Fréttablaðið - 03.01.2019, Blaðsíða 10
icewear.is
Icewear janúarútsala 2019-1.pdf 1 17/12/2018 09:32
Óska eftir að kaupa
50þús króna bíl
Má vera ryðgaður en verður að vera í toppstandi.
Sími: 483 3568.
DANMÖRK Sex létu lífið og á annan
tug slösuðust í lestarslysi á Stóra-
beltisbrúnni í Danmörku í gær-
morgun. Slysið varð þegar farþega-
lest á leið til Kaupmannahafnar
frá Óðinsvéum mætti flutningalest
fullri af dönskum bjór. Talið er brak
úr tengivögnum flutningalestarinn-
ar hafi fokið á hraðlestina í vonsku-
veðri sem geisað hefur í Danmörku
og víðar á Norðurlöndum síðustu
daga.
Stórabeltisbrúin tengir Sjáland
og Fjón og er eitt helsta samgöngu-
mannvirki Danmerkur. Rannsókn á
slysinu er á frumstigi en haft er eftir
Bo Haaning hjá rannsóknarnefnd
samgönguslysa að tómur tengivagn
virðist hafa oltið eða fokið um koll.
Hann hafi annaðhvort rekist á far-
þegalestina eða henni verið ekið á
vagninn. Ekki liggur þó fyrir hvort
tengivagninn hafi valdið slysinu eða
aðrir hlutar flutningalestarinnar og
ekki er vitað um ástæður þess að
tengivagninn datt úr lestinni.
Heyrst hafa þær gagnrýnisraddir
í Danmörku eftir slysið að glap-
ræði hafi verið að láta lestir ganga í
storminum. Þessu vísa tæknistjórar
Sund & Bælt, rekstraraðila brúar-
innar, á bug.
„Það var engin takmörkun á
lestar samgöngum vegna vinds,“
Danska þjóðin harmi slegin
eftir mannskætt lestarslys
Sex eru látnir og sextán slasaðir eftir alvarlegt lestarslys á Stórabeltisbrúnni í Danmörku í gær. Líklegt að
stormviðri hafi valdið slysinu þegar farþegalest og flutningalest full af bjór mættust á brúnni á áttunda tím-
anum í gærmorgun. Danadrottning vottar aðstandendum samúð sína. Íslensk kona um borð slapp ómeidd.
Flutningalestin var fulllestuð af dönskum bjór merktum Tuborg og Carlsberg. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Danadrottning harmi slegin
„Ég er slegin yfir þessu hræðilega
lestarslysi á Stórabeltisbrúnni,“
segir í yfirlýsingu sem Margrét
Danadrottning sendi frá sér
í gær vegna slyssins.
„Hugur minn og öll
mín samúð fer til fjöl
skyldna hinna látnu og
eftirlifenda.“
Fyrr um daginn hafði
Lars LØkke Rasmussen,
forsætisráðherra Danmerkur,
tekið í sama streng og lýst harmi
sínum yfir þessu voveiflegu
tíðindum.
„Við erum öll slegin yfir þessu
slysi. Líf venjulegra Dana á leið til
vinnu eða heim úr jólafríi hefur
verið sett úr skorðum og er
í molum,“ sagði ráðherr
ann. Hann kvað hug sinn
vera hjá fjölskyldum
hinna látnu og slösuðu
og færði viðbragðs
aðilum bestu þakkir fyrir
frammistöðu þeirra við
erfiðar aðstæður á brúnni í
gærmorgun.
„Þá þakka ég fjölmörgum koll
egum mínum sem hafa sent hug
heilar samúðarkveðjur og fylgjast
náið með gangi mála.“
segir Kim Agerso Nielsen í samtali
við danska ríkisútvarpið. Hann segir
að vindur hafi verið undir 21 metra
á sekúndu á vesturbrúnni þegar
slysið varð. Þegar vindur fer yfir 21
metra á sekúndu sé hámarkshraði
lesta lækkaður niður í 80 kílómetra
á klukkustund. Aðeins ef vindhraði
fari yfir 25 metra á sekúndu sé
brúnni lokað fyrir umferð.
