi auka matarlyst og fleira,“ segir Berglind, sem vinnur nú að íhlutandi rannsókn um nær- ingareftirfylgni, heimsækir fólk eftir útskrift af öldrunardeild og gefur þeim sem þurfa orku- og prótein- bætta fæðu, þróaða sérstaklega fyrir rannsóknina. adalheidur@frettabladid.is Þeir elstu bæði einmana og vannærðir Berglind Soffía Blöndal kynnir niðurstöður rannsóknar sinnar í Háskóla Íslands eftir hádegi í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Þeim, sem eru sjálf í vöðvaniðurbroti af því að þau borða ekki nóg og voru líka að sjá um mjög veikan maka, leið enn verr á sálinni. Berglind Soffía Blöndal, doktorsnemi í næringarfræði Þunglyndi, einmanaleiki og depurð einkennir þátttakendur í rannsókn Berglindar Soffíu Blön- dal sem kannaði næring- arástand sjúklinga eftir útskrift af öldrunardeild Landspítalans. Nær- ingarástand hópsins er einnig slæmt en margir þeirra hafa einnig veikan maka að hugsa um. Berglind kynnir niður- stöður sínar í Háskóla Íslands í dag. Kynslóðin sem lætur ekki hafa fyrir sér „Þetta er vandamálið sem við eigum við að etja. Þessi kynslóð er stolt fólk sem vill ekki væla við ókunnuga. Fólk bara þegir og unir við þá fátækt sem það býr við,“ segir Ellert B. Schram, formaður fé- lags eldri borgara í Reykjavík. Hann segir niðurstöður rannsóknarinnar samt koma sér á óvart. „Vandamál okkar sem viljum þeim vel og viljum hjálpa er að okkur er ekki sagt nógu mikið. Fólk vill vera beint í baki og vera þátttakendur í þjóðfélaginu en ekki vera að kvarta og kveina,“ segir Ellert og telur þetta hafa verið svona lengi og minnist afa síns og ömmu sem lifað hafi af litlu og aldrei talað um það. „Barátta okkar í Félagi eldri borgara snýst um að vekja athygli ráðamanna á því að það þurfi að taka tillit til þessa hóps í samfélag- inu sem er ekki alltaf kvartandi og kveinandi en þarf á hjálp að halda. Fólk tekur mér alltaf kurteis- lega en svo er aldrei neitt gert,“ segir Ellert. Hann segist þó vona að rannsóknir eins og þessi og barátta eldri borgara skili sér ein- hvern tíma. „Það á ekkert að gera það með einhverjum látum heldur bara þegjandi og hljóðalaust,“ segir Ellert. 3 . J A N Ú A R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 3 -0 1 -2 0 1 9 0 4 :4 3 F B 0 4 8 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 E E -A D 8 4 2 1 E E -A C 4 8 2 1 E E -A B 0 C 2 1 E E -A 9 D 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 8 s _ 2 _ 1 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.