Veðuraðstæður gerðu björgunar-
og leitarhópum erfitt fyrir á slys-
stað í gær. 131 farþegi var um borð
í farþegalestinni og þrír starfsmenn
þegar slysið varð. Danska lögreglan
gat ekki upplýst um aldur eða þjóð-
erni hinna látnu að svo stöddu. Vitað
er um að minnsta kosti eina íslenska
konu um borð í lestinni en hana sak-
aði ekki. mikael@frettabladid.is
GEIMKÖNNUN Talið er að kínverskir
vísindamenn muni reyna að lenda
Chang�e 4 geimfari sínu á Tunglinu
í dag. Heppnist þeim ætlunarverkið
verður þetta í fyrsta skipti sem
geimfar lendir á fjarhlið Tunglsins.
Lendingarstaðurinn þykir einkar
heppilegur fyrir rannsóknir á jarð-
fræði Tunglsins, hin svokallaða
Suðurpóls-Aitken-dæld en það er
stærsti, elsti og dýpsti gígur Tungls-
ins.
Kínverska geimvísindastofnunin
CNSA hefur ekki gefið út hvenær
reynt verði að lenda geimfarinu, en
ljóst er að lending er á næsta leiti.
Um helgina færði Chang'e 4 sig á
sporöskjulaga sporbraut í um 15
kílómetra hæð yfir yfirborði
Tunglsins.
Þar sem Chang'e
4 verður á fjarhlið
Tunglsins verða
samskipti milli
geimfarsins og
stjórnstöðvar
á Jörðu niðri
n o k k u ð
flókin. Til að
koma merk-
inu til Jarðar
þarf að endur-
varpa skilaboð-
um Chang'e 4 af
gervitunglinu Que-
qiao sem einnig er á
sporbraut um Tunglið.
Chang'e 4 mun framkvæma ítar-
legar mælingar á yfirborði Tungls-
ins ásamt því að kanna efnasam-
setningu jarðvegsins.
Lendingarstaðurinn, Suðurpóls-
Aitken-dældin, er talinn
hafa myndast til-
tölulega stuttu
eftir myndun
Tu n g l s i n s .
Gígurinn er
gríðarstór,
e ð a u m
2.500 kíló-
metrar að
þve r m á l i
og 13 kíló-
metra djúp-
ur. – khn
Kínverjar freista þess að
lenda á Tunglinu
Suðurpóls-Aitken-
dældin er í bláu.
Chang�e 4 geimfarið. FRÉTTABLAÐIÐ/CNSA
GEIMVÍSINDI Bandaríska geimvís-
indastofnunin NASA birti í dag
fyrstu myndina af útstirninu Ultima
Thule. Geimfarið New Horizons
þaut fram hjá stirninu litla í gær og
kannaði í návígi. Aldrei hefur mað-
urinn kannað jafn fjarlægan hlut.
Ultima Thule er 35 kílómetra
breiður steinhnullungur sem tilheyr-
ir Kuiper-beltinu svokallaða handan
Neptúnusar og rekur uppruna sinn
til árdaga sólkerfisins. Útstirnið
hringar sólina á 298 ára fresti.
„Þessi könnun er sögulegt afrek,“
sagði Alan Stern, aðalrannsakandi
New Horizons verkefnisins, á blaða-
mannafundi í gær. „Aldrei áður
hefur geimfar elt uppi svo smávaxið
fyrirbæri djúpt í hyldýpi geimsins á
jafn miklum hraða.“
Á næstu dögum og vikum mun
New Horizons senda fleiri og mun
ýtarlegri myndir af útstirninu í
norðri. – khn
Ultima Thule
myndað í návígi
Ultima Thule. FRÉTTABLAÐIÐ/NASA
3 . J A N Ú A R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
3
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:4
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
E
E
-A
8
9
4
2
1
E
E
-A
7
5
8
2
1
E
E
-A
6
1
C
2
1
E
E
-A
4
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
2
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K